Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 90
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ekki heim í persónunni allt þetta, sem bræð- urnir segja um afl föður síns og er þar varla við Brynjólf sjálfan að sakast. Onnur hlutverk voru veigaminni og skila sér yfir- leitt illa, enda mundu þau að miklu byggj- ast á mállýzkum á frummálinu. Þetta verk ætti að gefa leikurum það sem þeir kalla tækifæri og verður ekki sagt, að Helgi Skúlason hafi fullnýtt ])au, ef til hans má rekja túlkunarmáta leikaranna. Sýningin hefur líklega haft sterk áhrif á marga áhorf- endur meðan á henni stóð, en ólíklegt að mikið sitji eftir þegar frá líður. Þannig stendur verkið engan veginn undir þeim umsögnum, sem út gengu frá Leikfélaginu um það bil sem sýningar hófust. Loks er svo nýafstaðin frumsýning á leik- ritinun Hvað er sannleikur? (Dangerous Comer) eftir J. B. Priestley. Það er var- legra að taka dulhyggju Priestleys ekki of hátíðlega. Hann getur verið til með að taka upp vafasamar kenningar um tíma, stjömu- speki, spíritisma, yfirleitt allt það, sem veitir honum tækifæri til að komast að fólki með skoðanir sínar. Og kenning um klofning tímans veitir færi á að semja leik- rit þar sem farið er undir fágað yfirborð dá- lítils hóps af ríku millistéttarfólki, það lát- ið segja sannleikann um sjálft sig, bera sinn óhugnanlega innra mann, fleygja frá sér þessari marglofuðu lífshlekkingu — bregða svo upp rauðu hættumerki sjálfsmorðsins og láta allt byrja uppá nýtt; sama stofan, sömu orðin, sama fágaða yfirborðið, nema nú er stýrt hjá boðanum í samtalinu og allt er í bezta lagi — nema hvað? Yfirgefum við leikhúsið ofuriítið sannfærðari um, að ekki sé allt sem sýnist hér og hvar? Er Priestley ekki dálítið útundir sig þegar hann bregð- ur yfir sig þessum dulhyggjukenningum, sem yfirstéttirnar hafa verið að innprenta fólki? A. m. k. er hann bæði alþýðlegur og vinsæll höfundur. Helga Bachmann varð ein til þess að komast klakklaust frá meiriháttar hlutverki. Túlkun hennar á Friedu var gegnumheil og laus við þann bægslagang og yfirleik, sem svo þráfaldlega skaut upp kollinum á þess- ari sýningu. Hér stendur manneskja, sem hefur elskað og misst og hún kvelst, það er augljóst mál, engin þörf að æpa. Helgi Skúlason gerir margt vel í hlut- verki Roberts, einkum er þögull leikur hans oft góður. Heildarskilningurinn á persón- unni virðist þó vera nokkuð einhliða. Á hann að vera þessi fyrirmyndar og dugnað- armaður eða er þetta hlutskipti, sem hópur- inn hefur skipað honum í? Er blinda hans bara einfeldni? Væri ekki nær að hugsa sér hann með sömu skapgerðarbrestina og Martin, hinn bróðurinn, skapgerðarbresti, sem meina þeim báðum jafnt að horfast í augu við veruleikann, þó umhverfið setji annan í hlutverk heiðurs-og-dugnaðar- mannsins en hinn í hlutverk hins gáfaða heimsmanns, konan geti elskað annan en verið gift hinum. I ölæðisatriðinu yrði meira af sjálfsvorkunn en minna af óskil- greindri tilfinningasemi, sem æpt er yfir salinn. Þá mundu áhorfendur fremur trúa því að Robert Caplan ætli að fara að skjóta sig. Svipaður er misskilningurinn á Olwen, sem leikin er af Sigríði Hagalín, persón- unni er líkt og fórnað fyrir yfirborðslega terroreffekta í frásögunni af slysinu. Á hún ekki fremur að vera persónan, sem búin er að gera allt upp við sig? Og mætti því flytja frásögnina sem tempraðast. Líkasttil má skrifa þessa misbresti á reikning leik- stjórans, yfirleikurinn er það sem spillir þessari sýningu, og hann virðist verða til í vandræðum þegar persónugreiningin er ekki nógu ljós. Meir hefði leikstjórinn líka getað hjálpað Birgi Brynjólfssyni, sem einnig yfirleikur og Guðmundi Pálssyni, sem kemst í hreinar ógöngur með Stanton hvenær sem átök verða, geðbrigði leikar- 80
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.