Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 82

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR staður — dimmar hálfreistar biggingar. Það er leikið fíngert á Ijós og skugga — skarpar andstæður og flöktandi ljós til að túlka þá geðshræringu, sem stúlkan er í. Flítir og fum fundar elskendanna, ljótleik- ur þess sem gerist, og átti að vera svo fall- egt. Ógleimanlegt er atriðið, þegar sagt er frá því, að hún hafi tekið inn eitur. En því miður treisti ég mér ekki til að gefa ikkur nokkra hugmind um það. Orð duga þar skammt. Þar talar kvikmindin ein. Lokaatriði mindarinnar er mjög sterkt — átakanlegt liggur mér við að segja. Þau hafa kvaðst — unglingar rétt um tvítugt, ganga sitt í hvora áttina og ern svo pínulítil á þessum breiða og volduga bakgrunni ní- bi ggingahverfisins. Og firir hugum okkar stendur hún lengi lengi eftir: döpur stúlka, svo ung, svona rétt að springa út — og segir með sannri tilfinningu: „Ég kæri mig ekki um neina ást.“ Já, það var deilt hart um þessa mind. Kennslukonufélag sendi bréf og mótmælti harðlega, þetta væri ligi og rógur um stétt- ina, svona vondar kennslukonur væru ekki til í Sovétríkjunum. Aðrir héldu því fram, að mindin væri ifirleitt níð um iand og þjóð. Ósköp áþekkur söngur og heirðist hér sums staðar áður firr um verk Halldórs Laxness. En snöggtum fleiri voru þó þær raddir, sem fögnuðu mindinni: „Kjafts- högg á smáborgaralegar tilhneigingar og kreddumennsku." „Mindin minnir okkur harkalega á, að það er fljótlegra að biggja ní íbúðarhverfi, en uppræta gamla fordóma og karakterheimsku, sem eitra sambúð manna.“ Alan og Haúmov heita tveir leikstjórar, sem vinna jafnan saman. Síðasta mind þeirra heitir: „Frið firir þann, sem inn gengur". Hún gerist á síðustu dögum stríðsins. Bráðungur rússneskur liðsforingi kemur á fremstu vígstöðvar beint úr her- skólanum, fullur af glæstum draumum um garpskap og hetjudáðir. Hann veit, að það er hver síðastur að vinna frækileg afreks- verk, því striðið er alveg að verða búið. En veruleikinn á vígstöðvunum er annar en í herskólanum og hann fær það hlutverk að koma þískri stúlku, fanga á sjúkrahús. Fanginn er nefnilega kominn á steipirinn og það verður að koma henni strax undir læknishendur. Mindin segir síðan af þess- ari för, sem er mjög erfið og hættuleg. Allt er í upplausn og kaosi, eiginlega ekki eftir nema síðustu eftirhreitur stríðsins, skæru- liðaflokkar og einstaka örvita stríðsmenn. Þarna koma við sögu fjölmargar persónur af ólíkum þjóðernum, sem allar keppast um að greiða götu stúlkunnar á sjúkrahús- ið. Síðasta spölinn ekur amerískur hermað- ur. Þeir komast í tæka tíð og mindin endar á því, að þeim nífædda er haldið hátt á loft og hann sprænir ifir vopnahrúgu. Um þessa mind var einnig deilt harka- lega. Þetta er hreinn og ómengaður pasif- ismi sögðu alvarlegustu óánægjuraddirnar. Og þó við berjumst firir friði, er það allt annað en að vera að reka áróður firir pasif- isma á sama tíma og Vcstur-Þjóðverjar eru að fá kjarnorkuvopn. Og þó var öllu meira deilt um stíl mind- arinnar. En það er erfitt að segja frá slík- um deilum og ekki hvað síst, þar sem við eigum ekkert tæknimál á íslensku. Tarkovski heitir ungur maður, sem út- skrifaðist úr kvikmindaskóla ríkisins í firra og hafði gert prófmind, sem heitir „Valtari og Fiðla“ um vináttu verkamanns, sem vinnur á valtara og stráklings, sem spilar á fiðlu — sérkennileg mind og hlaut mis- jafna dóma og hreint ekki firstu einkunn í skólanum. Næsta mind, sem hann gerði heitir „Barnæska Ivans“ og hún fékk fyrstu 72
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.