Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 101

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Page 101
UMSAGNIR UM BÆKUR svífa með frássögn þess, sem víða hafði far- iS og margt séð. Og svo komu bækur og blöð, og menn lásu þar um ferðir annarra og allt þaS forvitnilega, sem þeir sáu á löngum ferðum, og allt það nvstárlega, sem þeir urðu áskynja meðal framandi þjóða. Ferðabækur hafa á öllum tímum verið eft- irlætisbókmenntir þjóðarinnar, síðan hún komst í kynni við þær, og á síðustu áratug- um hafa ferðapistlar verið með því vinsæl- asta, sem flutt hefur verið á vegum Ríkis- útvarpsins. En ferðasögur eru eins og aðrir hlutir misjafnar að skemmtana- og fróðleiksgildi. Sfiklu veldur, hvert farið er og frá hverju hægt er að segja, en hitt veldur ekki minnu, hvemig frá er sagt. Það er ekki ofmælt, að Rannveig Tómasdóttir sé allra íslenzkra ferðalanga kunnust og vinsælust meðal al- þýðu þessa lands nú til dags. Kynnin við hana hafa nú staðið alllengi og hróður hennar aukizt á þessum vettvangi við hverja ferð hennar, sem hún hefur sagt okkur frá. Ég má ekki með það fara, hve mörg ár eru síðan Rannveig vakti fyrst athygli mína og fleiri með ferðasögum um Vestfirði. Fleiri hafa trítlað um þær slóðir og þar á meðal góðkunnir menn fyrir frásagnargleði, en fleirum en mér munu frásagnir Rannveigar hafa orðið ánægjulegastar til fróðleiks og kynna við svipmikið fólk í stórbrotnu um- hverfi. I seinni tíð hafa ferðasögur Rannveigar verið frá löndum handan Atlanzála og handan allra annarra ála þessarar jarðar- kringlu. Og fyrir frásagnir frá þeim ferðum hafa íslenzkir útvarpshlustendur komizt í æ nánari og hugþekkari kynni við þessa víðförlu konu, og ferðaþættir hennar eru í tölu þeirra útvarpsþátta, sem almennt hafa verið bezt þegnir. En Rannveig hefur ekki látið sér nægja Utvarpið eitt til að svala frásagnarþörf sinni og eftirspum þeirra, sem meira vilja heyra. Á átta árum hafa þrjár ferðabækur frá henni komið á markaðinn, og sú síð- asta, nýútkomin í afmælisútgáfu Máls og menningar, er tilefni þessar lína. Hver hók fyrir sig er sjálfstæð heild, en ekki samsafn ferðaþátta, á sama hátt og hver ferð henn- ar er greinilega ekki farin eitthvað út í blá- inn til að sjá eitthvað, heldur til að afla sér heildaryfirsýnar einhvers ákveðins efnis. Fyrsta bókin heitir FJARLÆG LÖND OG FRAMANDI ÞJÓÐIR, og er þá farið til hitabeltislanda Ameríku, nokkurra Vestur- Indlandseyja og Mexíkó. Næsta bók heitir LÖND í LJÓSASKIPTUM, og þá er farið um Rússland, Kína og Egyptaland. Sú síð- asta ber heitið ANDLIT ASÍU, og þá er farið um Indland, Kashmír, Nepal, Ceylon, Thailand, Kambódíu og Mið-Asíulöndin, sem heyra til Ráðstjórnarríkjunum. Bækur þessar eru hver annarri fegurri að útgáfu og á allan hátt hugþekkir gripir í mörgum bókaskáp menntaðra alþýðuheimila. Það er sameiginlegt einkenni allra bóka Rannveigar, að þær bera það með sér, að ferð er ekki fyrst og fremst farin til að leita að sérkennilegu landslagi eða til að státa af að hafa komið á slóðir, þar sem fáir aðrir hafa komið. Hún er fyrst og fremst leit að fólki og hvernig það lifir og hrærist við menningu og lífsskilyrði, sem óskyld eru og fjarlæg því, sem við þekkjum, og f jöll og ár og ásar og gróður og veðrátta og sögu- og menningarleifðir er aðeins um- gerð um það mannlíf, sem í dag hrærist á þessum fjarlægu slóðum. í ferð um Vestur- Indlandseyjar og Mexíkó eru það fáskrúð- ugar leifar frumbyggjanna, Aztekanna, sem hæst ber í frásögninni, glæsileiki fornrar menningar þeirra og örlög þeirra í hel- greipum hvítra villimanna. í aðra ferð sína fer Rannveig til að kynnast alþýðu stór- þjóða, sem eiga forna gróna menningu, höfðu búið við kúgun og niðurlægingu stéttarlega eða þjóðernislega eða hvort 91
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.