Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Blaðsíða 53

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1982, Blaðsíða 53
Hugmyndafrceði Alfýðubókarinnar dularfull, hvorki óræð né óskilgreinanleg. Dulúð og vísindi eru hér andstæð skaut. í kaflanum um bækur, þar sem Halldór gagnrýnir dulúðarhneigð í borgaralegum samtímabókmenntum, segir hann: „Liggi þéreitthvað á hjarta, sem þér finst mikils við þurfa að kunngera alþjóö, þá reyndu að afla þér þeirrar þekkingar, sem til þarf að segja það beint út í stað þess að færa það í nokkur dulklæði.“ (13) Til að framfarir geti átt sér stað vantar að dómi höfundarins karla og konur, sem kunna að „byggja hús, að rækta garða, að búa til ætan mat, að setja upp raftæki, að smíða íslenzk húsgögn, að ala upp munaðarleysingja, að stjórna alþýðubókasöfnum, að túlka alþýðu vísindi" (134). Hugsunin virðist vera sú að þekki alþýðan nægilega margar „staðreyndir", geri hún óðara byltingu. Hug- takið staðreynd hjá Halldóri er kyrrstætt, upplýsingar um málavöxtu — ef ekki málavextirnir eða aðstæðurnar sjálfar— sem munu halda áfram að vera eins og þær eru. Það er staðreynd í þessum skilningi að epli fellur til jarðar sé það ekki hindrað af öðrum hlutum; það er staðreynd í sama skilningi að auðvaldskerfið dreifir auðæfum jarðar ranglátlega, þ.e.a.s. illa. Og ráðstjórnarfyrirkomulagið er vísindaleg uppgötvun sömu tegundar og talsíminn. Auk þess sem Halldór styðst við kyrrstæð hugtök beinist athygli hans iðulega að því fyrst og fremst sem sést á yfirborðinu, eftir því sem tök eru á, líkt og pósitífískasta grein sálarfræðinnar, atferlisfræðin, mælir með. í hugarheimi Halldórs eru staðreyndirnar óhlutdrægar óg hlutlægar, sannar í sjálfum sér og ofar hagsmunum; hann greinir lítt á milli hugsunar um hlut og hlutarins sjálfs, sem hlýtur að fela í sér að hugsunin sé kórrétt mynd af veruleikanum. Dæmi um það að hann ruglar saman hlut og tákni er þegar hann segir bíltúra upp í sveit hafa leyst landslagsmyndina af hólmi (185). En þótt Halldór telji staðreyndirnar hagsmunalausar er á honum að skilja að það sé hagur alþýðu og ekki valdstéttar að fjöldinn fái vitneskju um staðreyndirnar, að minnsta kosti um vissar staðreyndir. Umræður hans um uppeldisfræði eru ágætt dæmi um þetta. Á seinni hluta 3. áratugarins var mikið deilt um hvort heppilegra væri að ala upp börn á barnaheimilum eða inni á heimilum fjöl- skyldnanna. Halldór aðhylltist uppeldi á stofnunum, þar sem hægt væri að hafa hjúkrunarkonur og menntaðar fóstrur, — kostirnir við þetta fyrirkomulag voru að hans viti vísindalega sannaðir. Hann segirað íhaldsmenn hafi haldið því fram að barninu væri hollara að vera kyrrt hjá móðurinni, en þessu svarar hann þannig til að móðirin geti einskis betra óskað barni sínu til handa en vísindalegs uppeldis: „Hitt sæmir einungis flugmönnum auðvaldsins að halda fram því, að 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.