Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 15
Formviljinn vegvísar út á hina einföldu sigurbraut vitundarvakningarinnar. En það er töluverð einföldun: báðar þessar sögur eru stúdíur á skipbroti ráðvillts einstaklings, sem að vísu er sett í þjóðfélagslegt samhengi — báðar þessar bækur enda á hinum sæla flótta frá vanda og böli. Hvort sem litið er á Átta raddir úr pípulögn, Gunnar og Kjartan eða Mann og haf\>í er maðurinn alls staðar einn í bókum Vésteins. Hann hefur hægt og rólega verið að breyta formi sínu, laga það að eigin þörfum og hið sama gildir um hugmyndalega þróun hans, hún hefur verið hægfara. Hann leitar inn. Pétur Gunnarsson líka, en öðruvísi: hann fer inn á heimilið þar sem þarf að vaska upp og þvo bleyjur, ryksuga, tína upp leikföng, laga mat og bara sitja. I Sögunni allri leikast alls staðar á tveir heimar: stóri heimurinn, útlöndin, þar sem atburðirnir gerast og svo aftur þessi tíðindalitli íslenski heimur heimilisins, heima; heimur mannkyns- sögunnar sem tilheyrir útlandinu (Grikkland, vísanir í syndafallssöguna) og hinn fortíðarlausi heimur Guðmundar Andra sem um leið er fortíðarleysi okkar allra, saga þjóðarinnar upphefst á Þingvöllum 1944 á árinu eina, heimssöngvarinn Eggert Stefánsson tilkynnir upphafið — og: heimur skáldskaparins með sínum lögmálum, sífelldum tíðindum, aksjón sem endar með krassi (Andrasagan) og heimur veruleikans (Guðmundur Andri), er lífið skáldlegt? Rétt eins og Guðlaugur Arason er hann með tvær sögur í gangi á ólíkum plönum sem varpa ljósi hvor á aðra; hann verður að segja söguna af fyrirmynd Andra (eða eftirmynd) til að segja söguna alla. Og hvar liggur þá söguvitund bókarinnar? Hvað er skáldskapur um skáldskap, hvað skáldskapur um veruleika, hvað veruleiki skáldskapar? Guðmundur Andri er sagður fyrirmyndin að Andra, sá sem Andri er skapaður úr — allt í lagi, en er þetta ekki eiginlega öfugt úr því að hér er síðasta bindið, sagan öll: að Guðmundur Andri sé skapaður úr Andra, ekki fyrirmynd Andra heldur fyrirmyndar-Andri, hinn hafi verið leiddur til lykta og þannig fundin leið út úr upprunalegu sögunni — að sagan um Guðmund Andra sé nánast leiðrétting á hinni sem leiddi ekki til neins, bauð ekki upp á annað en þreytta brandara um eitthvað fólk sem er svo altýpískt að það er hvergi til. Og sé þá sú æskilega gerð sögunnar með þungri áherslu á öll mjúku jákvæðu gildin: einlægni og sífellda undrun yfir furðum hversdagslífsins, sem er sá litli heimur sem við getum ráðið yfir, opinn huga og óspilltan enn af argi og gárgi stóru vondu veraldarinnar. Guðlaugur og Pétur skrifa „feðrabókmenntir" en þær má skilgreina sem svo að skrifaðar séu af feðrum um feður — um hina sérstöku föðurlegu reynslu, þrungnar föðurlegri vitund. Hafliði Vilhelmsson skrifar hins vegar „sonabókmenntir“. Beygur minnir að því leyti til dálítið á ameríska bók, A Confederacy of Dunces eftir John Kennedy Toole án þess þó að Hafliði 141
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.