Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Side 111
Verbleikar og sannleikur við, og ekki heldur sannmælum eða svikmælum eins og Þorsteinn virðist áður skilja þau orð og eðlilegast er að skilja þau. Niðurstaðan er þá sú að Þorsteini takist ekki að flétta saman sannmæl- iskenninguna og verðleikakenninguna. Eftir stendur verðleikakenningin ein. Hún birtist nú sem sú krafa að „verðleikar mannlegra einstaklinga fái að koma fram.“ Ég hef haldið því fram á öðrum vettvangi að einhver regla eða krafa af þessum toga sé frumregla í siðferði og sérstaklega í þjóðfélagslegu siðferði.4 Ég setti þetta ekki fram sem réttlætiskröfu, heldur taldi ég regluna helgast af því að það væri best fyrir hvern einstakling að fá að njóta sín og það að eitthvað sé best fyrir alla taldi ég fullboðlega réttlætingu kröfunnar, hún þyrfti ekki endilega að vera réttlætiskrafa. Eg veit ekki nema ritgerð Þorsteins hafi vakið hjá mér efasemdir um þetta: mér sýnist nú að reyndar kunni að mega setja þessa kröfu fram í nafni réttlætisins. Eigi að síður hygg ég að enn greini okkur Þorstein nokkuð á eins og raunar ætti að vera ljóst af því sem fram hefur komið. Ætla ég nú að reyna að skýra þann ágreining sem ég held að sé, og í leiðinni að freista þess að telja Þorstein á mína skoðun, sem ég er að vísu ekki mjög bjartsýnn á að takist. Eins og ýmsir aðrir heimspekingar á okkar dögum vill Þorsteinn hafna allri nytjastefnu, sem er sú skoðun að rétt og rangt ráðist með einhverjum hætti af afleiðingum verka okkar fyrir velferð manna. Þetta þýðir að heill og hamingja manna, hvað er gott fyrir manneskjurnar, er ekki hornsteinn siðfræðinnar að hans dómi. Hann telur réttlætið bersýnilega mikilsverðast siðferðilegra hugmynda, og fremur en að reyna að réttlæta réttlætið með því að skírskota til góðra afleiðinga þess fyrir líf mannanna telur hann að réttlætið helgist af sannleikanum og því hvað hver og einn verðskuldar. Réttlætið er algilt og hafið yfir allan mun á samfélögum manna; það er ríki út af fyrir sig, og þarfir manna eða heill þeirra og hamingja geta engu um það breytt. (Þorsteinn segir þetta beinlínis um þarfirnar (207); að þetta sé meining hans um heill og hamingju líka ræð ég af máli hans almennt.) Mér virðist á hinn bóginn sjálfsagt að tengja réttlætið því sem gott er fyrir mennina. I þessu fylgi ég John Stuart Mill og Platóni sem taldi að þótt réttlætið sé að sönnu voldugt, sé hið góða sjálft þó enn voldugra og að af því hafi réttlætið birtu sína.5 Fyrst farið er að nefna stór nöfn, þá má benda á að í þessu tilliti sver afstaða Þorsteins sig fremur í ætt við siðfræði Kants, sem taldi siðferðisgildi verka óháð afleiðingum þeirra og óháð hamingju mann- anna yfirhöfuð, og honum virtist siðferðið vera algilt á svipaðan hátt og Þorsteini réttlætið. Eigi að síður held ég að nánara sé með réttlætinu og heill mannanna í kenningu Þorsteins, og jafnvel með því og þörfum þeirra, en hann vill vera láta. Sama er raunar að segja um siðfræði Kants: góðar 237
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.