Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Side 40

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Side 40
2) heyrn (vegna veðurhljóða, dýrahljóða o.þ.h.) og/eða 3) tilfinningaleg viðbrögð (myrkfælni, skyndilegan ótta, hroll um hryggsúlu, verk fyrir bijósti o.s.frv.).2 Túlkun slíkra skynhrifa byggir sam- kvæmt sálfræðinni á þeim hugmyndaheimi sem einstaklingurinn hfir og hrærist í. Dæmisaga Platons, um mennina sem sátu bundnir með bakið í hellismunnann og sáu einungis skuggamyndir á vegg, gefur nokkra innsýn í það sem við er að eiga. Þeirra heimur var veröld flöktandi skugga og þeir hefðu aldrei getað dregið „réttar“ ályktanir af því sem fyrir augu bar. En hvað eru þá „réttar“ ályktanir? Sá sem fellir skynjun sína að þeirri heimsmynd sem hann hefur, dregur eðlilega ályktun, enda þótt ályktun hans sé röng út frá öðrum sjónarhóli. Hann er trúr sínurn hugarheimi og þeim forsendum sem honum eru gefnar. Andleg hremming og „galdrafár" Jón Magnússon, varð fyrir margvíslegum skynhrifum sem hann túlkaði sem djöful- legar ásóknir. Sé litið til annarra Evrópu- landa á sama tíma og Jón Magnússon engdist undan ásóknum djöfulsins kemur í ljós að upplifun hans var ekkert einsdæmi. Breski fræðimaðurinn Hugh Trevor-Roper sem hefur fjallað ítarlega um galdraofsókn- imar í Evrópu, gefur nokkuð góða mynd af þeim hugarheimi sem bæði kirkjunnar menn og aðrir, hrærðust í á þeim tíma sem galdramálin stóðu yfir. Hann spyr sig meðal annars að því hversvegna fjöldi meintra galdramanna játaði á sig gríðarlegar orgíur með djöflum og púkum, oft að því er virtist án þess að tangir eða önnur pyntingartæki kæmu við sögu. Hann segir: Þá beindi geðveilt fólk og móðursjúkt í öllum kristnum löndum ofskynjunum sínum að per- sónu djöfulsins, rétt eins og dýrlingar og dul- hyggjumenn beindu sínum að guði eða Kristi. Þannig voru hinar frómu meyjar, sem vígt höfðu líf sitt guði, í eigin reynslu brúðir Krists; en hinum miður frómu nomum, sem unnið höfðu djöflinum eiða, fannst þær vera hjákonur hans. Þær frómu, svo sem heilög Teresa eða frú Guyon, urðu frá sér numdar í eldlegri sælu, sem smó um þær gegnum merg og bein, þegar þær þrýstu sér að andlegum líkama frelsara síns. Hinar ófrómu, Francoise Fontaine og hundruð annarra, sem stóðu í sömu sporum fyrir dómurunum, höfðu engzt án sælu undirfargi svartskeggsins mikla, sem „otaði frá lendum sér ófögnuði nokkrum, köldum sem ís . . .“ Sálsýkisreynsla hinna fyrmefndu varð háleitur vitnisburður í guð- fræði kirkjufeðranna, og jafnvel voru þær teknar í heilagra manna tölu; en sálsýki hinna síðamefndu féll á miður hentugan veg... þær gátu endað á bálinu.)3 Lýsingar síra Jóns Magnússonar á því hvemig djöfulskrafturinn smýgur um æðar hans og rænir hann öllu þreki eru að mörgu leyti sambærilegar við þá trúarreynslu sem Trevor-Roper gerir hér að umtalsefni. Fjálgleg frásögn hans af krankleika sínum gefur ágæta innsýn í andlegt og líkamlegt ástand Islendings við þær veraldlegu- og menningarlegu aðstæður sem ríktu hér frá miðbiki 17. aldar og ffam á þá átjándu. Menn hafa drjúgum gengið í smiðju geð- læknisfræðanna í leit að skýringum á því sem gerðist í galdrafárinu. Margar þær frá- sagnir sem til eru af játningum meintra galdrakinda sem og líðan þeirra er töldu sig hafa orðið fyrir barðinu á þeim, gefa enda fullt tilefni til sálskýringa. Líkt og Trevor- Roper hafa fræðimenn hallast að kenning- um um sefasýkisfaraldra (hysteríu) sem gripið hafi um sig í samfélögum stórum og smáum.4 Sömuleiðis hafa verið leiddar lflc- j 38 TMM 1992:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.