Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Page 41

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Page 41
ur að einstaklingsbundinni sálsýki bæði ákærðra og sækjenda í vissum tilfellum. í inngangi sínum að Píslarsögu síra Jóns Magnússonar heldur Sigurður Nordal því fram að trúarlíf síra Jóns hafi verið mjög sérstætt. Maðurinn hafi þanið næmi sitt til hins ýtrasta svo nálgaðist trúarlega full- komnun. Þegar slíkt trúamæmi fer saman við erfið ytri skilyrði er hætta á ferðum. Ætla má að einangrun sveitaprestsins, hörð lífsbarátta og smæð samfélagsins hafi kall- að ffam bælda togstreitu, jafnvel hatur á guði sem manninum er þó ómögulegt að viðurkenna og getur jafnvel ekki skýrt án þess að leita út fyrir sjálfan sig og fmna sökudólg. Bænastagl síra Jóns og trúarklif- un em skýr sefjunareinkenni. Hann virðist á stundum líta svo á að honum hafi verið varpað frá augliti Guðs í hendur djöfulsins og fær ekki skilið hversvegna. Sá mögu- leiki að hann sé óverðugur guðsþjónn, ásækir hann stöðugt og magnar upp vanlíð- an hans: ... þegar hjartað varð ekki einasta uppþurrkað öllum vökva nokkurrar náðar hjá Guði, held- ur og einninn stálsett, svo að hveminn sem eg vildi bera mig að að andvarpa eða eftir leita, þá veittist mér ekki hugarhægð hin minnsta, — sem eg væri frá Guði aldeilis útflæmdur og burtkastaður, svo mér virtust allar skepnur við mig í fullum fjandskap, svo að djöfullinn vildi mér til þess koma að tilbiðja sig, en lasta drottinn, fyrst mér veittist engin hjálp af hön- um. (27) Djöfulleg ásókn En lítum þá nánar á það hvemig píslimar heija á séra Jón. Oftar en ekki er þess getið að hann heyrir innri raddir (54), eða að honum detmr „svoddan þanki í hug“ (52) eins og hann orðar það: Þar með inniféllu mér undarlegir, óhreinir og vondir þankar, móti hverjum ég í fyrstunni gleymdi að stríða með bæn og andvörpum til drottins. (54) Eitt helsta einkenni svokallaðs geðklofa (schizophreniu) er einmitt það þegar fólk tekur að heyra „raddir“ sem segja því fyrir verkum. Síðara stig sjúkdómsins og öllu alvarlegra er þegar sjúklingurinn fer að hlýða þessum röddum. Sú spuming hefur gerst áleitin hvort séra Jón Magnússon hafi í raun þjáðst af geð- klofa, vegnaþess að margt í píslarsögu hans gefur til kynna að einmitt þannig hafi verið komið fyrir honum. Ottar Guðmundsson, læknir hefur sett fram þá skoðun og segir að flestir nútímalæknar hefðu látið klerkinn fá geðlyf til þess að slá á hugmyndir hans og skynvillur.5 Síra Jón var mikill trúmaður og mjög leitandi, eins og glöggt má sjá af þessu riti hans. Hann á í innri átökum milli góðs og ills; þess sem rétt er og rangt. Átökin í sál síra Jóns birtast til dæmis þannig: Mjög þrálega var eg undirlagður mikilli fýlu og andstyggð, eftir andanum að tala, svo að Guðs heilaga orð varð í mínum huga (sjálfum mér viðbjóðslega) afbakað og til guðlastanar kreist og troðið, svo eg varð stundum önnur orð í samri meiningu að finna, en hinum, sem afbökuðust og rangfærðust, frá að víkja, svo eg skyldi ekki þeirri andstyggð mína aumu sál ofhlaða.(28) En það er ekki nóg með að Jón haft átt í innri baráttu heldur varð hann fyrir líkamlegum skynjunum sem honum var ofraun að túlka á annan hátt en trúarlegan og tilfmningaleg- an. Og það gerðist einmitt á þeim stundum sem hann var við það að snúa sér til drottins: TMM 1992:4 39
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.