Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Page 56

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Page 56
anna leitar Halldór, ekki af því að hann sé að hverfa frá róttækri þjóðfélagsgagnrýni, heldur af því að hann vill finna skáldsög- unni nýjan og beinskeyttari búning; hann vill læra þær aðferðir sem hrífa, t.d. í sex- hundruð ár! Atómstöðin Meðan íslandsklukkan staðfestir sem há- epískt verk að Halldór er tekinn til við að nýta sér bókmenntaarfinn við endurskoðun á formi skáldsögunnar, þá m.a. með því að skipa hinum ytra atburði og myndrænum lýsingum í öndvegi, endurspeglar Atóm- stöðin, sem birtist 1947, með öðrum hætti afstöðu hans til arfsins og glímu hans við skáldsöguna á 5. áratugnum.37 í ritdómi um Atómstöðina 1948 segir Jakob Benedikts- son að bókin sé „mynd sem er máluð sterk- um litum nútímalistar“ og tækni hennar sé „í ætt við kvikmynd“ þar eð atburðum sé ekki lýst í óslitinni röð.38 Undir þau orð Jakobs skal hér tekið enda vitna t.d. hin tíðu sviðskipti í bókinni og sífellt rof frásagnar- innar sýnilega um klippitækni (montage- tækni) sem Halldór nýtir seinna í enn ríkari mæli í Gerplu — og er reyndar ekki aðeins einkenni kvikmynda heldur og fornra ís- lenskra sagna.39 En það er kanski ekki klippitæknin ein og stök sem mestu varðar íAtómstöðinni, heldur hitt hvemig sagan öll felur í sér sjálfstæða nútímalega úrvinnslu úr menningararfleifðinni, sýnir ótvíræða kosti hennar í ákveðnum atriðum en setur um leið á oddinn að: „Það er skammgóður vermir að lifa á arfi.“40 Andspænis nútíma- skáldinu örvilnaða sem ég minntist á hér að framan stendur sögumaðurinn Ugla, sem er að reyna að finna sínar eigin leiðir í lífínu, þ. á m. í tjáningarhætti, og fólkið í heima- högum hennar, í Eystridal, sem lifir enn með hinni fomu frásagnarhefð og í anda hennar. Ugla gemr ekki sagt sína sögu með aðferðum hinnar fomu sagnalistar þar sem sú regla gildir t.d. að „ættir manns má rekja en hug sinn aldrei.“41 Hún verður að skapa sér nýja aðferð þar sem hún, í samhljómi við tímana sem hún lifir á, vinnur úr þeirri aðferð sem hún er alin upp við. Eða m.ö.o. frásagnartækni fyrri alda nýtist ekki nú- tímamönnum nema í krafti endursköpunar og nýsköpunar. í Atómstöðinni birtast hins vegar kostir sagnahefðarinnar sem vænta mátti m.a. í afstöðunni til áheyrenda og yrkisefnis. Meðan atómskáldið er ófært að tjá reynslu sína svo að hún nýtist öðmm, hafa fomsög- umar slík áhrif á bænduma í Eystridal, að þeir hrærast í heimi þeirra og em eitt með hetjum þeirra. Reyndar er líf bændanna með fornsögunni tvíbent — þeir líta á sam- tímastjómmál sem eina „tegund fomsögu“, lifa í fátækt og gera ekkert til að breyta aðstæðum sínum.42 Á framboðsfundi fyrir kosningar skilja þeir alla frambjóðendur og fyrirgefa þeim öllum nema „kommúnistan- um“ sem vekur athygli á bágum kjömm þeirra 43 Höfðu þeir hann gmnaðan um að vilja gánga í lið með þeim fenrisúlfi bundnum í sjálfum þeim sem hafði í heitíngum að rífa af þeim hið álímda skegg fomsögunnar, svipta þá ósýnilegum hjörvi kappans og dittó knerri þess víkings sem hleypur fjallshlíð eftir rollu og spyr Ugla, og vekur athygli á að hetjumar sem bændurnir eru eitt með, birta draum og óskir, blekkingu og tálsýn. í raun hefur íslensk alþýða aldrei átt neitt skylt við hetj- spreingmóður upp aldrei leit haf?4 54 TMM 1992:4 j
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.