Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Síða 68

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Síða 68
Hann hreinsaði listina gagngert og meðvit- að af allri tilfmningasemi vegna þess að Iist hans var í kjama sínum hugmyndalegs eðlis og stefndi að fullkominni einingu forms og hugmyndar. Og það er einmitt þetta hug- myndalega inntak í verkum hans, sem Arg- an telur að hafi haft mótandi áhrif meðal annars á hugmyndir þýska heimspekings- ins Hegels um eðli og þýðingu listarinnar: um þann grundvallareðlismun er væri á náttúrulegri og listrænni fegurð og um möguleg endalok listarinnar í því borgara- lega samfélagi sem var að mótast á hans tíma. Argan segir: Höggmyndalist Thorvaldsens, sem var í kjarna sínum heimspekileg, hafði áreiðan- lega meiri áhrif á sögu fagurfræðinnar en sögu höggmyndalistarinnar: höggmynda- list Thorvaldsens var vel þekkt í Þýskalandi á þeim árum þegar Hegel setti fram hug- myndirsýnarum fagurfræði í Berlín, og þar sem prófessorinn var vel vakandi yfír því sem gerðist í samtímanum er enginn vafi á því að hann hafði Thorvaldsen í huga þegar hann hélt fram hinni algjöru einingu forms og innihalds og skildi endanlega á milli þeirrar fegurðar sem felst í náttúrunni ann- ars vegar og listinni hins vegar. Argan bendir jafnframt á að misskilin gagnrýni samtíma okkar á verk Canova og Thorvaldsens stafi meðal annars af skil- ningsleysi á því líkingamáli sem fólgið er í sjálfum efniseiginleika marmarans. Hins vegar hafí Hegel skilið þetta mætavel, og þá ekki síst vegna kynna sinna af verkum Thorvaldsens. Þannig hefur Argan eftir- farandi tilvitnun eftir Hegel: í hárfínum og skjannahvítum hreinleika sínum jafnt og í litleysi sínu og glæsilegum léttleika fellur marmarinn fullkomlega að markmiðum höggmyndalistarinnar, ekki síst vegna þess hversu fínkornóttur hann er og hversu mjúklega hann endurvarpar birt- unni, þar sem hann sýnir hreina yfirburði yfir krítarhvítt gipsið sem er of bjart og gleypir í sig fínni blæbrigði. Með greiningu sinni á verkum Thorvald- sens og Canova hefur Argan sett verk þess- ara manna í samhengi við listasöguna og samtímann með nýjum hætti og ekki síst í samhengi við þá miklu umræðu, sem átt hefur sér stað á síðustu árum um hug- myndalist, póstmódemisma og „póst-sögu- lega“ list og endalok listarinnar og listasögunnar í hefðbundinni merkingu. Spumingin sem Argan varpar fram er í rauninni sú, hvort upphaf nútímalistarinnar sé einmitt að finna í verkum Bertels Thor- valdsens, og hvort hann hafi jafnframt séð fyrir sér endalok listasögunnar og litið á list sína sem slíkan endapunkt á sama hátt og heimspekingurinn Hegel leit á hið fmm- spekilega heimspekikerfi sitt sem full- komnun og endalega lausn á viðfangsefn- um heimspekinnar: Það sem var fullkomið, endanlegt og óum- breytanlegt var jafnframt dautt. Thorvald- sen gerði sér grein fyrir því að í vitund nútímans var fornaldarlistin dauð, að hún hafði stigið frá sögunni yfir á svið hugmyndarinnar. (...) Hið plastíska form átti að hafa sama gagnsæi og nafnið og vera staðgengill þess. Það stefndi því ekki að eftirlíkingu á fegurð hinnar fornu fyrirmyn- dar eða framlengingu hennar yfir í nútímann, heldur átti það að festa hana óumbreytanlega í kjama sínum, sem var eining forms og hugmyndar. Þannig var lisún hreinsuð af öllum þeim mælikvörðum hlutlægninnar, sem fyrr eða síðar hefðu leitt til þeirrar ýkjukenndu hermilistar sem j 66 TMM 1992:4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.