Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Qupperneq 106
skemmta? Er hann einungis að „lyfta lesendum
upp“? Með öðrum orðum: Er innihaldsleysið
allsráðandi og skáldskapurinn bara leikur?
Vissulega er gaman að hlæja. Og sjálfur hefur
höfundur þá vafasömu skoðun „að skáld geri
yfrið nóg gagn með því að skemmta lesendum
sínum“ sem fyrr segir en að vissu marki held ég
að sumar sögur bókarinnar gjaldi fyrir þetta
viðhorf. Tökum dæmi af sögunni „Eftir spennu-
fallið“. Þar er sagan um syndafallið klædd í
nútímalegan búning. Parið Aðalsteinn og Edda
(sbr. Adam og Eva) fá vinnu í sjoppunni Parad-
ís, þar sem aðbúnaður er allur stórkostlegur og
launin svimandi. Eigandinn heitir Guðni Welt-
schmerz (Guð), „virðulegur og föðurlegur mað-
ur á óræðum aldri" (30). I stað skilningstrésins
eru komnir tveir innsiglaðir og forboðnir epla-
kassar, í stað freistarans (höggormsins) er mað-
ur að nafni Ormur, sölumaður hjá sælgætis-
gerðinni Freistingu hf. Atburðir sögunnar end-
urspegla svo hina fomu goðsögn: Ormur freist-
ar Eddu til að opna kassana, og Aðalsteinn og
Edda eru rekin úr vinnunni, fjárhagslegt basl
byijar aftur, Edda elur tvíbura „með miklum
þjáningum" (44). Að auki leyfírhöfundur sérað
gantast svolítið með heilagleikann: Guð er
gerður að klæðskiptingi og látið er að því liggja
að Aðalsteinn (Adam) sé ekki faðir tvíburanna
(Kains og Abels væntanlega), heldur Ormur
(Djöfullinn sjálfur). Og sjálfur er Ormur svo
ráðinn til starfa í sjoppunni, í stað hinna brot-
treknu — dýrið situr eitt eftir í aldingarðinum.
I þessari sögu virðist mér sem leikur karni-
valsins beri skáldskapinn ofurliði. Samspil goð-
sagnar og samtíma verður ekki skapandi á sama
hátt og til dæmis samspil þjóðtrúar og samtíma
í „Dýrinu“. Goðsögnin nær ekki að renna saman
við vemleika sögunnar og gefa honum merk-
ingu.
Tvöfalt líf
Sögurnar í Ó fyrir framan gerast innan hins
borgaralega vemleika, og borgaraleg staða er
beinlínis eitthvað sem unnið er með í mörgum
þeirra. Húmorinn í nokkmm eldri sögum Þór-
arins felst í því að persónur, sem annaðhvort
hafa gegnt „virðulegri“ stöðu ellegar eiga eftir
að gegna slíkri stöðu, eru settar í hlálegar að-
stæður. Benda má á söguna „Ur endurminning-
um róttekjumanns I, Ég var eyland“, þar sem
fyndnin felst ekki síst í því að róttekjumaður
skuli lenda í þeim hremmingum sem lýst er í
sögunni. Og í Margsögu er sagan „Eigandinn“
en þar segir frá „sálarháska" og klofningi sem
menntaskólakennari lendir í eftir að hafa „stol-
ið“ reiðhjóli: „Það hafði í raun verið talsvert
álag fyrir mig að lifa þessu tvöfalda lífi allan
veturinn. Annars vegar heiðarlegur mennta-
skólakennari og fjölskyldufaðir, hins vegar
ósvífmn reiðhjólaþjófur og lygari“ (93). Þetta
heldur áfram í Ó fyrirframan. í „Klámhundin-
um“ til dæmis felst húmorinn ekki síst í því að
hundurinn kemur virðulegum góðborgurum í
vandræði með hnusi sínu af kynfærum, saman-
ber til dæmis boðið sem ráðherrahjónin eru
viðstödd á heimili Bjarna (94).
Hin félagslega staða skiptir miklu máli í Ó
fyrirframan. Persónumar eru ekki síst það sem
þær vinna, vinnan verður umgjörð fáránleikans.
Lúlli í sögunni „Lúlli og leiðarhnoðað" kemur
til bæjarins til að „verða eitthvað“ (læra iðn-
grein) og flosnar upp úr hverri greininni af
annarri uns hann finnur sig loks í múrverki.
Aðalsteinn og Edda í „Eftir spennufallið“ detta
í borgaralegan lukkupott þegar þau fá vel borg-
aða vinnu og geta fjárfest í íbúð, en lenda svo
aftur í basli þegar þau eru látin fara. Sigurlaug
Kjögx í „Opinskánandi“ er kennari sem verður
„landsfræg á einu kvöldi“ (81) þegar hún byrjar
með sjónvaipsþátt, en flýr síðan undan „opin-
skáurn" viðtölum út á land þar sem hún gerist
kennari aftur, í þetta sinn í litlum grunnskóla í
Strandasýslu. Sögumaðurinn Sigurður Kjögx í
sögunni „Dundi“ missir fótanna og leiðist út í
drykkju af makalausu tilefni (Dundi sjálfur tek-
ur jafnframt hamskiptum í þeirri sögu saman-
ber orð Sigurðar: „Þvílík umbreyting á einum
manni. Hamskipti var sennilega betra orð“
(115)). Umskiptin eru áþreifanlegust í sögunni
104
TMM 1992:4