Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1994, Page 113
Það má einnig benda á að annar kafli þar sem hann er á kafi í hugleiðingum um sjálfan sig gerist í sveitinni hjá ömmu Sigrúnar þegar þau eru þar í heimsókn þar sem hann liggur útaf í blíðviðri í blómskrýddri hlíð. Þessar andstæður, sveitin og sjórinn, sveitalífið og sjó- mennskan, gera hvorttveggja að undir- strika andstæðurnar milli fjölskyldna hans og hennar og andstæðurnar í hans eigin sálarlífi. Samfélagssýn Útaf fyrir sig er ekki um breiða samfé- lagslýsingu að ræða í þessari skáldsögu. Þó er einn hópur fólks sem nokkuð kemur við sögu sem má ef vill líta á sem einskonar fulltrúa samfélagsins. Er þetta hópurinn í kringum hið mikla kvik- myndafélag sem er í þann veginn að fara að reisa kvikmyndaver í samvinnu við bandarískan kvikmyndarisa. Þar koma mest við sögu Axel frændi Ingu og fyrr- um skólabróðir Hauks, leikararnir Bjarni og Konráð, kvikmyndaleikstjór- inn Sólveig og búningahönnuðurinn Ásdís. í nokkrum köflum er þetta lið dregið sundur og saman i háði og eru sumir þeir kaflar óborganlegir, eins og t.d. þar sem segir frá opnu og einlægu glansmyndaviðtölunum við þetta fólk. En að lokum hrynur veldi kvikmynda- félagsins og eftir standa svik og prettir plús tugmilljóna sukk í flottræfilshætti. Þó hér sé verið að gera meinlega út- tekt á „íslenska kvikmyndaheiminum“ þá liggur þarna fyrst og ffemst að baki mögnuð umfjöllun um þá hræsni og sýndarmennsku, yfirdrepsskap og lodd- arahátt sem tröllríður okkar þjóðfélagi um þessar mundir. Umræða Hér að framan var vikið að því að höf- undur er óhræddur við að láta persónur sínar ræða málin og hafa skoðanir. Það er ekki þar með sagt að þær skoðanir séu höfundarins, en að halda það er gryfja sem óreyndir gagnrýnendur falla ótrú- lega oft í. Ég segi að höfundur sé óhræddur vegna þess að um langa hríð hefur það verið þrálát klisja margra sem fjalla um bækur að hrópa predikun, predikun, um leið og einhver persóna fer að þenja sig á síðum skáldsögu um viðkvæm og heit mál, og dæma viðkom- andi verk dautt og ómerkt. Auðvitað verður slík umræða að vera í lífrænum tengslum við heild verksins, en að for- dæma alla merkingarbæra umræðu í eitt skipti fyrir öll er fásinna. Það er vikið að fjölmörgum málefn- um í sögunni og ástæðulaust að fara að búa til einhverja skrá um það, en það er tvennt sem mér finnst mest áberandi, pólitík og kynlíf. Pólitísk umræða kemur ffam í gegn- um Rúnar og þó einkum í ffásögn hans af vini sínum Jóhannesi en báðir voru þeir sanntrúaðir kommar á árunum uppúr 1950 og trúðu á Sovétríkin. Báðir ganga þeir af trúnni, Jóhannes þegar hann fer á flokksskóla í Austurvegi en Rúnar við innrásina í Ungverjaland 1956. Báðum er þetta mjög erfið reynsla sem situr drjúgt í þeim. Kjarni þessarar umfjöllunar er þó viðureignin við blekkinguna og hvernig henni er sífelld- lega beitt til þess að afvegaleiða gott fólk. Svipað má segja um kynlífið sem víða er tekið rækilega fyrir í sögunni, þar er öðru fremur verið að kljást við blekking- una um ffjálst kynlíf. Reyndar er það á einum stað kallað „ópersónulegt kynlíf‘, sem er í góðu samræmi við það megin- viðhorf að tilfinningalaust kynlíf sé ekki annað en merkingarlaus útrás fyrir botnlausa greddu sem veiti engum neitt. I þessu samhengi má minna á eina af hjásvæfum Hauks, 39 ára lækni með óseðjandi brókarsótt, sem safnar tittl- TMM 1994:1 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.