Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Blaðsíða 113

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Blaðsíða 113
ÞJÚÐ í HLEKKJUM TUNGUMÁLSINS sonur eins bræðranna tólf eða þrettán ára gamall. Þegar talið barst að spilamennsku afans sagði sá stutti: „Mamma var ekki einu sinni búin að dingla þegar hann var búinn að gefa.“ Bræðurnir litu allir brúnaþungir á strák og þrumuðu hver ofan í annan: „Mamma var ekki búin að hvað?“ Stráksi endurtók setninguna, algjörlega bláeygður og grunlaus um eigin glæp. Þá varð uppi fótur og fit vegna kæruleysislegs orðalags unglingsins og hófu nú bræðurnir langa fyrirlestra, hver í sínu horni, um ambögur þær og málfarsglæpi hverskonar sem æskan nú til dags gerir sig stöðugt seka um og grefur undan þeirri gullaldartungu sem íslenskan er. Að lokum hreytti einn bræðranna út úr sér með þjósti: „Það var aldrei nein dyrabjalla heima, fólk bankaði eða gekk bara beint inn.“ Ég tel víst að næstum allir þeir sem voru inni í stofunni þegar þessar umræður fóru fram hafí misst af inntakinu í hinu skemmtilega innskoti stráksins. Hann hafði heyrt mömmu sína segja frá því að þegar hún kom keifandi upp að húsi afa gamla akandi barnavagni á undan sér og sá gamli sá hana út um eldhúsgluggann, hefði hann flýtt sér að gefa í spil til að enginn tími færi til spillis. Mér er til efs að stráksi noti sögnina „að dingla“ framar, að minnsta kosti gerir hann það ekki þegar fullorðnir heyra til. En hann gekk hinsvegar hnípinn út úr stofunni eftir þessa tilraun sína til að leggja orð í belg og fmnst hann örugglega ekki kunna neitt í íslensku. Þar sem undirrituð er sennilega búin að brenna allar brýr að baki sér og mun héðan í frá vera brennimerktur landráðamaður, sé ég mér ekki annað fært en að bera hönd fýrir höfuð mér. Menn skyldu ekki misskilja orð mín sem svo að mér fmnist að allir eigi að tala samhengislaust í belg og biðu, nota útlend orð og orðasambönd óbreytt og gleyma í rólegheitum að beygja eftir kynjum og í föllum. Það hlýtur líka að vera sjálfsagt mál að leiðrétta börn á máltökuskeiði og unglinga effir hendinni en þó ekki þannig að úr verði niðurlægjandi leiðindi. Islenska er og á að vera tunga sem ber í sér hug- myndaauðgi, frjósemi og endurnýjun. Megi ekki taka ný orð og jafnvel ný mannanöfn inn í íslenskuna og laga að beyginga- og hljóðkerfinu, sitjum við uppi með gelda tungu. Sem betur fer held ég að málhreinsunarmönnum geti aldrei orðið að þeirri ósk sinni að allur almenningur tjái sig eingöngu með þeim orðum sem þeir telja nógu göfugrar ættar til að fá inngöngu í orða- forðann eða með hinum fagra norðlenska framburði. Og er það ekki einkennilegt að þjóð sú sem með stolti kallar sig „sagna- þjóðina“ og er hreyknust yfir þeim bókmenntaarfi sem fræðimenn telja margir að sé kominn beinustu leið úr munnlegri geymd, skuli telja talmál vera hálfgert plat en hið skrifaða orð eina raunverulega alvörumálið? í fyrri ádrepu sinni segir Ólafur Halldórsson um samtal Úlfhildar og Steinunnar: TMM 1998:1 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.