Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Blaðsíða 97

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Blaðsíða 97
„DORDINGULL HÉKK ÉG í LÆBLÖNDNU LOFTÍ“ Kristján telur sig geta greint í hverju kreppa ýmissa fræðigreina liggur. Gjána milli fræðanna og fólksins í landinu megi rekja til þess að hinir lærðu eiga „til að lokast inni í fílabeinsturni eða fiskabúri" (a 263). Ég hefði haldið Shakespearefræðinginn, sem Kristján setur fleðuffæður- unum til höfuðs, líklegri íbúa filabeinsturnsins en þá kennara sem svarað hafa kröfum samfélagsins með námskeiðum um svartar skáldkonur. Þeim fyrrnefnda hefur löngum verið lýst (og oft að ósekju) sem fulltrúa rykfall- inna fræða. Erindi Kristjáns snýst að miklu leyti um samfélagslega velferð og því má spyrja hvort það sé svo óskiljanlegt að svartir nemendur vilji lesa bækur eftir svarta rithöfunda um svartar persónur? Mér þætti gaman að sjá hvernig Kristján tæki þeirri hugmynd að kenna aðeins bækur danskra eða norskra höfunda um íslenska menningu og þjóðerni. Menn geta rétt ímynd- að sér hversu alvarlegar afleiðingar slíkt hefði fyrir sjálfsvitund íslendinga. Námskeiðin sem Kristján gagnrýnir svo harðlega eru afleiðing áratuga bar- áttu svarta minnihlutahópsins fyrir félagslegu og lagalegu jafnrétti. Fyrir réttum fjörutíu árum var aðskilnaðarstefnan landlæg í suðurríkjum Banda- ríkjanna. Svartir voru útilokaðir fr á opinberu samneyti við hvíta, fengu ekki aðgang að sömu veitingastöðum, langferðabifreiðum og háskólum. Svona mætti lengi telja. Aðskilnaðarstefnan mótaði vitaskuld einnig námskeiðaval og kennslu menntastofnana og ekki var farið í launkofa Tómasar ffænda með að sá frjálsi húmanismi sem þar var prédikaður tilheyrði aðeins útvöldum. Fræðimanninum ber skylda til að spyrna við þeirri hugmyndafræði sem útilokar stóra samfélagshópa í nafni almannahags. Slík menningarsýn verð- ur aldrei boðuð í nafni raunverulegs frelsis og er í raun réttri aðeins andlegur þrældómur. Margir af þeim bókmenntakennurum sem Kristján deilir á móta kennslu- fræði sína á forsendum sem hann heldur á lofti í erindi sínu. 1 menningar- fræðum er þannig rík áhersla lögð á að menntamaðurinn haldi úr filabeinsturninum út í samfélagið. Sem ,pólitískur baráttumaður’ berst hann gegn ,kæfandi hugmyndafræði' og greinir m.a. þau hagsmunakerfi sem móta akademíuna. f áherslunni á tengsl þekkingar og valds verður menningar- fræðingurinn að koma sér upp gagnrýnni þekkingu, en um leið má hann ekki gleyma að gagnrýna þessa þekkingu sína. Margir álíta eflaust slíkar kenningar um félagslegt hlutverk fræðimanna barnslega einfaldar í upp- hafhingu sinni. En er ekki ósanngjarnt að tengja þær félagslegu sinnuleysi og ,sjálfsgælusýn‘ eins og Kristján gerir? Bandaríski marxistinn Fredric Jameson segir í grein sinni „On Cultural Studies“ öfund og viðbjóð vera helsta einkenni í samskiptum ólíkra menn- ingarhópa (Jameson 629-33). Henry Giroux hefur leitað leiða til þess að bæta úr skilningsleysinu með kennslufræði þar sem þau neikvæðu sam- TMM 1998:1 87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.