Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Blaðsíða 57

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Blaðsíða 57
í GUÐLAUSU FJAÐRAFOKl kringumstæðum sem um er rætt, spyrjandi myrkranna á milli um samband skynjunar og tilfmninga. Og hver er sköpun slíkrar persónu? Hér verður saga mannsins ekki rakin, heldur slegist í för með honum frá og með heimsókn hans til Jóa stóra sem er óbrotinn alþýðumaður á nútíma- vísu og fyrrverandi vinnufélagi mannsins. Um eða eftir miðnætti, eftir að hafa gist fangaklefa í tvígang, er hann kominn þangað í gleðskap, en Jói stóri býr með vini sínum, Jóa litla, konu þeirra beggja og barni þeirra allra. Og hvað er að sjá? Nú horfði maðurinn tómlega á konuna sem lá í hnipri við hlið félaga Jóa stóra, félagi Jói litli lá endilangur hjá konunni klæddur síðum baðmullarnærbuxum. í sama augnakasti var drengurinn að leika sinn fáránlega leik. Hann sprautaði kóki á rassinn á móður sinni. Maður- inn kom engri hugsun að því sem fyrir augun bar. Félagi Jói litli kreppti undir sig fæturna og konan gerði það sama eftir að drengur- inn sprautaði undir kjólinn hennar sem flettist upp um lærin, og maðurinn horfði áhugalaus og daufeygður á fitubrjóstin sem spruttu fram úr hnésbótunum útvaðandi í kókdrykk. „Þessi kös,“ hugsaði maðurinn og niður í huga hans laust í eldingu mynd af vömbum innan úr nýslátruðu, sjúku sauðfé sem fleygt hafði verið á ruslahaug. Þar lágu vambirnar blóðugar og óhreinar og hálf- sprungnar innan um bréfaskran, tætlur úr dagblöðum og bókum og tómar flöskur.“ (144) í sófanum sitja maður, kona og barn, þetta sem manni ber að horfa á en taka eldci með í reilcning fegurðarinnar, eins og Jói stóri ráðleggur vini sínum: Heyrðu, þú ert ekki nándar nærri bjartsýnn, drengur. Líttu í kringum þig og festu augu á fegurðinni og hættu að sýta með sút í augum. Allt sem við sjáum er eintóm fegurð náttúrunnar og lífsins. En sófinn þarna er ómark, taktu hann ekld með í reilcninginn. (145) Og skömmu síðar ítrekar vinurinn varnarorðin: Heimar hníga og rísa sem bylgjur eða boðaföll. Haltu því varlega á hin innri höf. En manninum ber að varðveita í sér óbilandi trú og bjartsýni, hvernig sem sjóveðrin kunna að velta á hann boðum. Láttu ekki - og taktu eftir - hillingar hugans blekkja augað. Sófinn þarna er söguleg nauðsyn. Sjáðu það sem þú sérð en ekki það sem þú hugsar. Jói stóri þurrkaði sér um munninn með flötum lófa og bætti við: Nú röfla ég, en hugurinn á að vera víðsýnn og sjá ekkert annað en það sem blasir beint við sjóninni, í stað þess að túlka sífellt og bæta við veruleikann með hugarsýnum. Ylckur menntafólldnu hættir til þess. Nei, farið að eins og nýi maðurinn, mannkyn framtíðarinnar, sem hefur vaxið þegar úr grasi í sólarupprásarlöndunum í austri. (145) TMM 1998:1 47
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.