Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 115

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1998, Page 115
ÞJÚÐ í HLEKKJUM TUNGUMÁLSINS Nú vill svo skemmtilega til að sama dag og TMM 4/97 féll inn um bréfalúguna mína sigldi annað ágætt tímarit í kjölfarið. Það rit heitir Kaþ- ólska kirkjublaðið. Þetta blað les ég reglulega í þeirri von að öðlast eitthvað af því kristilega umburðarlyndi sem mér finnst mig sjálfa, og því miður marga aðra landa mína, skorta tilfinnanlega. Ég veit ekki hvort þessi viðleitni til sjálfsþroska hefur eitthvað upp á sig enda er ég yfirleitt ósammála því sem stendur í blaðinu. Engu að síður er þar stundum eitt og annað gott og gagnlegt sem kemur mér til umhugsunar um gátur lífsins. í fyrrnefndu blaði er viðtal við erkibiskup einn í Hollandi, Simonis kardínála, sem heimsótti ísland íyrir skömmu. í viðtali segir þessi umboðsmaður æðri máttarvalda réttilega að samfélag okkar sé gagnsýrt af efnishyggju og sé það meðal annars vegna skorts á „salti Krists.“4 í ádrepu sinni segir Ólafur Halldórsson jafn réttilega og Simonis kardínáli að íslensk þjóð sé á hraðferð í auðvaldsskipu- lagið. Hins vegar er helst á honum að skilja að það sé þeim „guðlösturum11 að kenna sem ekki tilbiðja íslenska tungu nógu mikið. Sjá ekki allir líkinguna við trúarbrögðin? Allir íslendingar hljóta að vilja vanda mál sitt, tala jafn skýra og greinar- góða íslensku og þeim er unnt og nota jafnframt blæbrigðaríkt mál. Þetta getur þó tæpast þýtt að ekki megi taka eitthvað traustataki úr öðrum málum eða jafnvel hreinlega þórodda telji menn ástæðu til. Það er afar hæpið að mögulegt sé í þeim sífellt minnkandi heimi sem við búum í, þar sem fólk sem hefur ólíkar tungur að móðurmáli á í stöðugt nánari og meiri samskipt- um, að tungumál smáþjóðar haldist gjörsamlega óbreytt. Islenskan hefur breyst í tímanna rás eins og aðrar tungur og hún kemur til með að halda áfram að breytast og þróast eftir þörfum þeirra sem hana tala hvað sem hinum dreissugu lögregluþjónum í málfarslögreglunni finnst. Haldi tungan áfram að vera tilbúin að taka við þeim nýju hugtökum og hugmyndum sem til landsins streyma og leyfi mælendunum að spreyta sig á að laga erlend orð að íslensku mál- og hljóðkerfi, eru miklu meiri líkur á að hún haldi velli. Að öðrum kosti gæti svo farið að íslendingum fýndist hreinlega miklu auðveld- ara að skipta bara alfarið yfir í ensku eða hverja þá tungu sem verður „lingua franca“ heimsins í framtíðinni. Þar með myndum við tapa stærstum hluta þess þjóðernis, sem málhreinsunarmönnum og flestum okkar hinna líka, er svo í mun að við varðveitum. Hins vegar höldum við alveg tengingunni við menningu og bókmenntir okkar, fornar sem nýjar, þrátt fyrir að eitt og eitt útlent orð eða hugtak slæðist inn í orðaforðann og geri sig heimakomið ef það gerist á forsendum íslenskrar tungu. Það er mér ljóst að margir eru mér ósammála. Ég vonast þó til að mér verði talið til afláts að greinin sé ekki á allan máta afleitlega orðuð og að það verði kannski til þess að menn afgreiði ekki hugsunina sem alslæma. TMM 1998:1 105
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.