Dagrenning - 01.04.1951, Qupperneq 3

Dagrenning - 01.04.1951, Qupperneq 3
DAGRENNING 2. TOLUBLAÐ 6. ÁRGANGUR REYKJAVÍK APRÍL 1951 Ritstjóri: JÓNAS GUÐMUNDSSON, Reynimel 28, Reykjavík. Sími 1196. Athyglisverðir heimsviðburSir ÖRLÖG PERSÍU. I greininni „Hvers má vænta í Asíu?“, sem birtist í 28. og 29. hefti Dagrenning- ar var frá því slcýrt, að samkvæmt spádóm- um Biblíunnar ættu Persar að verða ein þjóðin í liði „höfðingjans yfir Rós, Mesek og Tubal" þegar til úrslitaátakanna drægi við „endalok tímabilsins", þ. e. við alda- hvörf þau, sem nú nálgast óðum. Þar stendur: „Ekki mun lokaárás Gógs hefj- ast fyrr en Sóvietríkin hafa á einhvern hátt innlimað Persíu hina fomu í ríki sitt.“ (29. h. bls. 12.) Nú eru þessi átök hafin opinberlega. Hinn 15. marz s. 1. var for- sætisráðherra Irans, Rasmara hershöfðingi, myrtur í musteri einu í Teheran, höfuð- borg írans. Morðinginn er sagður vera „of- stækisfullur þjóðernissinni“ úr „öfgatrú- arflokki“. Rasmara hershöfðingi var mjög andvígur nánu sambandi við Sóvietríkin og vildi treysta böndin við Vesturveldin, sérstaklega við Bandaríkin. Enginn efi leikur á því í hugum þeirra manna, sem nokkuð þekkja til heimsstjórnmálanna, að á bak við morðið á Rasmara hershöfðingja standa rússnesk áhrif. Fáum dögum síðar var öðmm háttsettum stjóm- málamanni í íran, Dr. Zanganeh, sýnt banatilræði, og er hann nú látinn af því sári, er hann hlaut. Tilræðismaðurinn var stúdcnt úr sama „öfgaflokknum" og sá, er myrti Rasmara forsætisráðherra. Ástæðan fyrir morðum þessum er talin vera óánægja í Iran með brek-íranska olíu- sanminginn, sem er Persurn mjög óhag- stæður. Áróðursmenn í þjónustu Rússa blása mjög að þeim glæðum og krefj- ast þjóðnýtingar, það er ríkisrekstrar, á olíulindunum, en við það mundi að sjálfsögðu hinn óheyrilegi gróði alþjóðaauðvaldsins, af námum þessum liverfa, og þá mundu Rússar fá tækifæri til að „kaupa“ olíu Irans af ríkisstjórn- inniþar. Fari svo, er sterkustu stoðinni kippt undan þeim leifum af veldi Breta, sem enn eru eftir við austanvert Mið- jarðarhaf. Samspil alþjóða-auðvaldsins og alþjóða- kommúnismans er greinilegt í átökunum í Iran, og þar er því vopni, sem hvortveggja þessi félagsskapur notar ekki ósjaldan, þeg- ar annað er útilokað — þ. e. morð á hátt- settum og öflugum andstæðingum — óspart beitt nú. Stórfelld verkföll sigla nú í kjölfar morðanna og í landinu ríkir raunverulega DAGRENNING J

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.