Dagrenning - 01.02.1952, Qupperneq 47
Di. ADAM RUTHERFORD:
HARMAGEDON
Orustan á hinum mikla degi Drottins allsherjar árin 1955-1956>
opinberuð í Pýramidanum mikla (Steinbiblíunni)
„Því að þeir eru djöfla-andar, sem-----ganga út til konunga allrar heims-
byggðarinnar til að safna þeim saman til STRÍÐSINS Á HINUM MIKLA DEGI
GUÐS HINS ALVALDA. — SJÁ ÉG KEM EINS OG ÞJÓFUR; sæll er sá sem
vakir og varðveitir klæði sín.--------
Og þeir söfnuðu þeim saman á þann stað, sem á hebresku kallast HARMA-
GEDON.
Og sjöundi engillinn helti úr skál sinni yfir loftið, og raust mikil kom út
úr musterinu, frá hásætinu og sagði: ÞAÐ ER FRAM KOMIÐ.“
Opinb. 16, 14.—17.
Samkvæmt spádómum Biblíunnar og Pýramídans mikla eru árin 1953—1956 tíma-
bil hinna mestu þjóðfélagslegu, stjórnmálalegu og trúarlegu umskifta allra alda, og þaff
eru þessi umskifti, sem núverandi ringulreið heimsmálanna, og raunar öll rás viðburð-
anna siðan 1914, hefir stefnt að. Á þessum árum mun „þrengingin mikla“, sem talað er
um í spádómunum, „orustan á hinum mikla degi Drottins allsherjar“ — Harmagedon —
fara fram. Þetta mun verða hin mikla sprenging, sem þyrlar upp hinni gömlu skipan,
en að lokum mun það, eigi að síður, reynast líknarráð við hinn hrjáða heim, undirbún-
ingur betri tíma og hátíðlegt upphaf þúsundáraríkisins sjálfs. Tilgangurinn með þessu
riti er hvorttveggja í senn: að bera fram sannanir í þessum málum og benda á, hvernig
búast skuli undir „hinn mikla dag“ og hver skylda vor er, eins og högum er háttað.
Því hefir verið spáð, að yfirstandandi tíma-
bili mundi ljúka með meiri „hönnungatíð"
en áður hefði þekkst. Spámaðurinn Daníel
sagði það fyrir á 6. öld f. Kr. og síðan var það
endurtekið á í. öld hins kristna tímabils,
af Frelsaranum sjálfum, sem einnig lét svo
um mælt, að annað eins myndi aldrei koma
fyrir aftur. í Daníelsbók, 12. kap. 1. v., stend-
ur: „Og það skal verða svo mikil hönnunga-
tíð, að slík mun aldrei verið hafa frá því að
þjóð varð til og allt til þess tíma.“ En Jesús
segir: Því að þá mun verða svo mikil þreng-
DAGRENN I NG 41