Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Blaðsíða 44
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 201544
reynslA æTTleiddrA bArnA á íslAndi AF sKólUm Og sAmFélAgi
landi. Ég er bara montin af því.“ Sum sögðust þó lítið hugsa um upprunalandið. Ein
stúlkan sagðist aðallega hugsa um upprunalandið þegar hún væri spurð um uppruna
sinn:
Rannsakandi: Ertu stundum að hugsa um að þú sért frá [upprunalandinu]?
Stúlka: Ja, helst bara þegar einhver er að spyrja mig.
Misjafnt er hvort börnin hafa áhuga á upprunalegum foreldrum sínum, en nokkur
segjast hugsa um þá og vilja hitta þá. Einn drengur sagði: „Ég vil sjá mömmu mína,
en ég held að það sé ekki hægt.“ Ein stúlka sagðist ekkert vita um foreldra sína í [upp-
runalandinu] og bætti við: „Mig langar ekkert að vita meira um þau.“ Önnur stúlka
sagði að hún vildi hjálpa foreldrum sínum í upprunalandinu, gefa þeim peninga svo
þau yrðu ekki lengur fátæk.
Mat kennaranna
Niðurstöður viðtala við kennarana eru að mestu leyti samhljóða niðurstöðum viðtala
við börnin. Þær benda til þess að flestum barnanna gangi vel í skóla, bæði í námi og
félagslega. Í viðtölum við kennarana kom fram að mörg barnanna séu mjög sterk í
námi og sum þeirra skari þar fram úr. Einnig gátu kennararnir þess að börnin fengju
mjög góðan stuðning frá foreldrum sínum, eins og fram hefur komið. Börnunum hefur
flestum einnig vegnað vel félagslega að mati kennaranna. Í flestum tilvikum töldu
kennararnir að framtíð barnanna væri björt og að þeim væru allir vegir færir. Nokkur
dæmi komu fram í viðtölunum við kennarana um að börnin hefðu átt erfitt með að
setja sér mörk í samskiptum við aðra, hefðu verið óörugg og látið stjórnast af öðrum.
Í þeim tilvikum hafði verið tekið á málunum í skólunum og börnin aðstoðuð. Þau
börn sem áttu við fötlun eða námsörðugleika að stríða höfðu að mati kennaranna
fengið viðeigandi stuðning. Lýsing kennaranna á börnunum var yfirleitt mjög jákvæð,
bæði hvað nám og félagslega stöðu varðar. Dæmi um slíkar lýsingar voru m.a.:
„Afskaplega ljúf og góð stelpa, alltaf brosandi og alltaf jákvæð …“
„Alltaf jákvæður gagnvart allri þjálfun.“
„[Henni] gengur ofboðslega vel námslega, vinnur mjög vel, leysir öll verkefni fljótt
og vel.“
„[Hann er] yndislega góðhjartaður og ljúfur drengur.“
Í viðtölum við kennara barnanna kom fram að börnin fengju mjög góðan stuðning
heima. Kennarar lýstu þessu m.a. með eftirfarandi hætti:
„Afskaplega vel hugsað um hana.“
„Hún hefur mjög góðan aðbúnað og hefur fengið mjög gott uppeldi.“
„Alveg einstakir foreldrar.“
„Samstarfið við foreldrana er mjög fínt.“