Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Qupperneq 53
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 2015 53
óLíNa FReYSTeiNSdóTTiR
RaNNSókNaMiðSTöð HáSkóLaNS á akUReYRi
HaLLdóR S. GUðMUNdSSON
FéLaGSvíSiNdaSviði HáSkóLa íSLaNdS
kJaRTaN óLaFSSON
HUG- OG FéLaGSvíSiNdaSviði HáSkóLaNS á akUReYRi
„Bara fimm mínútur í viðbót“: Unglingar,
netnotkun og samskipti við foreldra
Fjölskyldan sem samfélagsstofnun þarf á hverjum tíma að laga sig að breytingum, hvort heldur
er vegna breyttra atvinnuhátta, tækninýjunga, viðmiða eða gilda. Sú bylting sem varð í sam-
skiptaháttum fólks með tilkomu internetsins hefur fært fjölskyldum samtímans nýja áskorun.
Í þessari rannsókn er sjónum beint að netávana unglinga út frá sjónarhóli fjölskyldufræða.
Rannsóknin er byggð á greiningu gagna sem aflað var í evrópsku rannsókninni EU NET
ADB, en hún miðar að því að auka þekkingu á netávana meðal ungmenna í Evrópu. Unnið
var úr viðtölum við 13 unglinga á aldrinum 14–17 ára sem sýndu einhver merki netávana
samkvæmt skimunarprófi. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að sumar fjölskyldur eiga í
erfiðleikum vegna netnotkunar unglinga. Þá benda niðurstöðurnar til þess að unglingar sem
glíma við vanda vegna netávana þurfi á því að halda að foreldrar setji þeim skýr mörk og
jafnframt að unglingarnir virðast sætta sig við þau mörk sem foreldrar þeirra setja þeim. Þeir
unglingar sem lýsa óskýrum mörkum foreldra virðast eiga í meiri erfiðleikum og í lýsingum
þeirra koma fram alvarlegri einkenni netávana.
Efnisorð: Unglingar, netávani, netnotkun, fjölskyldufræði, uppeldishlutverk
inngangUr
Rannsakendur fjölmiðla eru á einu máli um að grundvallarbreyting hafi orðið í fjöl-
miðla- og boðskiptaháttum undanfarin ár (Briggs og Burke, 2005; Þorbjörn Brodda-
son, Kjartan Ólafsson og Sólveig Margrét Karlsdóttir, 2009). Fjölskyldur hafa ekki
farið varhluta af þeirri breytingu og er notkun internetsins ein vinsælasta tómstunda-
iðja barna og unglinga í vestrænum ríkjum (Livingstone og Haddon, 2012). Til-
komu internetsins hafa fylgt bæði kostir og gallar og hefur vandi vegna netnotkunar
unglinga verið fyrirferðarmikill í umræðunni (sjá O‘Neill, Staksrud og McLaughlin,
2013). Þau rök heyrast gjarnan að verja þurfi samfélagið gegn óþekktum, skaðlegum
áhrifum nýrra miðla (Quandt og Kröger, 2014). Fjölskyldur hafa upplifað erfiðleika
Uppeldi og menntun
24. árgangur 1. hefti 2015