Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Side 53

Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Side 53
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 2015 53 óLíNa FReYSTeiNSdóTTiR RaNNSókNaMiðSTöð HáSkóLaNS á akUReYRi HaLLdóR S. GUðMUNdSSON FéLaGSvíSiNdaSviði HáSkóLa íSLaNdS kJaRTaN óLaFSSON HUG- OG FéLaGSvíSiNdaSviði HáSkóLaNS á akUReYRi „Bara fimm mínútur í viðbót“: Unglingar, netnotkun og samskipti við foreldra Fjölskyldan sem samfélagsstofnun þarf á hverjum tíma að laga sig að breytingum, hvort heldur er vegna breyttra atvinnuhátta, tækninýjunga, viðmiða eða gilda. Sú bylting sem varð í sam- skiptaháttum fólks með tilkomu internetsins hefur fært fjölskyldum samtímans nýja áskorun. Í þessari rannsókn er sjónum beint að netávana unglinga út frá sjónarhóli fjölskyldufræða. Rannsóknin er byggð á greiningu gagna sem aflað var í evrópsku rannsókninni EU NET ADB, en hún miðar að því að auka þekkingu á netávana meðal ungmenna í Evrópu. Unnið var úr viðtölum við 13 unglinga á aldrinum 14–17 ára sem sýndu einhver merki netávana samkvæmt skimunarprófi. Niðurstöður þessarar rannsóknar sýna að sumar fjölskyldur eiga í erfiðleikum vegna netnotkunar unglinga. Þá benda niðurstöðurnar til þess að unglingar sem glíma við vanda vegna netávana þurfi á því að halda að foreldrar setji þeim skýr mörk og jafnframt að unglingarnir virðast sætta sig við þau mörk sem foreldrar þeirra setja þeim. Þeir unglingar sem lýsa óskýrum mörkum foreldra virðast eiga í meiri erfiðleikum og í lýsingum þeirra koma fram alvarlegri einkenni netávana. Efnisorð: Unglingar, netávani, netnotkun, fjölskyldufræði, uppeldishlutverk inngangUr Rannsakendur fjölmiðla eru á einu máli um að grundvallarbreyting hafi orðið í fjöl- miðla- og boðskiptaháttum undanfarin ár (Briggs og Burke, 2005; Þorbjörn Brodda- son, Kjartan Ólafsson og Sólveig Margrét Karlsdóttir, 2009). Fjölskyldur hafa ekki farið varhluta af þeirri breytingu og er notkun internetsins ein vinsælasta tómstunda- iðja barna og unglinga í vestrænum ríkjum (Livingstone og Haddon, 2012). Til- komu internetsins hafa fylgt bæði kostir og gallar og hefur vandi vegna netnotkunar unglinga verið fyrirferðarmikill í umræðunni (sjá O‘Neill, Staksrud og McLaughlin, 2013). Þau rök heyrast gjarnan að verja þurfi samfélagið gegn óþekktum, skaðlegum áhrifum nýrra miðla (Quandt og Kröger, 2014). Fjölskyldur hafa upplifað erfiðleika Uppeldi og menntun 24. árgangur 1. hefti 2015

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.