Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Blaðsíða 65
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 2015 65
ólínA FreysTeinsdóTTir, hAlldór s. gUðmUndssOn Og K JArTAn ólAFssOn
Haddon (2012) að misbrestur hafi verið á að foreldrar sinni ábyrgð vegna netnotkunar
barna sinna og að það þurfi að senda foreldrum skýr skilaboð um að ábyrgðin sé þeirra.
Samskipti
Samvera og samræða eru almennt talin mikilvæg bjargráð fjölskyldna í samtímanum
(Sigrún Júlíusdóttir, 2001). Í þeim kenningagrunnum sem fjalla um fjölskylduna er
lögð áhersla á góð samskipti milli fjölskyldumeðlima og í rannsókninni mátti sjá ólík-
ar lýsingar þátttakenda á samskiptum innan fjölskyldna þeirra. Allir viðmælendurnir
lýstu samskiptum, sumir í fáum orðum en aðrir lýstu þeim mun ítarlegar. Lýsingarnar
ber að skoða í því samhengi að samskipti og tjáskipti felast í öllum athöfnum fólks.
Flestir lesa í svip, tóntegund og líkamstjáningu og kom fram hjá börnunum að foreldr-
ar þeirra þyrftu stundum ekki að segja neitt, þau sæju bara að þeir væru óánægðir með
netnotkunina. Áhugavert var í viðtölunum hvað sumir þátttakendur tjáðu sig lítið um
samskipti sín við foreldra. Ber að hafa í huga að sumir þeirra gætu hafa kosið að tjá sig
ekki um samskipti innan fjölskyldunnar því þeir litu svo á að slíkt væri trúnaðarmál.
Eins og áður hefur komið fram í þessari rannsókn og öðrum er mikilvægt að horft
sé til hvers einstaklings fyrir sig þegar fjallað er um netávana (Aydm og San, 2011;
Quandt og Kröger, 2014; Selfhout o.fl., 2009; Vandoninck o.fl., 2012). Í þessari rann-
sókn kom fram að sumir unglinganna nota netið á þann hátt að það kemur niður á
lífsgæðum þeirra. Þeir fengu ekki nægan svefn og einnig kom netnotkun niður á námi
og heilbrigðum lífsstíl, og er þessi niðurstaða í samræmi við fyrri rannsóknir (Tsitsika
o.fl., 2012). Einnig komu fram lýsingar á mikilli netnotkun sem unglingarnir tengja
við persónulegan vanda eins og einelti, einmanaleika og vinaleysi. Þetta samræmist
rannsókn Vandoninck og félaga (2012) sem komust að þeirri niðurstöðu að þeir sem
eigi í vanda vegna netávana stríði oft við vanda í lífinu almennt, bæði sálrænan og
félagslegan.
Viðmælendurnir lýstu því hvernig þeir nota netið þegar þeim leiðist og þá til að
vera í samskiptum. Þetta styðja rannsóknir (Aydm og San, 2011) og því er mikilvægt
að ekki sé litið á tölvunotkun sem annaðhvort góða eða slæma, heldur sé litið til hvers
einstaklings og fjölskyldu fyrir sig og hvernig sé heppilegast að styrkja heilbrigða
notkun netsins.
Viðbrögð við netávana, fjölskyldustuðningur
Tilgangurinn með rannsókninni er, sem fyrr segir, að auka skilning á mikilvægum
atriðum varðandi upplifun unglinganna á samskiptum við foreldra vegna netnotk-
unar. Rannsóknir hafa sýnt að fjölskyldan hafi mikla þýðingu í netnotkun barna og
því var í þessari rannsókn gerð tilraun til að skoða nánar mikilvæga þætti eins og
mörk sem foreldrar setja börnum sínum og samskipti þeirra á milli. Niðurstöður rann-
sóknarinnar gefa til kynna að fölskyldur eigi í vanda vegna netnotkunar unglinga.
Það er til lítils að meta vanda ef ekki er leitað lausna og með vinnu sem byggist á
fjölskyldufræðum bjóðast gagnreyndar leiðir til að hjálpa fjölskyldum í verkefnum
sem þær standa frammi fyrir (Carr, 2000; Nichols og Schwartz, 2010). Þá er ekki leitað