Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Side 55

Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Side 55
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 2015 55 ólínA FreysTeinsdóTTir, hAlldór s. gUðmUndssOn Og K JArTAn ólAFssOn Til að draga úr neikvæðum afleiðingum internetnotkunar hefur einkum verið horft á tvo þætti; annars vegar samskipti í fjölskyldu og hins vegar uppeldisaðferðir for- eldra. Margar rannsóknir benda til þess að umhyggja í uppeldi (e. parental warmth) hafi jákvæð áhrif sem forvörn gegn ýmiss konar vanda unglinga (Pasalich, Dadds, Hawes og Brennan, 2011). Einnig hefur verið sýnt fram á tengsl jákvæðra samskipta foreldra og unglinga og minni hættu á netávana (Holtz og Appel, 2011; Livingstone og Smith, 2014; Staksrud og Livingstone, 2009). Þá hafa rannsakendur í auknum mæli beint sjónum sínum að tengslum og starfshæfni fjölskyldna út frá netnotkun. Niðurstöður þeirra gefa vísbendingu um að leiðandi uppeldishættir, sem einkennast af hlýju, stuðningi og því að setja börnum mörk, séu tengdir minni áhættuhegðun á netinu (Kalmus, Blinka og Kjartan Ólafsson, 2015; Mascheroni, Murru, Aristodemou og Laouris, 2013). Niðurstöður rannsókna (Charlie o.fl., 2011) styðja þetta og virðast unglingar sem eiga við netávana að stríða vera í verra sambandi við foreldra sína en aðrir unglingar. Fjölskyldur og netnotkun unglinga Umhverfi fjölskyldna hefur breyst mikið á síðustu áratugum. Ábyrgð foreldra snýst ekki lengur aðallega um efnahagslega afkomu, heldur er líka gerð krafa til þeirra um að uppfylla tilfinningalegar þarfir barna sinna (Beck-Gernsheim, 2002). Samfélagsrýn- ar hafa í auknum mæli fjallað um uppeldisskilyrði barna og það hvernig velferð þeirra er sinnt (Sigrún Júlíusdóttir, 2010). Má í því samhengi benda á orð Vígdísar Finnboga- dóttur, fyrrverandi forseta Íslands, þegar hún hvetur til þess, í formála bókarinnar Velferð barna: Gildismat og ábyrgð samfélags, að Íslendingar hugi að velferð barna: Nú er einmitt lag að huga að uppeldismálum sem varða umfram allt æsku landsins en snerta einnig þá sem vel eru vaxnir úr grasi. Við þurfum að lækka verðgildi verald- legs munaðar en styrkja það sem mölur og ryð fá ekki grandað, þá samkennd, siðvit- und og sjálfsvirðingu sem er grundvöllur þess að virða aðra. (Vigdís Finnbogadóttir, 2010, bls.12–13) Hlutverk foreldra hefur þannig breyst. Áður fólst það í því að koma börnum á legg en nú snýst það frekar um leiðsögn um val og mörk, og bent hefur verið á að áður hafi ábyrgð foreldra verið byggð á umhyggju, afskiptum og taumhaldi en að í samtímanum ættu bjargráð fjölskyldunnar að byggjast á samveru og samræðu (Sigrún Júlíusdóttir, 2001). Um leið og auknar kröfur eru gerðar til foreldra hvað varðar uppeldi, kennslu og markasetningu (þegar foreldrar setja börnum sínum reglur eða takmarkanir) eru þeir meira fjarverandi frá heimilinu en áður vegna atvinnu (McGoldrick, Carter og Garcia- Preto, 2012). Þann vanda rekur bandaríski félagsfræðingurinn Hochschild, í bókum sínum The Time bind og The Second Shift (Hochschild, 1997; Hochschild og Machung, 2003), til aukinnar þátttöku kvenna á vinnumarkaði samhliða lítilli þátttöku karla í því sem lýtur að heimilinu og til þess að skyldur heimilisins bíða fólks eftir langan vinnudag. Í rannsókn þar sem foreldrahlutverk voru skoðuð sérstaklega kom fram að einstak- lingar sem teljast vera haldnir leikjafíkn (e. pathological gaming) telja fjölskylduna

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.