Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Side 85

Uppeldi og menntun - 01.06.2015, Side 85
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 24(1) 2015 85 aNNi G. HaUGeN FéLaGSvíSiNdaSviði HáSkóLa íSLaNdS Uppeldi og menntun 24. árgangur 1. hefti 2015 Ofbeldi á heimili: Með augum barna Guðrún Kristinsdóttir (ritstjóri). (2014). Ofbeldi á heimili: Með augum barna. Reykjavík: Háskólaútgáfan. 324 bls. Í lok síðasta árs kom út bókin Ofbeldi á heimili: Með augum barna. Eins og nafnið bendir til er hér á ferðinni bók um heimilisofbeldi en það málefni hefur verið talsvert til um- ræðu síðastliðin ár þar sem sjónum hefur verið beint að kynbundnu ofbeldi. Það sem hins vegar er nýtt í þessari bók, og um leið einn helsti styrkur hennar, er að hér er horft á ofbeldi frá sjónarhorni barna, þ.e. hvernig börn upplifa ofbeldi á heimili. Bókin er afrakstur rannsóknar dr. Guðrúnar Kristinsdóttur, prófessors við Há- skóla Íslands, og samstarfskvenna hennar, þeirra Ingibjargar Harðardóttur, Margrétar Ólafsdóttur, Margrétar Sveinsdóttur, Nönnu Þóru Andrésdóttur og Steinunnar Gests- dóttur. Um bókina Við öflun gagna í rannsóknina var víða leitað fanga og ólíkum aðferðum beitt. Í fyrsta lagi var lögð spurningakönnun fyrir 1125 grunnskólabörn. Í öðru lagi var rætt við 14 börn á aldrinum 9–19 ára sem höfðu búið við ofbeldi á heimili og sjö mæður sem búið höfðu við slíkar aðstæður. Á þeim tíma sem viðtölin voru tekin ríkti ekki ofbeldi á heimilinu. Loks var rýnt í þrjú dagblöð og eitt tímarit með það í huga að greina hvernig þar væri fjallað um ofbeldi á heimilum. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar er sóttur í bernskufræði og allítarleg umfjöllun er í bókinni um þau fræði. Rannsóknin markar að mörgu leyti tímamót, annars vegar vegna þess að hér er um að ræða efni sem til skamms tíma var lítt rannsakað hér á landi, en fyrst og fremst vegna þess að hér er sjónum beint að börnunum og raddir þeirra fá að heyrast. Fyrirmynd rann- sóknarinnar var sótt til Audrey Mullender og félaga hennar sem stóðu að svipaðri rannsókn árið 2002 í Bretlandi, og eru svör íslensku barnanna stundum borin saman við svör þeirra ensku. Bókinni er skipt í sex kafla þar sem byrjað er á því að fjalla um ofbeldi á heim- ilum út frá stöðu barna og um börn sem þátttakendur í rannsóknum, og vísað er í fjölmargar rannsóknir sem varða ofbeldi á heimilum, bæði innlendar og erlendar.

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.