Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Síða 36
Græjur
og tækni
Dulritunarlykli SIM-korta stolið
* Fréttir af því að hægt sé að fylgjast með flestu sem við gerum á netinu eru fleiri en töluverður á komið, en ekki hefur verið eins mikið fjallað um það að leyniþjónustur geti líkahlustað á það sem við segjum í farsímana okkar. Víst hefur það verið hægt með miklumbúnaði og tilfæringum eða það hafa menn haldið. Í vikunni kom nefnilega í ljós að fyrir alllöngu brutust útsendarar leyniþjónusta Banda-ríkjanna og Bretlands inn í tölvukerfi helsta SIM-kortaframleiðanda heims, hollenska fyr-irtækisins Gemalto, og nældu sér í dulritunarlykla sem notaðir eru
og geta fyrir vikið hlustað á samtöl í milljörðum farsíma um heim all-
an, en Gemalto framleiðir um tvo milljarða SIM-korta á hverju ári.
Á síðustu árum hefur áhugi á útivist margfaldast hér álandi og afleiðing þess er að sífellt fleiri sækja í þaðað vera utan alfaraleiðar, að feta slóðir sem fáir eða
enginn hefur áður farið. Þá skiptir miklu að vera vel búinn,
að bera með sér skjólbúnað og næringu, en líka það að geta
látið vita af sér ef allt fer á versta veg.
Víst eru margir með GPS-tæki til að vita hvar þeir eru
staddir og allir með farsíma og sumir meira að segja síma
sem ekki þarf að hlaða daglega. Svo vill þó til að ekki þarf
að fara langt á Íslandi til þess að komast úr farsíma-
sambandi, eða í það minnsta í svo lélegt samband að ekki er
hægt að treysta á það. Já, það er
hægt að fá sér gervihnattasíma,
en þeir kosta skildinginn, bæði
símtækið sjálft og svo það að vera
með áskrift að slíku kerfi. Að
þessu sögðu þá er til einfaldari og
ódýrari leið til að nýta gervi-
hnattakerfi; til eru einföld og til-
tölulega ódýr tæki eins og SPOT
Gen3, sem hér er gert að umtals-
efni.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd er SPOT-tæki ekki
mikið um sig, en hefur þó að geyma gervihnattamóttakara
og sendi sem hægt er að nýta á ýmsa vegu. Tækið er ekki
nema 87,2 x 65 mm að stærð og 25,4 mm að þykkt og fislétt,
ekki nema 114 g að þyngd, rafhlaðan meðtalin. Einfalt er að
hengja það á bakpoka eða úlpu, en líka er hægt að kaupa
alls kyns festingar til að festa það á handlegg eða fótlegg ef
vill, en tækið þarf að sjá til himins, ef svo má segja, til að ná
sambandi við GPS-gervihnött. Eins er rétt að nefna að
SPOT-tækin eru simplex-tæki; það þýðir að þau senda boð í
gervihnött en geta ekki látið vita hvort boðin hafi komist til
skila. Ef þörf er á slíku þurfa menn að fá sér duplex-
gervihnattatæki og þá erum við líka að taka um mun dýrari
tæki og mun dýrari áskrift.
Framan á tækinu eru sýnileg gaumljós og þrír hnappar.
Neðst til hægri er hnappur sem smellt er á til að senda fyr-
irfram ákveðin skilaboð til tiltekins hóps móttakenda, en
skilaboðunum geta fylgt GPS-hnit eða tölvupóstur með tengli
á staðsetningu á Google Maps. Þannig er hægt að semja
skilaboð um að maður sé kominn á tiltekinn áfangastað eða
að lokum göngunnar, nú eða bara að maður sé kominn í
náttstað og allt gangi vel. Hægt er að senda SMS og/eða
tölvupóst til allt að tíu viðtakenda, en staðsetningin er vistuð
í SPOT-grunni viðkomandi notanda.
Í miðju í neðstu röð er hnappur fyrir göngu-
rita, bæði til að skrá ferðina fyrir sjálfan sig, en
líka til að leyfa öðrum að fylgjast með ef vill.
Hægt er að láta tækið skrá leiðina með tiltek-
inni tíðni, hægt að velja um hvort það sé á 5,
10, 30 eða 60 mínútna fresti, og það heldur
þeirri skráningu áfram á meðan kveikt er á
tækinu og það er á hreyfingu. Hægt er að
greiða sérstaklega fyrir skráningu allt niður í
hálfa þriðju mínútu ef vill.
Lengst til hægri er svo hnappur fyrir stutt
skilaboð til þeirra sem eru að fylgjast með
göngunni úr fjarska, en ef þrýst er á hnappinn
sendir tækið stutt skilaboð til að láta vita hvar
maður er, ýmist sem GPS-hnit eða sem stað-
setning á Google-korti. Líkt og með hnappinn
lengst til vinstri er hægt að senda SMS og/eða
tölvupóst til allt að tíu viðtakenda.
Fyrir ofan þessa hnapparöð eru svo hnappar
til að óska eftir hjálp, en yfir
þeim eru flipar til að tryggja að
ekki sé ýtt á þá fyrir misgáning.
Vinstra megin er einkahjálpar-
hnappur, ef svo má segja, en hann er
ætlaður til þess að senda hjálparbeiðni til
aðstoðarmanna eða aðstandenda þegar
menn lenda í vandræðum, en eru ekki í beinni
lífshættu. Hægra megin er svo SOS-hnappur, en
ef ýtt er á hann fara boð til miðstöðvar í Banda-
ríkjunum og síðan til þeirrar björgunarsveitar sem
næst er þeim sem sendi boðin. Á vefsetri framleið-
andans er að finna fjöldann allan af björgunarsögum
og á korti sem birt er á síðunni ma sjá að ein-
hverjum hefur verið
bjargað hér á
landi eftir hjálp-
arbeiðni í gegn-
um SPOT-tæki.
GERVIHNATTASENDIR Í VASANN
VÍST ER GAMAN AÐ VERA Á FERÐ FJARRI
MANNABYGGÐUM, EN ÞEGAR EITTHVAÐ BJÁTAR
Á ER GOTT AÐ GETA LÁTIÐ VITA AF SÉR. VÍST
ER VÍÐA FARSÍMASAMBAND, EN ÞAR SEM ÞAÐ
ER EKKI TILTÆKT ER HÆGT AÐ NOTA GERVI-
HNATTASÍMA EÐA EINFALDARA OG ÓDÝRARA
TÆKI EINS OG TIL AÐ MYNDA SPOT GEN3.
* Eins og fram kemur hér til hliðar er tækið lítið um sig oglétt, 87,2 x 65 x 25,4 mm og 114 g. Það þolir hitasveiflur frá 30
gráðu frosti í 60 gráðu hita og hæð frá 100 m dýpi upp í 6.500
m hæð. Það er rakaprófað samkvæmt hernaðarstaðlinum MIL-
STD-810F, 507.3, og þolir 95% til 100% raka.
* Í tækið fara þrjár AAA-rafhlöður og hægt að hafa það litín-rafhlöður eða nikkelmálmhýdríðrafhlöður (NiMH). Ef hleðsluraf-
hlöður eru í því er hægt að hlaða það um USM-tengi og má nátt-
úrlega láta það ganga á straumi um USB-tengið, en gætið að því
að þótt tækið sé vatnshelt er það ekki vatnshelt þegar USB-
snúran er í notkun.
* SPOT-tækin eru ekki seld hér á landi, en beint frá fram-leiðanda kostar Gen3 ríflega 20.000 og ársáskrift að grunn-
þjónustunni kostar um 13.000 á ári. SPOT selur líka einfaldari
gerð af staðsetningartækinu og svo SPOT Trace, tæki sem
hægt er að festa á vélsleða, báta og tilheyrandi sem einskonar
þjófavörn.
Græjan
ÁRNI
MATTHÍASSON
Ef ekki er nóg að geta látið vita af sér er náttúrlega hægt
að næla sér í gervihnattasíma, eins og SPOT-símann sem
sést á mynd hér fyrir ofan. Það kostar náttúrlega sitt, en
getur kostað meira að hafa ekki slíkt tæki við höndina
þegar þörf krefur. Slíkir símar verða þó minni og minni
með tímanum og eins eru til ýmis apparöt sem gera
kleift að halda sambandi hvar sem er í heiminum.
Gott dæmi um hvað gera má með slíkum tækjum er
inReach SE-sendirinn frá DeLorme sem nýtir Iridium-
gervihnetti til að senda SMS og líka taka við slíkum
skeytum. DeLorme inReach SE er ekki gervihnattasími,
en til viðbótar við það að tækið sendi staðsetningar-
upplýsingar er hægt að nota það til að senda neyðarkall
og líka til að senda og taka við SMS-skeytum, aukin-
heldur sem það lætur vita hvort það tókst að senda
boð, semsé: Duplex-samskipti. Hægt er að stilla hve oft
tækið sækir ný skilaboð, sjálfgefið er á 20 mínútna
fresti, en hægt að láta það kanna á fimm, tíu eða fimmtán
mínútna fresti. Líka er hægt að sjá á vefsíðu hvar viðkomandi
er staddur miðað við GPS-hnit og líka hraða, hæð og
stefnu.
Hægt er að sækja sér símaforrit, tengjast tækinu í
gegnum Bluetooth og nota þá símann til að skrifa og
lesa SMS-skeyti, sem er náttúrlega ólíkt þægilegra
en að nota talan/stafaborðið á tækinu sjálfu.
Í tækinu eru tvær AA-litínrafhlöður sem end-
ast í 125 tíma samfellda notkun miðað við að
staðsetning sé send með tíu mínútna millibili.
Líka er hægt að setja í það aðrar AA-rafhlöður.
Það er rykvarið og vatnshelt að því leyti að það
þolir að vera í metradjúpu vatni í tvo sólarhringa.
DeLorme inReach SE kostar um 40.000 kr. á Amazon,
en einnig þarf að kaupa áskrift að þjónustunni sem kostar frá
15.000 kr. á ári.
GERVIHNATTATÆKI
SMS um allan heim
AFP
SIM-kort
verða minni
og minni og
minni.