Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.02.2015, Side 40
Tíska
AFP
*Tískudrottningin Sarah Jessica Parker sagði í samtalið við tímaritiðPeople að börn hennar þrjú, fimm ára tvíburarnir Tabitha og Lor-etta og James eldri sonur hennar, hefðu mikinn áhuga á að klæðasig upp. Hún segist jafnframt gefa þeim fullkomið frelsi frá sunnu-dögum til fimmtudags þegar kemur að klæðnaði og bætir við að
þau séu afar skapandi og listræn. Það verður gaman að sjá hvort
börnin verði fyrir áhrifum af tískuviti móður sinnar.
Börn Söruh Jessicu Parker í
tískuhugleiðingum
H
vernig myndir þú lýsa stílnum þínum?
Ég var að eignast barn fyrir nokkrum mánuðum svo fataskápurinn
minn er ansi litaður af því að ég hef ekki gengið í „eðlilegum“ fötum í
langan tíma. Svo stíllinn er blanda af því sem ég get mögulega púslað
saman á morgnana. Það eru ákveðin leiðindi að taka bókstaflega allt úr skáp-
unum á hverjum morgni til að finna eitthvað nothæft en góð áskorun.
Áttu þér uppáhaldsflík eða fylgihlut?
Uppáhaldsflíkin mín er kápa úr nýju línu MAGNEA. Vanalega langar mig ekki
að vera í flíkum sem ég hef sjálf verið að vinna við að hanna en þessi kápa er al-
gjör undantekning. Hún er það góð að ég mér dettur ekkert nógu gott lýsingar-
orð í hug.
Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl?
Ég get með engu móti nefnt neinn sem mér finnst sérstaklega eftirminnileg/ur.
Ég sé oft manneskjur sem ég hrífst af en það er kannski ekki beint fatnaðurinn
sem hrífur mig heldur fas þeirra og framkoma. Þá eru öll föt sjarmerandi.
Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fatakaupum?
Velja gæði fram yfir magn, það margborgar sig. Já og að passa sig að kaupa föt í
réttri stærð. Ég hef gengið í gegnum ýmis tímabil með það. Ég gat með engu
móti keypt mér skó sem voru ekki of litlir eða of stórir fyrir nokkrum árum.
Mjög skrítið vandamál.
Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð?
Mér finnst Acne alltaf hitta naglann á höfuðið.
Áttu flík sem þú tímir ekki að klæðast?
Nei, en ég er samt alveg líkleg til að eignast hana einhvern tíman. Ég binst hlut-
um oft órjúfanlegum tilfinningaböndum. En ég mun samt aldrei eiga fullt af föt-
um sem eru hangandi inni í skáp með verðmiðanum á.
Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna?
Varasalvi og gott rakakrem. Ég er mjög hrifin af Dr. Hauschka og Aveda.
Hver hafa verið bestu kaupin þín?
Bestu fatakaupin mín núna í vetur hafa án efa verið að fjárfesta
í góðri úlpu. Það er búið að vera á dagskrá í nokkur ár og nú
var ég endanlega komin með nóg af því að vera kalt 9 mánuði
af árinu.
En þau verstu?
Ætli það sé ekki neongul pólýester peysa sem getur örugg-
lega framleitt rafmagn fyrir heilt bæjarfélag. Svo eru Acne-
skórnir mínir svona góð/vond kaup. Alls ekki praktískir, fá-
ránlega flottir og smá áfall að uppgötva að tollurinn var
liggur við jafn hár og verðið á skón-
um.
Hvaða tískublöð eða tískublogg
lest þú?
Ég enda yfirleitt á að lesa eitthvert
sorp í staðinn fyrir uppbyggilega
miðla. Ég er ein af þeim sem klikka
alltof oft á fréttir eins og „Kanye
missti vini þegar að hann byrjaði
með Kim.“ En ég skoða til dæmis
style.com og fuckingyoung.es reglu-
lega og aðrar tískutengdar síður sem
eru ekki með of mikið af auglýs-
ingum.
GÆÐI FRAM YFIR MAGN
Sigrún Halla segir bestu fata-
kaupin í vetur hafa verið að
fjárfesta í góðri úlpu. Hún
segist endanlega hafa verið
komin með nóg af því að vera
kalt níu mánuði af árinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Binst hlutum oft
órjúfanlegum til-
finningaböndum
SIGRÚN HALLA UNNARSDÓTTIR, FATAHÖNNUÐUR HJÁ
ÍSLENSKU MERKJUNUM MAGNEA OG IIIF, UNDIRBÝR NÚ NÝJUSTU
LÍNU TÍSKUHÚSSINS MAGNEA SEM KYNNT VERÐUR Á RFF-
HÁTÍÐINNI Í MARS NÆSTKOMANDI. SIGRÚN HEFUR MIKINN
ÁHUGA Á TÍSKU OG SEGIR FATNAÐ ALLTAF SJARMERANDI EF
MANNESKJAN ER ÁHUGAVERÐ Í FASI OG FRAMKOMU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Sigrún hannar fyrir
merkið MAGNEA.
Sigrún segir
varasalva nauð-
synlegan í
snyrtiveskið og
er Dr. Hauschka
í uppáhaldi.
Acne Studios
hittir alltaf nagl-
ann á höfuðið.