Morgunblaðið - 19.03.2015, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
ISTP (International Summit on the
Teaching Profession) er ráðstefna
sem OECD heldur árlega og býður
til þátttöku þeim löndum sem standa
sig best hvað varðar lestrarkunn-
áttu nemenda, eða hafa verið að
bæta sig mjög
mikið. Íslandi
hefur verið boðið
á ráðstefnuna,
þar til nú í ár. Ill-
ugi Gunnarsson,
mennta-
málaráðherra,
segir að staða Ís-
lands í þessum al-
þjóðlega sam-
anburði sé það
slök, að Íslandi sé
ekki boðið til ráðstefnunnar, sem
haldin verður í Kanada nú í lok
marsmánaðar.
„Staðan er sú núna að við erum
ekki í hópi þeirra þjóða sem eru að
ná eftirtektarverðum eða góðum ár-
angri, þegar kemur að læsi“ sagði
Illugi í samtali við Morgunblaðið.
Menntamálaráðherra segir að
þetta komi ekki á óvart enda hafi ár-
angur íslenskra barna í Pisa próf-
unum 2012 gefið til kynna að margt
mætti betur fara þegar kemur að
læsi þeirra, ekki síst drengja.
Farið hrakandi frá 2000
„Þróunin hefur verið sú, allt frá
árinu 2000, að lestrarkunnáttu ís-
lenskra ungmenn hefur hrakað
nokkurn veginn ár frá ári, sér-
staklega hjá strákunum, en líka hjá
stelpunum. Það kemur því ekki á
óvart að við erum ekki í lengur í hópi
þeirra þjóða sem eru kallaðar inn til
að ræða um sína reynslu af því að
búa til menntakerfi, sem skilað hef-
ur góðum árangri,“ segir Illugi.
Vonbrigðin segir Illugi ekki vera
þá staðreynd, að vera ekki boðið á
ráðstefnuna sem slíka, „heldur snúa
vonbrigðin að því, að það sé svona
stór hluti af okkar krökkum sem
ljúka grunnskólaprófi, sem ekki hef-
ur náð tökum á þessu grundvall-
aratriði, að lesa sér til gagns eða
ánægju.“
Illugi segir að hann vilji leggja
mikla áherslu á að Pisa-prófin séu
ekki einhver endanlegur mælikvarði
á skólakerfi okkar. „Það væru mikil
mistök að halda að hægt sé að draga
einhverjar allsherjar ályktanir um
starfið í íslenskum grunnskólum út
frá útkomu íslenskra barna í Pisa-
prófunum. Það er afskaplega margt
annað sem við erum að gera í skól-
unum og skiptir gríðarlega miklu
máli, þegar kemur að menntun
barna og ungmenna, sem við vitum
að við erum að ná mjög góðum og
eftirtektarverðum árangri í, en þeg-
ar kemur að þessum árangri, þá er
eðlilegt að við stöldrum við og áttum
okkur á því að þarna er verulegt
vandamál á ferðinni,“ segir mennta-
málaráðherra.
Áætlun til fimm ára
Aðspurður hvað væri til ráða
sagði Illugi: „Ég mun á næstu vikum
kynna niðurstöður úr vinnu sem
unnin hefur verið á grundvelli hvít-
bókarinnar, sem ég lagði fram síð-
astliðið sumar, þar sem við fengum
Guðfinnu Bjarnadóttur til þess að
leiða vinnuhóp. Verkefni hópsins var
að móta tillögur um aðgerðaáætlun,
til þess að við getum unnið með skól-
unum og sveitarfélögunum við það
að bæta lestrarkennsluna, án þess
þó að draga úr þeim þáttum sem við
vitum að við erum að gera vel í okk-
ar skólakerfi. Ég nefni sem dæmi
það sem snýr að jöfnuði og vellíðan
barnanna okkar.“
Illugi segir að þessar tillögur hafi
verið í vinnslu undanfarið hálft ár og
muni líta dagsins ljós innan
skamms. Þær séu nú í kostn-
aðarmati.
„Ég hlakka mjög til að kynna þær
og eins líka að vinna þær áfram með
sveitarfélögunum og skólakerfinu.
Þær eru lagðar upp sem áætlun til
fimm ára, sem það taki okkur að
gera alvöru breytingar sem leiði til
þess að við komum okkur út úr þess-
ari slæmu stöðu, hvað varðar læsi,“
sagði Illugi Gunnarsson, mennta-
málaráðherra.
Ekki lengur í fremstu röð
Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, boðar mikið átak í samvinnu við grunnskóla og sveitar-
félög til þess að ráðast gegn ólæsi Fyrsta sinn sem Íslandi er ekki boðið að taka þátt í ISTP
Morgunblaðið/Golli
Upplestur Stóra upplestrarkeppni grunnskólanna hefur staðið meira og minna í allan vetur. Úrslitakeppnin í
Reykjavík fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur í fyrradag, og það voru þrjár grunnskólastúlkur sem sigruðu.
Illugi
Gunnarsson
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
Dásamlegur á brauðið og
hentugur fyrir heimilið
Engin
fyrirhöfn
ms.is
TILBOÐ25
sneiðar
Formenn stjórnarandstöðunnar, Árni
Páll Árnason, Katrín Jakobsdóttir,
Guðmundur Steingrímsson og Birg-
itta Jónsdóttir, hafa lagt fram á Al-
þingi þingsályktunartillögu um að Al-
þingi álykti að fram fari
þjóðaratkvæðagreiðsla 26. september
2015 um hvort halda skuli áfram að-
ildarviðræðum Íslands við Evrópu-
sambandið.
Í tillögunni er lagt til að þjóðin
verði spurð: Vilt þú að Ísland taki upp
þráðinn í viðræðum við Evrópusam-
bandið með það að markmiði að gera
aðildarsamning sem borinn yrði undir
þjóðina til samþykktar eða synjunar?
„Þegar núverandi ríkisstjórn lagði
fram tillögu til þingsályktunar um að
draga aðildarumsókn Íslands að Evr-
ópusambandinu til baka vakti það
hörð viðbrögð almennings. Alls skrif-
uðu 53.555 undir áskorun um að efnt
yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um að-
ildarviðræðurnar.
Núverandi stjórnarandstöðuflokk-
ar hafa ólíka afstöðu til aðildar að
Evrópusambandinu. Hins vegar er
sameiginleg niðurstaða flutnings-
manna sem koma úr öllum flokkum
stjórnarandstöðunnar að þetta mál sé
af slíkri stærðargráðu að eðlilegt sé
að leita leiðsagnar þjóðarinnar um
framhald þess,“ segir í greinargerð
um ályktunina. benedikt@mbl.is
Vilja að þjóðin kjósi
um ESB-viðræður
Leggja til 26. september í haust
Borgarnes Nemendur í „sögu fjarlægra slóða“ 3B06 við
Menntaskóla Borgarfjarðar tóku yfir mötuneyti skólans í
gær og elduðu asískan mat. Markmiðin í þessum söguá-
fanga eru annars vegar að ná tökum á þeim vinnubrögð-
um sem krafist er í fyrstu námskeiðum í háskóla og hins
vegar að velta upp möguleikum á miðlun sögu og menn-
ingar. Eldamennskan var hluti af þeirri pælingu, miðlun
asískrar matarmenningar.
Nemendur, sem eru alls 14 í áfanganum, skiptu með
sér verkum og elduðu nokkra mismunandi rétti; Maqluba
sem er arabískur kjúklingaréttur, vorrúllur, djúpsteiktar
rækjur með súrsætri sósu, hummus, naan-brauð, Gosht
makani, sem er pakistanskur lambakjötsréttur, Tikka
masala-kjúklingarétt og taílenska ommilettu með nauta-
hakki og grænmeti. Þeir seldu svo matinn í mötuneyti
skólans í hádeginu og er skemmst frá því að segja að af-
bragðsvel tókst til og þótti maturinn mikið hnossgæti.
Yfirumsjón með eldamennskunni hafði María Socorro
Grönfeldt, af Matstofunni (Dússabar), og Ívar Örn
Reynisson, kennari áfangans. „Þetta tókst mjög vel
þrátt fyrir töluvert stress síðustu 15-20 mínúturnar, en
matargestir; nemendur, kennarar og stjórn skólans, alls
45 manns, voru hæstánægðir með útkomuna. Nemendur
fengu góða innsýn í hversu mikillar þolinmæði aust-
urlensk matargerð krefst, natni, vinnusemi og yfirsetu.
Þannig var þetta frábært innlegg í menningu, að fá tæki-
færi til að lifa sig inn í það á hvaða lögmálum matar-
menning í Asíu byggist,“ sagði Ívar um verkefnið.
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Vandvirk Það þarf bæði þolinmæði og natni við asíska eldamennsku. Frá vinstri: Guðrún Hildur Hauksdóttir, Torfi
Lárus Karlson, María Socorro Grönfeldt, Ída María Önnudóttir og Salvör Svava G. Gylfadóttir
Hnossgæti frá Asíu
Menning og matargerð í söguáfanga í Borgarnesi