Morgunblaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
FRÉTTASKÝRING
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kynning á nýgerðum kjarasamningi
Norðuráls ehf. á Grundartanga við
Félag iðn- og tæknigreina, Verka-
lýðsfélag Akraness (VLFA), Stétt-
arfélag Vesturlands, VR og RSÍ
hefst í dag. Vilhjálmur Birgisson,
formaður VLFA, sagði að gefin væri
ein vika til að kynna félagsmönnum
samninginn og láta kjósa um hann.
Kosningunni lýkur klukkan 16.00
fimmtudaginn 26. mars n.k..
Þau nýmæli eru í samningnum að
launahækkanir verða miðaðar við
þróun launavísitölu Hagstofu Ís-
lands á samningstímabilinu. Vil-
hjálmur sagði að launavísitalan hefði
til þessa alltaf mælst hærri en al-
mennar prósentuhækkanir kjara-
samninga á undanförnum árum.
Samningurinn gildir frá 1. janúar
2015 og til ársloka 2019.
Auk vísitöluhækkunarinnar var
samið um upphafshækkun sem mið-
ast við 1. janúar síðastliðinn og er
afturvirk. Útfærsla hennar verður
fyrst kynnt félagsmönnum stétt-
arfélaganna og fékkst ekki uppgefin
í gær. Einnig fá allir starfsmenn
300.000 króna eingreiðslu samhliða
upphafshækkuninni.
Önnur launahækkun kemur 1. júlí
2015 og mun hún miðast við þróun
launavísitölunnar frá desember 2014
til júní 2015. Þriðja hækkunin kemur
1. janúar 2016 og mun hún miðast við
þróun launavísitölu frá júní til des-
ember 2015. Síðan munu launin
hækka í byrjun hvers árs út samn-
ingstímabilið miðað við þróun launa-
vísitölunnar árið á undan.
Orlofs- og desemberuppbætur
hækka í 340.000 krónur samtals og
verða 170.000 krónur hvor fyrir sig.
Þær voru áður samtals 311.000 krón-
ur á ári.
Vilhjálmur nefndi til dæmis að
heildarlaun starfsmanns með fimm
ára starfsreynslu á vöktum í álverinu
hækkaði í tæplega 580.000 krónur á
mánuði. Byrjandi í vaktavinnu hjá
Norðuráli verður nú með um 492.000
í heildarlaun á mánuði að meðaltali.
Venjan að semja til fimm ára
Ragnar Guðmundsson, forstjóri
Norðuráls ehf., vildi ekki tjá sig um
innihald samningsins fyrr en hann
hefði verið kynntur félagsmönnum
stéttarfélaganna og þeir tekið af-
stöðu til hans.
Hann sagði að Norðurál ehf. hefði
venjulega gert kjarasamninga til
fimm ára í senn. Þegar fyrirtækið
var sett á stofn hefðu verið lagðar
línur um það. Samningar voru gerðir
árin 2000, 2005, 2010 og nú 2015.
Verður ekki almenn stefna
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Al-
þýðusambands Íslands, benti á að í
kjarasamningi starfsmanna Norður-
áls væru töluverðar takmarkanir á
verkfallsrétti. Laun starfsmanna
Norðuráls hefðu ekki verið tengd
launavísitölu fyrr en nú, en í gildi
hefði verið samkomulag um við-
miðun við sambærilega hópa.
„Ef þú hefur ekki verkfallsrétt þá
má velta því fyrir sér hversu mikill
samningsrétturinn sé,“ sagði Gylfi.
Hann sagði að samkvæmt gildandi
kjarasamningi hefðu stéttarfélögin
ekki getað tekið afstöðu til verkfalls-
átaka hjá Norðuráli fyrr en í apríl og
langan tíma hefði tekið að hefja víð-
tækar verkfallsaðgerðir.
Gylfi kvaðst ekki sjá fyrir sér að
verkalýðshreyfingin færi almennt að
gera kjarasamninga á sömu nótum
sem gert var hjá Norðuráli.
Í kjarasamningi stéttarfélaganna
við Norðurál er kafli um takmörkun
á rétti til vinnustöðvunar. Þar skuld-
binda stéttarfélögin sig „til þess að
grípa hvorki til verkfalla, sam-
úðarverkfalla, né annarra aðgerða
sem raskað gætu starfsemi álversins
á Grundartanga á gildistíma samn-
ingsins“. Þau geta boðað til verkfalls
sé kjarasamningur ekki endurnýj-
aður innan þriggja mánaða frá því
hann rann út. Síðasti samningur
rann út um áramótin. Verkfall skal
boða með a.m.k. þriggja mánaða fyr-
irvara. Komi til þess þá tekur það
gildi í stigvaxandi skrefum.
Vísitölutenging launa á síðustu
öld gaf ekki góða raun
Binding launa við launavísitölu
kemur ekki til greina á almennum
vinnumarkaði, að mati Þorsteins
Víglundssonar, framkvæmdastjóra
Samtaka atvinnulífsins (SA).
„Ef allir samningar væru miðaðir
við launavísitölu, hvað myndi þá
hreyfa launavísitöluna?“ spurði Þor-
steinn. Hann sagði að við slíkt
ástand myndu launin haldast
óbreytt.
Þorsteinn sagði að smærri hópar
gætu valið þá leið að vísitölubinda
laun sín, en á endanum yrðu það
stærri hóparnir á vinnumarkaði sem
réðu þróun launavísitölunnar.
Hann sagði að SA legðist eindreg-
ið gegn verðtryggingu launa.
Reynslan af henni væri bitur. Þor-
steinn minnti á að reynt hefði verið
að verðtryggja laun á 8. áratug síð-
ustu aldar og það svo verið afnumið á
þeim 9. Verðtrygging launa hefði
leitt til stjórnlausra víxlhækkana á
því tímabili. „Sú tilraun verður ekki
endurtekin,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að hafa bæri í huga að
langtímaþróun launa hefði verið til
kaupmáttaraukningar. Launin hefðu
því hækkað umfram verðlag þó svo
það gæti sveiflast á milli tímabila.
Launin þróast með launavísitölu
Starfsmenn hjá Norðuráli fá 300.000 kr. eingreiðslu auk hækkana Kjarasamningur til fimm ára
Takmarkaður verkfallsréttur Vísitölutenging launa kemur almennt ekki til greina, að sögn SA
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Umhverfis- og skipulagsráð Reykja-
víkurborgar samþykkti í gær fram-
kvæmdaáætlun vegna Háaleitis-
brautar og Grensásvegar með
fjórum atkvæðum Bjartrar framtíð-
ar, Samfylkingar og Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs gegn
þremur atkvæðum fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar og flug-
vallarvina.
Fulltrúar minnihlutans hafa lýst
yfir óánægju sinni með samþykktina
en í bókun þeirra segir meðal annars
að með henni hafi verið „ákveðið að
setja hundruð milljóna af peningum
borgarbúa í óþarfa þrengingar
gatna“.
Áætlunin snýr að því að skapa
betri aðstæður fyrir gangandi og
hjólandi og auka umferðaröryggi, að
því er segir í tilkynningu frá borg-
inni, og er gert ráð fyrir að akreinum
verði fækkað úr fjórum í tvær.
Í bókun meirihlutans segir meðal
annars að mikilvægt sé að „fyrirhug-
aðar framkvæmdir við Háaleitis-
braut og Grensásveg fari inn á fram-
kvæmdaáætlun ársins 2015. Í
aðalskipulagi Reykjavíkur er mikil
og hröð bílaumferð metin sem helsti
veikleiki hverfisins og mun þessi að-
gerð vega á móti því“.
Öryggi við Háaleitisbraut
Þá er einnig talinn til íbúafundur
sem haldinn var í Breiðagerðisskóla
12. mars síðastliðinn en í bókuninni
segir að „formenn íbúasamtaka í
hverfinu lýstu yfir stuðningi við fyr-
irhugaðar framkvæmdir en óskuðu
jafnframt eftir því að farið væri í að-
gerðir til að auka öryggi gangandi
yfir Háaleitisbraut en þar fara fjöl-
mörg börn um á hverjum degi til að
sækja skóla. Samgönguskrifstofu er
falið að skoða hvað sé hægt að gera
til að bregðast við þeim óskum“.
Morgunblaðið/Júlíus
Framkvæmd Formenn íbúasamtaka
í hverfinu lýstu yfir stuðningi.
Samþykktu að
þrengja Grensásveg
Minnihluti talar um óþarfa þrengingar
Hagstofa Íslands reiknar út mán-
aðarlega launavísitölu. Byggt er á
launagögnum sem berast frá fyr-
irtækjum í hverjum mánuði. Reikn-
að er tímakaup á launþega í fyr-
irtækjunum og miðað við greidda
stund og regluleg laun, það er
grunndaglaun með föstu álagi og
kaupaukum. Vísitalan mælir því
verð hverrar vinnustundar en ekki
magnbreytingar vinnu. Til að
launabreytingar reiknist inn í vísi-
töluna þarf starfsmaður að gegna
sama starfi hjá sama fyrirtæki
a.m.k. tvo mánuði í röð.
Til grundvallar útreikningunum
eru lögð gögn frá ríkinu, úrtaki
sveitarfélaga og almenna vinnu-
markaðnum. Þaðan koma ögn frá
fyrirtækjum sem starfa í fimm
stærstu atvinnugreinunum og ná
til um 80% launamarkaðarins. Þau
eru m.a. í iðnaði, þ.m.t. stóriðju,
matvælaiðju, byggingariðnaði,
samgöngum og flutningum, fjár-
málageiranum og verslun. Hótel-
og veitingageirinn er ekki með
sem stendur en það stendur von-
andi til bóta, samkvæmt upplýs-
ingum frá Hagstofu Íslands.
Vísitalan sem mælir verð
vinnustunda launafólks
HAGSTOFAN REIKNAR ÚT MÁNAÐARLEGA LAUNAVÍSITÖLU
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Norðurál á Grundartanga Kynning á nýgerðum kjarasamningi hefst á með-
al starfsmanna Norðuráls í dag. Kosningu um samninginn lýkur 26. mars.
Ragnar
Guðmundsson
Vilhjálmur
Birgisson
Gylfi
Arnbjörnsson
Þorsteinn
Víglundsson
› Á RÉTTRI LEIÐ TIL FRAMTÍÐAR SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Viðtalstími kjörinna fulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru með vikulega viðtalstíma
á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1, á föstudögummilli 1300-1400.
Á morgun taka þau Unnur Brá Konráðsdóttir alþingismaður og Halldór
Halldórsson borgarfulltrúi á móti fólki. Tryggið ykkur tímameð
því að hafa samband í síma 515 1700 eða xd@xd.is
Leki kom að bát 12 mílur út af Siglunesi á fjórða tím-
anum í gær. Slysavarnafélagið Landsbjörg fékk tilkynn-
ingu um lekann og fljótlega voru tveir nærstaddir bátar
komnir á staðinn sem og björgunarskip slysavarna-
félagsins á Siglufirði.
Magnús Tómasson, formaður björgunarsveitarinnar
Stráka á Siglufirði, segir að björgunaraðgerðir hafi
gengið hratt og örugglega fyrir sig og engum orðið
meint af. „Það voru tveir menn um borð í þessum bát
sem þurftu á aðstoð að halda. Ég heyrði í félögum mín-
um um áttaleytið og þá voru þeir að leggja að bryggju
með menn og bát,“ sagði hann.
Þá var björgunarsveitin Ok í Reykholti kölluð út
vegna bílveltu á Kaldadal. Tveir Íslendingar á mikið
breyttum bíl veltu bílnum en slösuðust ekki alvarlega.
Þegar björgunarsveitin kom á vettvang var þeim fé-
lögum orðið kalt en ekkert annað amaði að þeim. Sam-
kvæmt upplýsingum frá björgunarsveitinni Oki sóttist
heimferðin hægt vegna veðurs.
benedikt@mbl.is
Björgunaraðgerðir gengu vel fyrir sig við Siglunes og á Kaldadal