Morgunblaðið - 19.03.2015, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
„Þetta starf er annars eðlis. Hjá sauð-
fjárbændum er ég mest með sjálfan
mig en hjá Bændasamtökunum er
heilmikið starfsmannahald og meira
umleikis,“ segir Sigurður Eyþórsson,
sem færir sig á milli herbergja í
Bændahöllinni um næstu mánaða-
mót.
Stjórn Bændasamtaka Íslands til-
kynnti á starfsmannafundi á þriðju-
dagsmorgunn að Eiríkur Blöndal,
framkvæmdastjóri samtakanna frá
2008, mundi að eigin ósk láta af störf-
um um næstu mánaðamót og Sigurð-
ur Eyþórsson,
framkvæmda-
stjóri Lands-
samtaka sauð-
fjárbænda, tæki
við starfinu.
Sigurður segir
að um þrjátíu
starfsmenn séu
hjá Bænda-
samtökunum.
Framkvæmda-
stjóri annist starfsmannahaldið. „Við
rekum Bændablaðið, tölvudeild sem
smíðar og rekur skýrsluhaldsbúnað í
mörgum greinum og veitum ýmis-
konar þjónustu,“ segir Sigurður.
Sigurður er 44 ára og ólst upp í
Kaldaðarnesi í Flóa. Hann hefur ver-
ið framkvæmdastjóri Landssamtaka
sauðfjárbænda frá því um mitt ár
2007 en vann áður í fjórtán ár á skrif-
stofu Framsóknarflokksins, síðustu
árin sem framkvæmdastjóri.
Talsverðar breytingar hafa orðið á
rekstri Bændasamtakanna á síðustu
árum. Umfangið minkaði mikið við
það að ráðgjafarþjónustan var færð í
sérstakt félag, Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins. „Svo er verið að
skoða það hvernig eigi að hafa fé-
lagskerfi bænda ef og þegar tekna af
búnaðargjaldi nýtur ekki lengur við.
Ef sú breyting verður, munu verða
heilmiklar breytingar á starfsemi
þessara samtaka.“
Sigurður segir engar stórar breyt-
ingar ákveðnar. Bendir hann á að ný-
afstaðið búnaðarþing hafi ákveðið að
eiga Hótel Sögu áfram, í að minnsta
kosti þrjú ár. Eiríkur Blöndal muni
starfa fyrir hótelið í sex mánuði og
stýra skiptingu þess upp í rekstrar-
félag og fasteignafélag. Það sé heil-
mikið umstang.
Spurður um áhugasvið í starfinu
segir Sigurður: „Ég kem úr félags-
málageiranum, hef víðtæka þekkingu
á félagsmálum, hagsmunagæslu og
málum sem því tengjast. En enginn
veit allt og ég veit að hér er gott
starfsfólk. Ég hef unnið í þessu húsi
frá miðju ári 2007 og þekki flest fólkið
sem ég er að fara að vinna með núna.
Ég er spenntur fyrir nýjum áskor-
unum.“ helgi@mbl.is
Spenntur fyrir nýjum áskorunum
Sigurður Eyþórsson tekur við starfi framkvæmdastjóra Bændasamtaka Íslands af Eiríki Blöndal
Sigurður
Eyþórsson
Fyrsta skóflustungan að hofi Ása-
trúarfélagsins í Öskjuhlíð í Reykja-
vík verður tekin um leið og sól-
myrkvi verður um garð genginn í
fyrramálið.
Að sögn Ásatrúarfélagsins er
þetta fyrsta höfuðhof sem rís í Evr-
ópu í nærri þúsund ár.
Sérstök athöfn hefst á bygging-
arsvæðinu í Öskjuhlíð klukkan 8.38
við upphaf sólmyrkvans og verða
þá mynduð táknræn vébönd, kveikt
á kertum í höfuðáttum og staðar-
vættum blótað. Þegar myrkvinn
nær hámarki klukkan 9.37 verður
kveiktur eldur á þeim stað þar sem
helgidómurinn rís. Lúðrar verða
þeyttir, trumbur barðar og sigri
ljóssins fagnað með kveðskap og
tónlist. Sólmyrkvinn verður um
garð genginn 10.39 og á þeirri
stundu verður tekin fyrsta skóflu-
stungan og svæðið og samkoman
helguð.
Ásatrúarfélagið segir alla vel-
komna á þessa hátíðarstund.
Bygging hofs
hefst eftir
sólmyrkva
Fyrsta skóflu-
stungan á morgun
Morgunblaðið/Golli
Blót Ásatrúarmenn á jólablóti í
Öskjuhlíð þar sem hofið mun rísa.
Árið 2014 komu Íslendingasögur og
Íslendingaþættir út í nýjum þýðing-
um í Danmörku, Svíþjóð og í Nor-
egi. Í tilefni af þessari merku út-
gáfu verður í Norræna húsinu
dagskrá í dag kl. 17 á Café Lingua.
Þar verður rætt um áhrif Íslend-
ingasagna á eitt þekktasta skáld
Norðurlanda, Henrik Ibsen, og það
mikla verkefni að þýða Íslendinga-
sögurnar á norræn mál.
Jón Karl Helgason, prófessor í
bókmenntum við HÍ, mun ræða
hvernig Henrik Ibsen sótti í Íslend-
ingasögur í upphafi rithöfundarfer-
ils síns. Síðan munu þrír þýðendur
sagnanna segja frá reynslu sinni af
þýðingunum.
Áhrif Íslendinga-
sagna á Ibsen
Jón Karl Hann mun flytja erindi í dag.