Morgunblaðið - 19.03.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Miðvikudaginn 25. júlí 1956 stór-
skemmdist skemmtiferðaskipið MS
Stockholm eftir árekstur við annað
skemmtiferðaskip, SS Andrea
Doria, undan ströndum Massachus-
etts á austurströnd Bandaríkjanna.
Tæpum sextíu árum síðar, miðviku-
daginn 18. mars 2015, lagðist MS
Stockholm við bryggju í Reykjavík-
urhöfn en undir öðru nafni.
Árekstur skipanna er með þekkt-
ari sjóslysum sögunnar. SS Andrea
Doria var sagt öruggasta skip sem
Ítalir höfðu smíðað. Um borð voru
1.134 farþegar og 572 í áhöfn og fór
það leiðina milli Genóa og New York
á níu dögum. MS Stockholm var
mun minna skip. Um borð voru 534
farþegar og 208 manna áhöfn þegar
slysið varð. Það sigldi undir merkj-
um Swedish American Line.
Hér til hliðar má sjá mynd af MS
Stockholm eftir áreksturinn (vinstri
myndin) og SS Andrea Doria eftir að
það var byrjað að sökkva. Fyrir neð-
an er svo mynd af MS Stockholm
eins og það leit út í Reykjavík í gær.
Skipið heitir nú Azore og siglir
undir portúgölskum fána.
Röng viðbrögð í þokunni
Lýsingar á aðdraganda slyssins
eru dramatískar. Mikil þoka var og
þurftu áhafnirnar að notast við
ratsjá. Þær vissu hvor af annarri og
breyttu stefnu til að koma í veg fyrir
slys. Klukkan var að ganga tólf um
kvöld og svartamyrkur.
Áhöfn SS Andrea Doria tók stefn-
una til hafnar en áhöfn sænska
skipsins ætlaði sér að auka bilið milli
skipanna en með þveröfugum afleið-
ingum. Skipin nálguðust hvort ann-
að og undir lokin sáust skipin í þok-
unni. Gerðu áhafnirnar þá
örvæntingarfullar tilraunir til að
forða árekstri en það var um seinan.
Alls 52 farþegar um borð í SS Andr-
ea Doria týndu lífi og fimm til við-
bótar í áhöfn MS Stockman.
Þrátt fyrir að vera mikið laskað
sigldi MS Stockholm með 327 far-
þega og 245 manna áhöfn af SS
Andrea Doria til hafnar í New York.
Tæplega 1.100 farþegar fengu því
far með öðrum skipum.
Nálæg skip komu til björgunar
Ellefu tímum eftir áreksturinn
var ítalska skipið horfið í sæ og varð
það farþegum til björgunar að það
var lengi að sökkva. Nálæg skip
komust á vettvang í tæka tíð og var
stórslysi í ætt við Titanic-slysið 44
árum áður þar með afstýrt.
Nýr kafli í sögu MS Stockholm
hófst í ársbyrjun 1960 þegar það var
selt til Austur-Þýskalands. Fékk
skipið þá nafnið Völkerfreundschaft
og sigldi undir því nafni til 1985.
Fjórum árum síðar var skipið selt
til ítalskra fjárfesta og var því svo
siglt til Genóa, heimahafnar SS
Andrea Doria. Gáfu ítalskir fjöl-
miðlar þá fleyinu nafnið „skip dauð-
ans“. Það var endurbyggt og hafði
því verið gefið nafnið Aþena þegar
sjóræningar umkringdu það í Aden-
flóa, milli Jemens og Sómalíu, í des-
ember 2008.
„Skip dauðans“ við Íslandsstrendur
Eitt sögufrægasta skemmtiferðaskip siglingasögunnar lagðist við Reykjavíkurhöfn í gærmorgun
Fyrir tæpum 60 árum sigldi skipið á annað skemmtiferðaskip Varð síðar fyrir árás sjóræningja
Ljósmynd/Gísli Jóhann Hallsson
Við Reykjavíkurhöfn MS Stockholm heitir nú MV Azores. Skipið hefur lent í ýmsum hremmingum.
Ljósmynd/Wikipedia
Stórskemmt Skemmtiferðaskipið MS Stockholm eftir áreksturinn.
Ljósmynd/Wikipedia
Harmleikur SS Andrea Doria fær vota gröf við strendur Bandaríkjanna.
„Þetta var bjartur og fagur laug-
ardagsmorgunn og í slíkri blíðu er
eins og fólk slaki á öryggisvitund
sinni. Í vondu veðri ráfar það ekki
jafnmikið um svæðið,“ segir Linda
Guðmundsdóttir, landvörður við
Gullfoss.
Þegar Linda kom að náttúruperl-
unni einn fagran laugardagsmorgun
blasti við henni ljót sjón. Nokkrir
ferðamenn höfðu hunsað lokun á
neðri stígnum, farið svo út af stígn-
um og gengið út á íshengju sem
hallaðist nokkra metra fram af
klettabrúninni sjálfri. Á stuttum
tíma höfðu margir farið í fótsporin
og skilið svæðið eftir úttraðkað, alla
leið út á ystu nöf. Mildi er talin að
ekki varð mannskætt slys vegna
þessa athæfis.
Linda setti aukagirðingar við
keðjurnar sem loka aðgenginu að
neðri stígnum og hækkaði girðingar
þar sem ferðamennirnir höfðu ver-
ið. „Það gerist of oft að ferðamenn
virði ekki lokanir. Þarna virtist fólk
ekki átta sig á að það stæði ekki á
föstum grunni heldur nánast á lyg-
inni einni saman. Okkur sem vorum
að vinna þarna brá alveg rosalega
þegar við sáum þetta,“ segir Linda.
benediktboas@mbl.is
Skýrt Það þarf einbeittan brotavilja til að fara framhjá þessum lokunum við
Gullfoss. Keðjur, bönd og skýr skilti blasa við gestum náttúruperlunnar.
Mikill brotavilji að
virða ekki lokun
Heppnir ferðamenn við Gullfoss
Hálsmen
29.900
Hálsmen
14.900
Bankastræti 12 | 101 Reykjavík | Sími 551 4007skartgripirogur.is
Eyrnalokkar
14.900
Hringur
16.900
Hálsmen
17.900
Ný skartgipalína
Hringur
17.900
Hringur
29.900