Morgunblaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Þú finnur bílinn á bilo.is Skráðu bílinn á bilo.is
PÁSKALEIKUR
Deila, líka og kvitta á facebook
RÚV fer ekki með samningsumboðið í deilunni, heldur
er það í höndum Samtaka atvinnulífsins. „Við róum að
því öllum árum að leysa þetta mál með farsælum
hætti. Það sem steytir á er að RSÍ fer fram á sér-
kjarasamning en stefna RÚV hefur verið að fylgja SA í
heildarsamningum og gera svo sérsamninga sem
snúa að réttindum og skyldum viðkomandi hóps,“
segir Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri. Í fyrradag
lagði SA fram tilboð sem Magnús telur að mæti helstu
efnislegu sjónarmiðum.
Verða útsendingar hjá RÚV ef af verkfallinu verður?
„Ef til verkfalls kæmi er ljóst að það myndi hafa mikil áhrif. Hins vegar
er ég bjartsýnn á að það takist að leysa þetta áður en til þess kemur,
enda liggur metnaður okkar í að leiða þetta farsællega til lykta.“
Hefði mikil áhrif
SAMTÖK ATVINNULÍFSINS FARA MEÐ SAMNINGSUMBOÐIÐ
Magnús Geir
Þórðarson
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Verði af boðuðum vinnustöðvunum
þeirra félagsmanna Rafiðnaðar-
sambandsins sem starfa hjá RÚV
gæti stór hluti út-
sendinga í sjón-
varpi og útvarpi
fallið niður. Krafa
RSÍ er að gerður
verði sérkjara-
samningur fyrir
þeirra hönd, nú
séu réttindi
starfsmanna mis-
munandi og fari
eftir því hvort
þeir hófu störf
fyrir eða eftir að RÚV var gert að
hlutafélagi.
55 félagsmenn í Félagi íslenskra
rafvirkja, Félagi rafeindavirkja og
Félagi tæknifólks í rafiðnaði sem eru
félög innan vébanda RSÍ, starfa hjá
RÚV við ýmis tæknistörf, m.a. við
útsendingar dagskrár, hljóðvinnslu
og upptökur. Í fyrradag lauk at-
kvæðagreiðslu þeirra um boðun
vinnustöðvunar og af þessum 55
sögðu 44 eða 95,7% já. Því verður
gripið til vinnustöðvunar hjá RÚV
náist samningar ekki fyrir 26. mars.
Mismunandi réttindi
Fyrsta vinnustöðvunin mun
standa frá kl 6:00 fimmtudaginn 26.
mars til kl 6:00 mánudaginn 30.
mars. Sú næsta er fyrirhuguð frá kl
6:00 23. apríl til kl 6:00 13. apríl.
Fimmtudaginn 23. apríl kl 6:00 skal
leggja niður störf ótímabundið.
„Krafan er að þessir starfsmenn
fái gerðan sérkjarasamning sem tek-
ur á réttindum og skyldum þeirra
starfa sem þeir sinna,“ segir Krist-
ján Þórður Snæbjarnarson, formað-
ur RSÍ. „Þegar RÚV var ríkisfyr-
irtæki voru þeir á ríkiskjarasamn-
ingum. Þegar RÚV varð hlutafélag
var það krafa Samtaka atvinnulífsins
að þeir færu á samninga RSÍ/SA.
Þeir starfsmenn sem voru fyrir
héldu réttindum sínum en síðan hafa
bæst við starfsmenn og þeir eru með
önnur réttindi. Það er grundvallarat-
riðið að fólk sem vinnur sömu störf
hlið við hlið sé með sömu réttindi,
kjör og skyldur.“
Að sögn Kristjáns er m.a. um að
ræða veikinda- og orlofsrétt, vakta-
fyrirkomulag, uppsagnarfrest og
vaktaálag. „Stóri punkturinn er skil-
greiningar á störfunum. Margir
tæknimenn eru t.d. ekki skilgreindir
í almenna kjarasamningnum, það
þarf að skilgreina stöðu manna í
launatöflum.“
Hafa lítið rætt laun
Snúast kröfurnar eingöngu um
réttindi, ekkert um launagreiðslur?
„Við erum fyrst og fremst að ræða
réttindapakkann á þessu stigi, við
erum ekki farin að ræða launapakk-
ann svo neinu nemi, það verður rætt
um það síðar í ferlinu.“
Næsti fundur í deilunni hefur ekki
verið boðaður, en Kristján segir lík-
legt að svo verði innan skamms, því
stutt sé í boðaðar aðgerðir. Hann
segir stjórnendur RÚV hafa rætt við
trúnaðar- og samningamenn RSÍ og
ekki sé annað að heyra en að vilji sé
til að leysa deiluna áður en til verk-
falla kemur. „Hins vegar hafa þeir
ekki lagt neitt fram sem gæti leyst
málið. En það er ljóst að ef af þessu
verður, þá verður lítið um útsend-
ingar frá RÚV“
Verður stilli-
myndin í sjón-
varpinu 26. mars?
Rafiðnaðarmenn hjá RÚV boða fjög-
urra daga vinnustöðvun í næstu viku
Kristján Þórður
Snæbjarnarson
SKÁK
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Hollendingurinn Erwin L’Ami sigr-
aði á Reykjavíkurskákmótinu sem
lauk í Hörpu í gær, hlaut 8 ½ vinning
af 10 mögulegum. Hann hafði tryggt
sér sigurinn fyrir umferðina í gær en
tapaði þá nokkuð óvænt með hvítu
fyrir sigurvegaranum frá Reykjavík-
urmótinu 2013, Úkraínumanninum
Pavel Eljanov sem varð varð í 2. – 3.
sæti ásamt Frakkanum Fabien Lib-
iszewski. Þeir hlutu báðir 8 vinninga.
Íslensku skákmennirnir náðu ekki
að blanda sér í baráttuna um efsta
sætið en flesta vinninga hlutu þeir
Henrik Danielsen, sem vann David
Navara glæsilega í lokaumferðinni,
og Hannes Hlífar Stefánsson sem
vann án taflmennsku þar sem and-
stæðingur hans, rúmenska skákkon-
an Christina Foisor gat ekki mætt til
leiks vegna breytingar á ferðáætlun.
Þeir hlutu báðir 7 ½ vinninga og
urðu í 4.–14. sæti. Hannes raðast í
11. sæti og Henrik í 12. sæti.
Það er nánast hefð fyrir því í sögu
Reykjavíkurmótanna að við eigum
a.m.k. einn keppanda sem er í færum
um að berjast um sigurinn og Hann-
es Hlífar hefur ekki látið sitt eftir
liggja á því sviði og hefur fimm sinn-
um orðið efstur einn eða með öðrum.
En þegar nokkrar umferðir voru eft-
ir af mótinu var útséð um að nokkur
okkar manna ætti möguleika á sigri.
Fyrirfram mátti ætla að Hannes
Hlífar og Hjörvar Steinn ættu bestu
möguleikana á toppsæti.
Misráðin ákvörðun
Það reyndist hinsvegar misráðin
ákvörðun hjá þeim báðum að taka ½
vinnings yfirsetu. Þeir virtust báðir
gleyma því að þetta Reykjavíkur-
skákmót með tíu umferðum og tæp-
lega 300 þátttakendum er meira í
ætt við spretthlaup en langhlaup og
hvíld er einfaldlega ekki í boði ætli
menn sér að vinna mótið.
Mótshaldið sem kalla mætti
skákhátíð var skákhreyfingunni til
mikils sóma og lögðu fjölmargir
hönd á plóg. Hliðarviðburðir á borð
við „barna-blitz“, knattspyrnukeppni
og „pub-quiz“ lífguðu heilmikið uppá
mótshaldið, einnig koma heims-
meistarans Magnúsar Carlsen sem
ásamt landa sínum Jon Ludwig
Hammer færði spurningakeppnina
vinsælu upp á nýtt plan.
Þá heimsótti Kirsan Iljumzhinov,
forseti FIDE, Ísland í fyrsta sinn,
einnig Zurab Azmaparashvili, forseti
evrópska skáksambandins, en þeir
áttu báðir brýnt erindi vegna Evr-
ópukeppni landsliða sem fram fer í
Reykjavík í nóvember á þessu ári.
Fagmannlega var staðið að
streymis-útsendingum sem voru í
höndum Ingvars Jóhannessonar og
vinkonu okkar frá Luxemburg,
Fionu Stein-Atoni. Nýr aðalmagni
Reykjavíkurmótsins fjárfesting-
arfyrirtækið Gamma vann vel með
mótshaldaranum og einn forsprakki
þess, Agnar Tómas Möller, tók sjálf-
ur þátt í mótinu og stóð sig vel.
Einn aðalkosturinn við þetta form
Reykjavíkurmótsins er að fjölmargir
ungir skákmenn öðlast mikilsverða
reynslu og margir hækkuðu duglega
að stigum. Topp fimm lítur svona út:
1. Óskar Víkingur Davíðsson 150
stig, 2. Hilmir Freyr Heimissson 112
stig, 3. Heimir Páll Ragnarsson 103
stig, 4. Veronika Steinunn Magn-
úsdóttir 86 stig, 5. Oliver Aron Jó-
hannesson 82 stig.
Hvað varðar góða frammistöðu
annarra keppenda má nefna að Ás-
kell Örn Kárason hlaut 6 ½ vinning
og ungu mennirnir i Skákfélagi Ak-
ureyrar, Símon Þórhallsson og Jón
Kristinn Þorgeirsson, áttu báðir gott
mót og hækkuðu einnig myndarlega
að stigum.
Hinn 17 ára gamli Oliver Aron Jó-
hannesson átti frábært mót, hlaut 7
vinninga eins og Hjörvar Steinn
Grétarsson og urðu þeir í 15. – 31.
sæti. Oliver gerði sér lítið fyrir og
vann fjórar síðustu skákir sínar og í
næst síðustu umferð lagði hann
þekktan sænskan stórmeistara.
Reykjavíkurskákmótið 2015;
9. umferð:
Oliver Aron Jóhannesson – Ralf
Åkesson
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 a6 5. Bd3 Bc5 6. Rb3 Be7 7.
Dg4 g6 8. De2 d6 9. O-O Rd7 10. c4
b6 11. Rc3 Bb7 12. f4 Dc7 13. Bd2
Rgf6 14. Hae1 h5 15. Rd4 Hc8 16.
e5?!
Vafasamur leikur sem lukkast vel.
Mun betra er 16. Kh1 eða 16. b4.
16. ...dxe5 17. fxe5 Bc5?
Það er fuðurlegt að svartur skuli
ekki nýta sér helstu kosti þess að
hafa leikið 14. ... h5. Eftir 14. ... Rg4!
riðar e5-peðið til falls og fórnir á g6
eða e6 ganga ekki upp.
18. exf6 Bxd4+ 19. Kh1 Rxf6
Og hér var betra að hrókera stutt.
20. Bxg6! Dxc4
Ekki gengur 20. ... fxe6 21. Dxe6+
Kf8 22. Hxf6+ Bxf6 23. Dxf6+ Kg8
24. He7 og vinnur.
21. Dxc4 Hxc4 22. Hxe6+! Kd7 23.
Bxf7 Hc6 24. He2 Hh7 25. Bg6! Hg7
26. Bf5+ Kd8 27. Bh6!
Biskuparnir fara hamförum.
27. ... He7 28. Hd2 Hc4 29. Re2!
– og Åkesson gafst upp.
Morgunblaðið/Eggert
Skákhátíð Reykjavíkurskákmótið þótti takast vel og vera skákhreyfing-
unni til sóma. Margir lögðu hönd á plóg og hliðarviðburðir lífguðu upp á.
Öruggur sigur þrátt
fyrir óvænt tap
Hollendingurinn Erwin L’Ami einn í efsta sæti Margir
ungir íslenskir skákmenn hækkuðu verulega að stigum