Morgunblaðið - 19.03.2015, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Nánar i upp l ýs inga r á he imas íðu VM
www.vm. i s
VM-Félag vélstjóra og málmtæknimanna - Stórhöfða 25 - 110 Reykjavík - 575 9800 Landsfélag í vél- og málmtækni
AÐALFUNDUR VM
Dagskrá fundarins hefst kl. 17:00
• Setning aðalfundar og kosning fundarstjóra
• Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins
• Reikningar félagsins og sjóða
• Umræður um skýrslu og reikninga
• Kjör endurskoðenda
• Reglugerðar – og lagabreytingar
• Ákvörðun stjórnarlauna
• Kjör í nefndir og stjórnir
• Önnur mál
Boðið verður upp á veitingar eftir fundinn
27. mars 2015 að Hilton Reykjavík Nordica (H-I)
Gert er ráð fyrir að um 8.000 erlend-
ir ferðamenn leggi leið sína til Fær-
eyja og allt að 2.000 til Svalbarða í
því skyni að fylgjast með almyrkva á
sólu sem verður þar á morgun.
Ferill almyrkvans liggur sunnan
og austan við Ísland og fer yfir Fær-
eyjar og Svalbarða, en hér á landi
verður mjög verulegur deildar-
myrkvi. Í Reykjavík hylur tungl 97%
af þvermáli sólar en 99,4% á Austur-
landi.
Verð á gistingu hækkaði
Almyrkvinn hefst á Svalbarða
klukkan 11.11 að staðartíma, klukk-
an 10.11 að íslenskum. Í stærsta bæ
eyjaklasans, Longyearbyen, sem er
með 2.100 íbúa, eru nær öll hótel og
gistihús fullbókuð. Verðið á þeim
fáu herbergjum sem voru laus í vik-
unni var hækkað og nóttin í tveggja
manna herbergi kostaði 5.000
norskar krónur, jafnvirði 84.000 ís-
lenskra. Leiguverð íbúða í bænum
fimmfaldaðist vegna almyrkvans.
„Við höfum miklar áhyggjur af
því að fólk komi hingað án þess að
tryggja að það hafi þak yfir höf-
uðið,“ hefur fréttaveitan AFP eftir
Ronny Brunvoll, formanni samtaka
fyrirtækja í ferðaþjónustu á Sval-
barða.
Margir ferðamannanna koma frá
meginlandi Evrópu en sumir þeirra
frá Bandaríkjunum, Japan og Ástr-
alíu. Þetta er síðasti almyrkvi á sólu
sem sést frá Evrópu til 12. ágúst
2026. bogi@mbl.is
Flykkjast í almyrkvann
80%
60%
40%
20%
08.30
09.00
09.30
10.00
11.00
10.30
Deildarmyrkvi hefst
07.40
Almyrkvi
hefst
09.09
09.45
11.50
Myrkvinn í hámarki
(2 mín., 46 sek.)
Deildar-
myrkva
lýkur
Norður-
póllinn
10.21
Almyrkva
lýkur
Heimild: NASA
Almyrkvi á norðurslóðum
20. mars
Jörðin
Tunglið
Deildarmyrkvi
Almyrkvi
Sól
Braut tunglsins
Svalbarði
Færeyjar100%myrkvi
Grænland
2015
Þúsundir ferða-
manna til Sval-
barða og Færeyja
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Úrslit þingkosninganna í Ísrael í
fyrradag eru mikill og óvæntur sigur
fyrir Benjamin Netanyahu forsætis-
ráðherra sem tókst að snúa vörn í
sókn á lokaspretti kosningabarátt-
unnar með því að leggja áherslu á
öryggismálin.
Hægriflokkur Netanyahus, Lik-
ud, fékk 30 þingsæti af 120 og skaust
fram úr Síonistabandalaginu sem
hafði mælst með fjögurra sæta for-
skot í fylgiskönnunum síðustu vik-
una fyrir kosningarnar. Síonista-
bandalagið er kosningabandalag
Verkamannaflokksins og miðflokks
sem er undir forystu Tzipis Livnis,
fyrrverandi dómsmála- og utanríkis-
ráðherra.
Líkur á sex flokka stjórn
Talið er nánast öruggt að Likud
geti myndað samsteypustjórn með
þremur trúarflokkum, Heimili gyð-
inga, Shas og Sameinaða tóra-
flokknum, og hægriflokknum Israel
Beiteinu (Ísrael er heimili okkar).
Samtals fengu þessir fjórir flokkar
27 þingsæti. Það nægir Likud ekki
til að mynda meirihlutastjórn og lík-
legt er því að flokkurinn leiti einnig
eftir samstarfi við mið-hægriflokk-
inn Kulanu sem fékk tíu þingsæti og
er í oddastöðu á þinginu. Flokkurinn
var stofnaður í nóvember sl., er und-
ir forystu Moshes Kahlons, fyrrver-
andi ráðherra og þingmanns Likud,
og lagði áherslu á efnahagsmál í
kosningunum. Þessir sex flokkar eru
með alls 67 sæti af 120 á þinginu.
Netanyahu gæti einnig myndað
meirihlutastjórn með Síonista-
bandalaginu en léði ekki máls á því í
kosningabaráttunni. Stjórnmála-
skýrendur segja að Moshe Kahlon
sé eini maðurinn sem geti knúið
Netanyahu til að fallast á að stóru
flokkarnir tveir semji um stjórnar-
samstarf. Netanyahu hefur boðið
Kahlon embætti fjármálaráðherra
til að laða hann í nýja hægristjórn.
Í kosningabaráttunni lögðu marg-
ir frambjóðendanna áherslu á efna-
hagsvanda landsins, einkum minni
kaupmátt og aukinn húsnæðis-
kostnað sem hefur torveldað ungu
fólki að leigja eða kaupa húsnæði.
Netanyahu tókst þó á lokasprett-
inum að beina athygli kjósendanna
að öryggismálunum, t.a.m. hættunni
sem Ísrael gæti stafað af kjarna-
vopnaáætlun klerkastjórnarinnar í
Íran. Hann varaði einnig við hætt-
unni af hryðjuverkasamtökum ísl-
amista í Sýrlandi og Írak og svaraði
játandi í viðtali þegar hann var
spurður hvort hann myndi hafna
stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis.
Hann lofaði einnig að láta reisa þús-
undir íbúða fyrir gyðinga á herteknu
svæðunum og sjá til þess að Austur-
Jerúsalem yrði aldrei höfuðborg
sjálfstæðs Palestínuríkis.
Netanyahu varaði ennfremur við
auknum áhrifum Palestínumanna á
þinginu vegna óvenjumikillar kjör-
sóknar arabíska minnihlutans.
Leiðtogar Palestínumanna sögðu
að úrslit kosninganna í Ísrael yrðu
til þess að þeir hertu baráttu sína
fyrir stofnun Palestínuríkis. „Ísrael-
ar kusu leið kynþáttahyggju, her-
náms og stærri landtökubyggða og
völdu ekki leið samninga og sam-
starfs við okkur,“ sagði einn forystu-
manna Frelsissamtaka Palestínu-
manna (PLO).
14
Skipting þingsætanna í Ísrael eftir kosningarnar í fyrradag
Flokkur Netanyahus fékk mest fylgi
Meretz
Yesh Atid (miðflokkur)
Sameinaði tóra-flokkurinn
Shas
Heimili
gyðinga
Síonista-
bandalagið
(mið-vinstriflokkur)
Kulanu (mið-hægriflokkur)
sæti
Likud
Israel
Beiteinu
Sameigin-
legi listinn
(bandalag
arabískra
flokka)
4
24
11 10 6 7
30
6
8
120
Sigraði með
því að hamra á
öryggismálum
Netanyahu stefnir að hægristjórn
AFP
Sigurræða Benjamin Netanyahu lýsti yfir sigri í þingkosningunum í Ísrael
þegar hann ávarpaði stuðningsmenn sína í Tel Aviv í fyrrakvöld.
Fengu aðeins 39 sæti
» Sameiginlegi listinn, banda-
lag arabískra flokka, varð þriðji
stærstur og fékk 14 þingsæti.
Leiðtogi listans sagði fyrir
kosningarnar að hann tæki
ekki þátt í stjórnarmyndun.
» Tveir flokkar, miðflokkurinn
Yesh Atid og vinstriflokkurinn
Meretz, höfðu léð máls á
stjórnarsamstarfi við Síon-
istabandalagið, en þessir þrír
flokkar fengu aðeins 39 sæti.