Morgunblaðið - 19.03.2015, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Allar tæknilegar upplýsingar, snið og teikningar, eru fyrirliggjandi hjá okkur.
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Viðhaldsfríir gluggar, hurðir, sólskálar o.fl.
Opið hús
laugardaginn 21.mars
Kynnum allt það nýjasta sem finna má í
gerð garðskála, svalalokana, hurða og glugga.
Renndu við í nýja sýningarsalnum okkar Smiðsbúð 10.
30 ára reynsla
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • solskalar@solskalar.is • www.solskalar.is
Laugardaginn 21. mars
kl. 10–16
30 ára reynsla
Kynnum allt það nýjasta sem finna má í
gerð garðskála, svalalokana, hurða og glugga
Renndu við í nýja sýningarsalinn okkar Smiðsbúð 10
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
ávarpaði tugi þúsunda stuðnings-
manna sinna við Kremlarmúra í gær
þegar þeir söfnuðust þar saman til að
hlýða á útitónleika í tilefni af því að ár
er liðið frá því að Krímskagi var inn-
limaður í Rússland.
Pútín kom fram á sviði fyrir fram-
an mannfjöldann sem fagnaði honum
ákaft þegar hann réttlætti innlimun-
ina. Íbúar Krímskaga fengu frí frá
vinnu til að taka þátt í hátíðarhöldum
í tilefni af afmælinu, meðal annars
tónleikum og flugeldasýningum.
Á sama tíma gagnrýndu mannrétt-
indasamtökin Amnesty International
yfirvöld á Krímskaga fyrir mannrétt-
indabrot á andstæðingum rússnesku
stjórnarinnar. Margir þeirra hafa flú-
ið en þeir sem eru enn á skaganum
sæta ofsóknum yfirvaldanna sem eru
staðráðin í því að þagga niður í and-
stæðingum sínum, að sögn fulltrúa
Amnesty.
Rússar
fagna inn-
limun Krím
Mannréttindabrot
yfirvalda gagnrýnd
AFP
Afmælishátíð Pútín ávarpar stuðn-
ingsmenn sína í miðborg Moskvu.
Byssumenn urðu að minnsta kosti
nítján manns, þeirra á meðal
sautján erlendum ferðamönnum,
að bana í skotárás á safn nálægt
þinghúsinu í Túnisborg í gær.
Habib Essid, forsætisráðherra
Túnis, sagði að tveir árásarmenn,
vopnaðir Kalashníkov-rifflum,
hefðu verið skotnir til bana og leit-
að væri að hugsanlegum sam-
verkamönnum þeirra.
Á meðal þeirra sem létu lífið í
árásinni voru ferðamenn frá Pól-
landi, Ítalíu, Þýskalandi og Spáni.
Tveir Túnisbúar biðu einnig bana
og annar þeirra var lögreglumað-
ur.
38 aðrir særðust í árásinni,
þeirra á meðal ferðamenn frá
Frakklandi, Suður-Afríku, Pól-
landi, Ítalíu og Japan. Alls voru
um 100 ferðamenn í safninu þegar
árásin var gerð. Nefndafundum
var slitið í þinghúsinu þegar skýrt
var frá árásinni og þingmönnunum
var sagt að halda kyrru fyrir í
aðalsal byggingarinnar.
Engin hreyfing hafði lýst árás-
inni á hendur sér í gær. Þetta er
mannskæðasta árás í Túnis frá
sprengjutilræði sem kostaði 14
Þjóðverja, tvo Frakka og fimm
Túnisbúa lífið á eyjunni Djerba ár-
ið 2002.
Öfgasamtök íslamista hafa sótt í
sig veðrið í Túnis frá því að Zine
El Abidine Ben Ali einræðisherra
var steypt af stóli í byltingu eftir
mótmæli sem voru kveikjan að ar-
abíska vorinu svokallaða. Um 3.000
Túnisbúar hafa farið til Íraks, Sýr-
lands og Líbíu til að berjast með
vígamönnum íslamista og talið er
að um 500 þeirra hafi snúið aftur
til Túnis.
Blóðbað í safni í Túnisborg
AFP
Skotárás Sérsveitarmenn á varðbergi við safnið í Túnisborg eftir árásina.
Skutu 17 erlenda ferðamenn og tvo Túnisbúa til bana
Brjóstagjöf virð-
ist hafa jákvæð
áhrif á greind
fólks ef marka
má nýja rann-
sókn sem gerð
var í Brasilíu.
Rannsóknin
náði til tæplega
3.500 barna. Þau
sem höfðu verið
á brjósti í langan tíma reyndust
vera með hærri greindarvísitölu á
fullorðinsárum.
Fréttavefur BBC hefur eftir sér-
fræðingum að þessi niðurstaða
virðist staðfesta að ráðlegt sé að
börn séu á brjósti að minnsta kosti
fyrstu sex mánuði ævinnar. Móðirin
eigi þó að ákveða það sjálf hvort
hún hafi barnið á brjósti.
Niðurstaða rannsóknarinnar er
birt í tímaritinu Lancet Global
Health. Þar kemur fram að aðrir
þættir geta haft áhrif á greindina
en reynt var að taka tillit til þeirra,
m.a. menntunar móður, tekna fjöl-
skyldunnar og fæðingarþyngdar.
Brjóstagjöf virðist
hafa áhrif á greind
BRASILÍA