Morgunblaðið - 19.03.2015, Blaðsíða 35
fessional Women – BPW sem eru
alþjóðleg kvennasamtök sem styðja
við málefni og velferð kvenna og
var forseti BPW á Íslandi árin
2010-2013.
Áhugamál mín eru auðvitað fjöl-
skyldan mín og barnabörnin og svo
allt er lýtur að starfi mínu og hag
viðskiptavina minna við kaup og
sölu fasteigna. Einnig fer ég á skíði
á hverju ári til Austurríkis en syst-
ir mín býr í Lungau, sem er í aust-
urrísku Ölpunum, þar sem hún rek-
ur skíðahótel, svo ég er afar vel
sett hvað þetta varðar og verð ein-
mitt stödd þar á afmælisdaginn.
Fjölskylda
Eiginmaður Ingibjargar var
Ólafur Stefánsson, f. 5.1. 1952, d.
18.12. 2001, viðskiptafræðingur og
löggiltur fasteignasali. Foreldrar
hans: Stefán Jóhann Ólafsson, f.
19.8. 1917, d. 17.2. 1997, háls-, nef-
og eyrnalæknir, og kona hans Kol-
brún Ólafsdóttir Proppé, f. 12.4.
1925, húsmóðir í Reykjavík.
Börn Ingibjargar og Ólafs eru
Þórður Sigfús Ólafsson, f. 24.11.
1973, löggiltur fasteignasali, býr í
Reykjavík; Stefán Jóhann Ólafs-
son, f. 6.1. 1981, löggiltur fast-
eignasali, býr í Reykjavík; Ólafur
Már Ólafsson, f. 16.12. 1986, við-
skiptafræðingur og MSc í alþjóða-
viðskiptum og er að ljúka námi til
löggildingar í fasteignasölu, býr í
Reykjavík. Maki hans: Þóra Sif
Friðriksdóttir, f. 29.12. 1987, við-
skiptafræðingur, MSc í alþjóða-
viðskiptum og er að ljúka meistara-
námi í lögfræði við HR. Börn Ólafs
og Þóru: Elísabet Þóra Ólafsdóttir,
f. 29.2. 2012, og Þórdís Borg Ólafs-
dóttir, f. 9.12. 2014.
Systur Ingibjargar: Ásdís Þórð-
ardóttir, f. 2.1. 1948, d. 7.7. 1991,
flugfreyja og löggiltur fasteigna-
sali, var búsett í Garðabæ, og Þur-
íður Þórðardóttir f. 9.5. 1963, starf-
aði um árabil í Búðaðarbankanum,
búsett í Austurríki en yfir sumar-
mánuðina býr hún á Akureyri og
rekur þar m.a. Hótel Akureyri.
Foreldrar Ingibjargar: Þórður
Sigfús Þórðarson, f. 19.3. 1925, d.
24.9. 1994, rakarameistari í Vest-
mannaeyjum og kaupmaður þar og
síðar í Reykjavík og síðar útgerð-
armaður á Eyrarbakka, og Theo-
dóra Elísabet Bjarnadóttir, f. 3.1.
1924, d. 13.6. 2011, hárgreiðslu-
meistari í Vestmannaeyjum, kaup-
maður í Vestmannaeyjum og síðar í
Reykjavík og starfaði síðast sem
hárgreiðslukona á Grund.
Úr frændgarði Ingibjargar Þórðardóttur
Ingibjörg
Þórðardóttir
Þorbjörg Salína Þorsteinsdóttir
húsfreyja á Bakka
Valdimar Magnússon
bóndi á Bakka í
Skeggjast.sókn, N-Múl.
Guðrún Stefanía Valdimarsdóttir
húsfreyja í Miðfirði, síðar á Þórshöfn
Bjarni Oddsson
b. í Miðfirði á Langanes-
strönd, N-Múl.
Theodóra Elísabet
Bjarnadóttir
hárgreiðslum. í
Eyjum og Rvík
Gunnhildur Vilhelmína
Bjarnadóttir
húsfreyja á Felli
Oddur Gunnarsson
b. á Felli á Strönd, Skeggjast.hr., N-Múl.
Magnea Bjarnad. húsfr
á Bjarnast. í Axarfirði
Halldór Bjarnason aðjúnkt
við HÍ og doktor í hagsögu
Elsa Axelsd. hús-
fr. á Y-Brekkum
í Sauðaneshr.,
N-Þing.
Axel Pálmason
hagfr. hjá AGS
Þorbjörg
Bjarnad.
sjúkraliði í
Reykjavík
Ásdís
Þórðardóttir
flugfr. og lögg.
fasteignasali
Þuríður
Þórðardóttir
hótelstjóri á
Akureyri og í
Austurríki
Helga María
Þorvarðardóttir
ljósmóðir og
húsfreyja
Þuríður Ólafsdóttir
húsfreyja í Rvík
Þórður Sigfús
Vigfússon
sjóm., drukknaði í
Hull 1924
Þórður Sigfús Þórðarson
rakarameistari í Eyjum,
kaupm. og útgerðarm.
Sigríður Vigfúsdóttir
húsfreyja í Hamrakoti
Vigfús Höskuldsson
b. í Hamrakoti í Þingeyra-
sókn, A-Hún.
Guðmundur
Theodór Jóns-
son löggiltur
fasteignasali
Arnar Þór Jóns-
son lögfr. og
lektor við HR
Daníel Smára-
son hótelstjóri á
Hótel Akureyri
Ólafur Bjarnason
trésmiður á
Eyrarbakka
Sigríður Ólafsd.
húsfr. á Eyrarb.
og Selfossi
Páll Sigurðsson
skrifstm. hjá
Framl.ráði landb.
Þorsteinn Pálsson
fv. forsætisráðherra
Ólafur Bjarnason
söðlasm. og b. á Eyrarbakka
Lilja Ólafsdóttir
húsfreyja í Króka
í Flóa, Árn.
Ólafur Halldórssson
handritafræðingur
við Árnastofnun
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
95 ára
Judith Júlíusdóttir
90 ára
Guðrún Jónsdóttir
85 ára
Elís Pétur Sigurðsson
Jónína Sveinbjörnsdóttir
80 ára
Finnur Stefán
Guðmundsson
Inga A. Guðmundsdóttir
Jórunn Helga Sveinsdóttir
Stefán Gunnlaugur
Sveinsson
Stefán Karlsson
Steinar Marteinsson
75 ára
Gestur Ámundason
Guðbjörg Jónsdóttir
70 ára
Björg Margrét
Sigurgeirsdóttir
Friðrik Steingrímsson
Hallfríður Kristín
Skúladóttir
Kittý Stefánsdóttir
Nanna Hansdóttir
Sigríður Konráðsdóttir
Sigrún Jóhannsdóttir
Sigurður Vilmundsson
Soili Hellman-Erlingsson
Steinar Guðjónsson
Steindór Hálfdánarson
Örlygur Sigurðsson
60 ára
Ársæll Ármannsson
Freydís Harðardóttir
Katrín Gróa Jóhannsdóttir
Margrét Ásgeirsdóttir
Marta Loftsdóttir
Ómar Sigurbjörnsson
Steinunn Jónasdóttir
Valgerður Reynaldsdóttir
Þorvarður Óskarsson
50 ára
Bryndís Steinsdóttir
David Jeremy Flannery
Guðmunda Rut
Björnsdóttir
Jóhann Viggó Jónsson
40 ára
Bjarki Markússon
Bjarni Már Magnússon
Elín Ósk Hreiðarsdóttir
Erna Geirlaug Árnadóttir
Geir Gunnar Markússon
Jóhann Dalberg Sandridge
Jóhannes Snorrason
Kristinn Arnar Aspelund
Ólafur Hallgrímsson
Rósalind Hugbjört Ein-
arsdóttir
Sindri Páll Kjartansson
Sombat Prasarn
30 ára
Atli Örn Gunnarsson
Árni Theodór Long
Bryndís J. Sveinbjarn-
ardóttir
Guðni Þór Kristjánsson
Kristján Jóhannesson
Magnús Grétar Sölvason
Marek Kaban
Oddný Jónsdóttir
Ólafur Már Jónsson
Sigurrós Jóhannsdóttir
Víkingur Heiðar Arnórsson
Örvar Erling Árnason
Til hamingju með daginn
40 ára Haraldur er frá
Ásfelli í Hvalfjarðarsveit,
býr í Reykjavík, er orku-
verkfr. og framleiðslustj.
hjá Carbon Recycling.
Maki: Elín Heiða Þor-
steinsdóttir, f. 1984, leik-
skólakennari í Dalsskóla.
Börn: Þorbergur Óttar, f.
2012, og Steinunn Inga, f.
2014.
Foreldrar: Sigurður
Hjálmarsson, f. 1935, og
Bjarnfríður Haraldsdóttir,
f. 1940.
Haraldur
Sigurðsson
30 ára Haukur er Reyk-
víkingur en býr í Reykja-
nesbæ og er mannauðs-
ráðgjafi hjá Isavia.
Maki: Iðunn Kristín Grét-
arsdóttir, f. 1981, meist-
arnemi í reikningsskilum
og endurskoðun við HÍ.
Börn: Emilía Sigrún, f.
2008, og Hafþór Ingi, f.
2012.
Foreldrar: Örn Ólafsson,
f. 1942, og Sigrún Páls-
dóttir, f. 1947, bús. í
Reykjanesbæ.
Haukur Þór
Arnarson
30 ára Valgerður er Ís-
firðingur en býr í Reykja-
vík. Hún er með meistara-
gráðu í líf- og lækna-
vísindum og er sér-
fræðingur í skráningum
hjá Actavis.
Maki: Ingimar Finn-
björnsson, f. 1985, stýri-
maður á Dettifossi.
Dóttir: Sigurrós, f. 2009.
Foreldrar: Kristján Jó-
hann Guðmundsson, f.
1962, og Rannveig Hall-
dórsdóttir, f. 1962.
Jóna Valgerður
Kristjánsdóttir
Sigrún Harðardóttir varði doktors-
ritgerð sína við Félagsráðgjafardeild
Háskóla Íslands 13. júní 2014. Ritgerðin
ber heitið „Líðan framhaldsskólanem-
enda: Um námserfiðleika, áhrifaþætti
og ábyrgð samfélags“.
Menntun er talin ein mikilvægasta
undirstaða lífsgæða fyrir einstaklinga
og samfélög í upplýsingaþjóðfélagi nú-
tímans. Þegar horft er til menntunar
ungmenna gegnir framhaldsskólinn
veigamiklu hlutverki. Meginmarkmið
þessarar doktorsritgerðar (180 ECTS)
er að greina frá rannsókn á tengslum
sálfélagslegrar líðanar við upphaf náms
í framhaldsskóla og námsframvindu
með sérstakri áherslu á nemendur með
námserfiðleika. Byggt er á langtíma-
rannsókn meðal íslenskra ungmenna
við einn framhaldsskóla á Íslandi.
Rannsóknin er unnin út frá raðsniði (e.
explanatory sequential design) og sett í
samhengi við menntastefnu og breyt-
ingar á henni á rannsóknartíma, m.a.
með sérstakri greiningu á opinberum
skjölum og um-
ræðu um þá þætti
menntastefnunnar
sem varða efni rit-
gerðar. Meginnið-
urstöður benda til
þess að nemendur
sem standa höllum
fæti í námi búi við
lakari sálfélagslega
líðan við upphaf náms í framhaldsskóla
en aðrir. Önnur meginniðurstaða er að
stuðningur foreldra og skóla við nem-
endur sem gengur illa í námi þurfi að
byggjast á heildarnálgun til að auka lík-
ur á jákvæðri námsframvindu. Fengist
er við að skýra almennt menntunar-
markmið framhaldsskólans og það sið-
ferðilega hlutverk hans að skapa öllum
ungmennum jafna möguleika til virkrar
þátttöku í flóknu samfélagi. Niður-
stöður ritgerðarinnar geta verið fram-
lag til frekari rannsókna og stefnumót-
andi umræðna um framhaldsskólann
og samfélagslegt hlutverk hans.
Sigrún Harðardóttir
Sigrún Harðardóttir er fædd á Akureyri 30. mars 1956 og er dóttir hjónanna
Harðar Björnssonar skipstjóra og Erlu Sigurðardóttur húsmóður. Hún lauk BA-
prófi í uppeldisfræði frá HÍ árið 1988, starfsréttindanámi í félagsráðgjöf frá HÍ ár-
ið 1989, diplómunámi í námsráðgjöf frá HÍ árið 1993, uppeldis- og kennslufræði
frá HÍ árið 1994 og meistaraprófi í félagsráðgjöf (MSW) frá HÍ árið 2005. Sigrún
hefur lengst af starfað við Menntaskólann á Egilsstöðum. Hún starfaði um tíma
sem atvinnuráðgjafi hjá Vinnumiðlun Reykjavíkur, framkvæmdastjóri Miðstöðvar
fólks í atvinnuleit í Reykjavík og forstöðumaður Svæðisvinnumiðlunar Austur-
lands. Sambýlismaður Sigrúnar er Helgi Ómar Bragason skólameistari og eiga
þau þrjú börn, Björgheiði Margréti, Hörð Braga og Gísla Björn. Fyrir átti Sigrún
tvær dætur með Gunnari J. Gunnarssyni lektor við HÍ, Erlu Kristínu og Hildi-
gunni Borgu. Sigrún er fyrsti kandídatinn sem ver doktorsritgerð í félagsráðgjöf
frá Háskóla Íslands. Hún er lektor við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands.
Doktor
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Auðbrekku 3 ~ 200 Kópavogur ~ Sími: 564 1660 ~ oreind.is
Þar sem að gervihnattabúnaðurinn fæst
25ÁRA
1988-2013
PIPER
Piper er ný gerð
eftirlitsmyndavéla
og öryggiskerfa fyrir
heimili, sumarhús og
smærri fyrirtæki
•Vaktar heimilið
• Kveikir ljósin
• Fylgist með hita- birtu- og rakastigi
• Fylgist með allri hreyfingu og hljóði
Allt þetta er hægt að skoða hvaðan sem
er úr heiminum í snjallsímanum þínum!