Morgunblaðið - 19.03.2015, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ANIREY nefnist alþjóðlegt málþing
um framtíð teiknimyndagerðar og
sýndarveruleika sem haldið verður í
Háskólanum í Reykjavík í dag. Á
morgun og hinn verður svo boðið
upp á ókeypis vinnusmiðjur með
fremstu fag-
mönnum heims á
sviði rauntíma
kvikunar (e. ani-
mation), staf-
rænna leikara,
nýrra miðla í
sagnagerð og
nýrra viðskipta-
líkana í tækni-
væddum sagna-
heimi, eins og því
er lýst í tilkynn-
ingu. Helstu hugsuðir og frum-
kvöðlar sviðsins munu tala um fram-
tíð og þróun sýndarveruleika,
kvikunar og stafrænna leikara.
Þeirra á meðal er frummælandi
ANIREY, Paul Debevec sem kall-
aður er faðir Light Stage-tækninnar
og starfar fyrir Institute for Crea-
tive Technologies í Los Angeles.
Light Stage hefur verið notuð í kvik-
myndum á borð við Avatar, The Cu-
rious Case of Benjamin Button, Gra-
vity og Malificent og felst í stuttu
máli í því að leikarar eru myndaðir í
kúlulaga klefa með fjölda ljósa og
myndavéla þannig að hægt sé að
nota andlit þeirra frá öllum sjón-
arhornum og við öll möguleg birtu-
skilyrði. Leikararnir eru látnir túlka
ólíkar tilfinningar með viðeigandi
svipbrigðum, þ.e. brosa, gretta sig,
vera hissa o.s.frv. og þessar myndir
eru svo nýttar í kvikmyndum.
Í sumum tilfellum teiknað yfir
andlit leikaranna í tölvu, t.d. andlit
Brad Pitt í The Curious Case of
Benjamin Button en í þeirri mynd er
hann í upphafi gamall maður og yng-
ist eftir því sem á líður. Segja má að
þessi tækni hafi bylt tæknibrellum í
kvikmyndum því áhorfendur geta
vart greint lengur á milli þess hve-
nær leikarinn er sjálfur í mynd eða
tölvuteiknuð útgáfa af honum. Það
er því engin furða að Debevec og
samstarfsmenn hans hlutuhafi hlotið
sérstök verðlaun Óskarsakademí-
unnar árið 2010 fyrir tæknilegt
framlag sitt til kvikmynda.
Tveggja sekúndna svipbrigði
Debevec segir notkunina á Light
Stage ólíka eftir kvikmyndum, allt
eftir þörfum leikstjóra og handrits.
Ólíkum ferlum sé hægt að beita hvað
varðar birtu, til að mynda. Þegar
leikari eða leikkona mæti í klefann
sé leikstjóri á staðnum og leiðbeini
þeim, biðji um tiltekin svipbrigði
sem séu oftast nær um 30 talsins.
Leikararnir þurfi að halda hverjum
svip í tvær sekúndur og séu lýstir
upp með 16 ólíkum birtustigum.
„Við erum með sjö myndavélar,
háskerpumyndavélar af gerðinni
Canon 1D X sem notaðar eru við
íþróttamyndatökur, og tökum með
þeim myndir á sama tíma frá ólíkum
sjónarhornum, 16 ljósmyndir í ólíkri
birtu og þá birtu úr öllum áttum,“
útskýrir Debevec. Út frá þessum sjö
sjónarhornum sé hægt að móta and-
litið með mikilli nákvæmni, búa til
afar raunverulega útgáfu af leik-
aranum í tölvu og frá öllum sjón-
arhornum. Debevec nefnir sem
dæmi kvikmyndina Avatar sem
vakti mikla athygli á sínum tíma fyr-
ir magnaða þrívídd og tölvugerðar
útgáfur af leikurum í formi blárra
vera á fjarlægri plánetu.
Debevec segir tæknina líka not-
aða til að ná fram ákveðnum lit-
brigðum á andlitum leikara svo þau
falli að umhverfinu í tilteknum atrið-
um kvikmynda. Sú aðferð sé mik-
ilvægust í myndum þar sem allt um-
hverfi leikara er tölvuteiknað, t.d.
Gravity sem gerist öll í geimnum.
Allt umhverfi aðalleikaranna,
George Clooney og Söndru Bullock
sem leika geimfara í myndinni, var
tölvuteiknað, andlit þeirra það eina
raunverulega. Clooney og Bullock
þurftu því að verja dágóðum tíma í
Light Stage-kúlu. „Ef geimfararnir
hringsnerust og ljósið endurkast-
aðist frá Jörðinni úr ólíkum áttum,
frá hægri, að ofan og neðan, þurfti
að breyta lýsingunni á andlitum
þeirra svo hún passaði við umhverf-
ið,“ segir Debevec.
Sífellt raunverulegri
tölvuleikir
Debevec segist einnig sinna verk-
efnum fyrir tölvuleikjaframleið-
endur og að væntanlegur sé merki-
legur leikur með þekktum leikurum.
„Andlitin verða raunverulegri en áð-
ur hefur sést í tölvuleikjum,“ segir
Debevec um leikinn og spáir því að
algengara verði að leikarar ljái
tölvuleikjum andlit sín. Þá verði
sýndarveruleikinn svo sannfærandi
að þeir sem spili leikina vilji eflaust
eiga samskipti við persónurnar.
Óvenjulegasta verkefnið sem
Debevec hefur tekið að sér hlýtur að
vera að skanna Bandaríkjaforseta,
Barack Obama, í þrívídd fyrir Nat-
ional Portrait Gallery í Washington.
„Fyrir það þurftum að búa til fær-
anlega útgáfu af Light Stage og það
með hraði því við fengum lítinn fyr-
irvara. Við fórum með tækin í Hvíta
húsið og höfðum um tíu mínútur til
að skanna forsetann í hárri upp-
lausn,“ segir Debevec. Skúlptúr af
Obama verður unninn út frá skönn-
uninni og þá bæði stafrænn og stytta
í raunstærð.
Debevec er spurður hvort þetta
hafi ekki verið stórfurðuleg upp-
lifun. „Jú, mjög furðuleg, álíka
furðuleg og að sjá norðurljósin í
gærkvöldi,“ svarar hann og hlær.
Fyrirlestur Debevec hefst kl. 17 í
dag í Háskólanum í Reykjavík og
skráning fer fram á filmmakers.is.
Furðulegt að skanna
Bandaríkjaforseta
Faðir Light Stage tækninnar frummælandi á ANIREY
Paul
Debevec
Dr. Kolkrabbi Leikarinn Alfred Molina í Light Stage kúlu fyrir kvikmynd-
ina Spider-Man 2 sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir tæknibrellur árið 2005.
Molina lék illmennið Dr. Octopus, eða Dr. Kolkrabba.
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fim 19/3 kl. 19:00 8.k. Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fim 7/5 kl. 19:00
Fös 20/3 kl. 19:00 aukas. Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fös 8/5 kl. 19:00
Sun 22/3 kl. 19:00 9.k Mið 22/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00
Fim 26/3 kl. 19:00 aukas. Fim 23/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00
Fös 27/3 kl. 19:00 aukas. Fös 24/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00
Sun 29/3 kl. 19:00 10.k Sun 26/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00
Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Mið 29/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00
Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Fim 30/4 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00
Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Sun 3/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00
Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Þri 5/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00
Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Mið 6/5 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Lau 21/3 kl. 13:00 Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00
Sun 22/3 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00
Lau 28/3 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00
Sun 29/3 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 20/3 kl. 20:00 Frums. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Sun 3/5 kl. 20:00 17.k
Sun 22/3 kl. 20:00 2.k Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 24/3 kl. 20:00 aukas. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Fim 7/5 kl. 20:00 18.k
Mið 25/3 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k
Fim 26/3 kl. 20:00 3.k. Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Lau 9/5 kl. 20:00 20.k.
Fös 27/3 kl. 20:00 4.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Sun 10/5 kl. 20:00 21.k
Sun 29/3 kl. 20:00 aukas. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Mið 13/5 kl. 20:00 22.k.
Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k.
Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Sun 17/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 21/3 kl. 20:00 Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Þri 24/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 21/3 kl. 20:00 Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00
Lau 28/3 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00
Sprenghlægilegur farsi
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Minnisvarði (Aðalsalur)
Sun 22/3 kl. 20:00 Fös 27/3 kl. 20:00
Mið 25/3 kl. 20:00 Sun 29/3 kl. 20:00
Vatnið (Aðalsalur)
Lau 28/3 kl. 20:00 Sun 29/3 kl. 14:00 Mið 1/4 kl. 20:00
Dirt! The Movie (Aðalsalur)
Þri 24/3 kl. 17:00
Minningartónleikar Elísabetar Sóleyjar (Aðalsalur)
Fim 26/3 kl. 20:00
Eldberg - Útgáfutónleikar (Aðalsalur)
Fös 20/3 kl. 20:00
Carroll: Berserkur (Mörg rými Tjarnarbíós)
Fim 9/4 kl. 20:00 Sun 12/4 kl. 20:00 Fös 17/4 kl. 20:00
Fös 10/4 kl. 20:00 Mið 15/4 kl. 20:00 Sun 19/4 kl. 20:00
Lau 11/4 kl. 20:00 Fim 16/4 kl. 20:00