Morgunblaðið - 19.03.2015, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARS 2015
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi hátíð hefur margvíslega þýð-
ingu fyrir CCP sem fyrirtæki. Þetta
er mjög góður
vettvangur fyrir
okkur til að vera í
sambandi við við-
skiptavini okkar
sem spila EVE
Online leikinn og
samtímis að
kynna ýmsar nýj-
ungar,“ segir
Eldar Ástþórs-
son, upplýsinga-
fulltrúi CCP, en í
dag hefst 11. EVE Fanfest hátíðin í
Hörpu og stendur til laugardags, en
samhliða fer fram ráðstefna CCP.
Aðspurður segist Eldar búast við
því að um 3.000 manns sæki hátíðina
heim í ár, sem sé svipað og í fyrra,
en þar af reiknar hann með um 1.500
erlendum gestum. Að sögn Eldars
er von á nokkru færri blaðamönnum
í ár en í fyrra, þ.e. aðeins 50 í stað 90.
„Á síðustu árum höfum við búið við
þann lúxusvanda að það hefur verið
mjög mikil eftirspurn hjá erlendum
fjölmiðlum eftir því að koma á hátíð-
ina. Í ár ákváðum við að prófa að
bjóða færri blaðamönnum og velja
þá úr með það að markmiði að geta
þjónustað þá betur,“ segir Eldar og
bendir á að blaðamenn frá mörgum
stærstum leikja- og tölvumiðlum
heims sæki hátíðina heim ásamt al-
mennum fjölmiðlum á borð við BBC,
The Guardian og Bild.
„Þessi hátíð er stefnumót fyrir
spilara EVE Online leiksins. Á há-
tíðinni koma spilarar leiksins alls
staðar að úr heiminum, sem sumir
hverjir hafa aldrei hist í raun-
heimum, saman í Reykjavík, fagna
og ráða ráðum sínum,“ segir Eldar
og tekur fram að gestir skiptist í tvo
næstum jafnstóra hópa, þar sem
annar hópurinn sé að koma á hátíð-
ina í fyrsta sinn en hinn hópurinn
hafi komið áður – jafnvel margoft
áður. „Við sjáum í könnun okkar
meðal þátttakenda að flestir erlend-
ir gestir hátíðarinnar nota ferðina
hingað til lands til að vera lengur og
sjá landið,“ segir Eldar og bendir á
að flestir erlendir gestir hátíð-
arinnar dvelji á Íslandi í fimm til sjö
daga, en hátíðin sjálf stendur aðeins
í þrjá daga.
Fleiri en 95 dagskrárliðir
Eldar segir margt í boði í Hörpu
dagana 19. til 21. mars. „Dagskrá
hátíðarinnar í ár er gríðarlega fjöl-
breytt og samanstendur af yfir 95
dagskrárliðum. Má þar nefna fyr-
irlestra, pallborðsumræður, leikja-
mót og kynningar,“ segir Eldar og
tekur fram að CCP muni m.a. kynna
nýjustu tilraunir sínar á sviði
sýndarveruleika á fyrstu hæð Hörpu
alla hátíðisdagana og gefa gestum
kost á að prufa nýjan leik sem nefn-
ist EVE Valkyrie. Þess má að lokum
geta að spilarar leiksins og aðrir
áhugasamir sem ekki komast til Ís-
lands geta fylgst með dagskrá hátíð-
arinnar í gegnum beina útsendingu
EVE TV og Twitchtv.com frá Hörpu
gegnum netið. Miðasala er á midi.is
og í Hörpu.
Morgunblaðið/Golli
Töff Að vanda er boðið upp á hár og
förðun í stíl persóna tölvuleiksins.
CCP kynnir nýj-
an leik í Hörpu
EVE Fanfest haldin í 11. sinn
Eldar
Ástþórsson
Áhorfendur fá að gægjast á bak við luktar dyr fólks sem bý í sömu götu í
úthverfi nokkru og virðist allir
vera tiltölulega eðlilegir við fyrstu
sýn. Annað kemur þó á daginn.
IMDB 7,1/10
Smárabíó 17.45, 20.00, 22.20
Háskólabíó 20.00, 22.40
Borgarbíó Akureyri 20.00,
22.00
The Little Death 12
Líf Ellu breytist skyndilega þegar faðir hennar fellur frá og hún lendir undir
náð og miskunn stjúpfjölskyldu sinnar.
Metacritic 64/100
IMDB 7,7/10
Laugarásbíó 17.25, 20.00
Sambíóin Álfabakka 17.30, 18.30, 20.00,
22.30
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.10
Sambíóin Kringlunni 17.30, 18.30, 20.00
Sambíóin Akureyri 17.30, 20.00
Sambíóin Keflavík 20.00
Cinderella Svindlarinn Nicky neyðist til að leyfa ungri og
óreyndri stúlku, Jess, að taka þátt í nýjasta
ráðabrugginu þótt honum sé það
þvert um geð.
Metacritic 56/100
IMDB 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.40, 17.40,
20.00, 20.00, 21.00, 22.30, 22.30
Sambíóin Egilshöll 17.40, 20.00, 22.20
Sambíóin Kringlunni 22.30
Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30
Sambíóin Keflavík 22.30
Focus 16
Inherent Vice 16
Árið 1970 í Los Angeles
rannsakar einkaspæjarinn
Larry „Doc“ Sportello hvarf
fyrrverandi kærustu sinnar.
Metacritic 81/100
IMDB 7,0/10
Sambíóin Egilshöll 19.00,
22.00
Sambíóin Kringlunni 21.00
Sambíóin Akureyri 22.30
Chappie 16
Í nálægri framtíð fer vél-
væddur lögregluher með eft-
irlit með glæpamönnum en
fólk fær nóg af vélmennalögg-
um og fer að mótmæla.
Metacritic 38/100
IMDB 8,0/10
Laugarásbíó 22.10
Smárabíó 20.00, 22.40
Háskólabíó 22.20
Borgarbíó Akureyri 22.00
The DUFF
Skólastelpa gerir uppreisn
gegn goggunarröðinni í skól-
anum. Bönnuð innan tíu ára.
Metacritic 56/100
IMDB 7,2/10
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.20
Smárabíó 15.30, 17.45, 20.00
Borgarbíó Akureyri 20.00
Kingsman: The Secret
Service 16
Metacritic 59/100
IMDB 8,3/10
Laugarásbíó 22.30
Smárabíó 17.00, 20.00,
20.00, 22.45, 22.45
Borgarbíó Akureyri 17.40
Before I Go to Sleep 16
Christine Lucas vaknar á
hverjum morgni algjörlega
minnislaus um það sem gerst
hefur í lífi hennar fram að því.
Metacritic 41/100
IMDB 6,2/10
Sambíóin Álfabakka 22.10
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.30
Fifty Shades of Grey 16
Mbl. bbnnn
Metacritic 53/100
IMDB 4,0/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
Smárabíó 22.20
Into the Woods Metacritic 69/100
IMDB 6,3/10
Sambíóin Kringlunni 17.20
Sambíóin Akureyri 17.20
The Theory of
Everything 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 72/100
IMDB 7,8/10
Sambíóin Kringlunni
20.00, 22.40
Veiðimennirnir 16
Morgunblaðið bbbnn
IMDB 7,2/10
Laugarásbíó 20.00, 22.35
Háskólabíó 20.00
Still Alice Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 72/100
IMDB 7,5/10
Laugarásbíó 17.50, 20.00
Birdman 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDB 8,3/10
Háskólabíó 22.20
The Grump Morgunblaðið bbmnn
Metacritic 72/100
IMDB 7,5/10
Háskólabíó 17.30
Ömurleg brúðkaup Morgunblaðið bbbnn
Háskólabíó 17.30, 20.00
Svampur Sveinsson:
Svampur á
þurru landi IMDB 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.30
Paddington Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 76/100
IMDB 7,6/10
Smárabíó 15.30, 17.45
Annie Metacritic 33/100
IMDB 5,0/10
Smárabíó 17.00
Háskólabíó 17.30
Borgarbíó Akureyri 17.40
Hot Tub Time
Machine 2 12
Sambíóin Álfabakka 17.50,
20.00
Jupiter Ascending 12
Metacritic 47/100
IMDB 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 22.40
Hrúturinn Hreinn IMDB 7,7/10
Laugarásbíó 17.50
Smárabíó 15.30
The Chambermaid
Lynn
Bíó Paradís 18.00
West
Bíó Paradís 20.00
Hefndarsögur
Bíó Paradís 22.00
The Dark Valley
Bíó Paradís 22.10
What We Do in the
Shadows
Bíó Paradís 20.00
Trend Beacons
Bíó Paradís 20.00
Óli Prik Morgunblaðið bbbbn
Bíó Paradís 18.00
Whiplash
Morgunblaðið bbbbn
Bíó Paradís 22.00
Upplýsingar og ábendingar sendist á netfangið bio@mbl.is
Kvikmyndir
bíóhúsanna
:
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 23. mars.
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Páskablaðið
Stórglæsilegt
páskablað fylgir
Morgunblaðinu
föstudaginn
27. mars
Matur, ferðalög, skreytingar
og viðburðir um páskana
verðameðal efnis í blaðinu