Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Page 6
*Mér finnst augljóst að gyðingar séu mjög heppilegir blóra-bögglar hjá sérhverri þjóð sem lendir í félagslegum, efna-hagslegum eða pólitískum vanda. Albert Einstein, höfundur afstæðiskenningarinnar. Alþjóðamál KRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015 Í stefnuskrá Hamas, gr. 7, er m.a. vitnað í svonefnd hadít, ýmis ummæli sem höfð eru eftir Múhameð en ekki eru í Kóraninum. „Dómsdagur mun ekki koma fyrr en músl- ímar berjast gegn gyðingum, þegar gyðingar fela sig bak við steina og tré. Steinarnir og trén munu segja: Ó múslímar, Ó Abdullah, það er gyðingur á bak við mig, komdu og dreptu hann.“ Umdeilt er meðal múslíma hve traustar heimildir ha- dít séu. En Hamas vitn- ar samt í þessi um- mæli í stefnuskrá sinni og ýtir þannig undir gagnkvæmt hatur. Stríð Ísraela og Palestínumannaum lítið land í Miðaustur-löndum blossar upp öðru hverju, eins og ávallt í stríði eru mörg fórnarlömbin óbreyttir borg- arar. Og oft sannleikurinn. Í fyrra féllu um 2100 Palestínumenn í loft- árásum Ísraelshers á Gaza og 66 Ísraelar í flugskeytaárásum víga- manna Hamas á Ísrael. Sjálfir segja Hamas-menn að þorri fallinna á Gaza hafi verið óbreyttir borgarar. Ísraelar segja að helmingurinn hafi verið vígamenn Hamas. Í Evrópu vita margir að ef hægt er að finna rætur þessa harmleiks er hann í gyðingahatrinu sem nasistar, þar áður Rússakeisari og enn fyrr kirkjan, ýttu undir. Án þessa haturs og Helfararinnar hefði fáum gyð- ingum dottið í hug að krefjast sjálf- stæðs ríkis gyðinga. Til eru evr- ópskar þjóðsögur um hroðalegt framferði gyðinga, sumar ganga nú aftur í heimi múslíma. „Við munum öll hvernig gyðingar voru vanir að slátra kristnum og blanda blóðinu í páskabrauð,“ sagði Osama Hamdan, félagi í miðstjórn Hamas, í viðtali við sjónvarpsstöð í Líbanon í fyrra. Þegar fréttamaður CNN-stöðvarinnar ræddi við hann og birti viðtalið með enskri þýðingu (sem Hamdan setti ekkert út á) vildi Hamas-maðurinn ekki draga um- mælin til baka þótt hann væri þrá- spurður hvort hann stæði við þau. Hann sagði að sagan um drápin og páskabrauðið væri eitthvað sem hann hefði heyrt hjá mörgu fólki. Boðar Hamas gyðinga- hatur? Stefnuskrá Hamas var samin 1988, í henni er gyðingum, ekki bara Ísr- aelum, kennt um öll stríð á jörðinni. Þar stendur m.a. í fyrstu grein: „Ísr- ael mun halda áfram að vera til þangað til íslam mun eyða því eins og íslam hefur áður eytt öðrum.“ Æðstu menn Hamas hafa að vísu sagt síðustu árin að stefnuskráin sé úrelt og hampa henni ekki. En af hverju ekki að nema hana þá úr gildi og reyna þannig að draga úr tor- tryggni hjá Ísraelum sem að sjálf- sögðu sjá í stefnuskránni enduróm hins forna gyðingahaturs? Nei, það er ekki hægt „af innri orsökum“, segja ráðamenn Hamas. Sem stjórn- málaskýrendur segja að þýði að ekki sé meirihluti fyrir því í stjórn sam- takanna. Hamas hefur síðustu árin ráðið öllu á Gaza og gagnstætt Fatah, flokki Mahmouds Abbas Palest- ínuforseta, neita samtökin statt og stöðugt að viðurkenna lögmæti Ísr- aels. Harðlínumenn í Ísrael nota þessa staðreynd sem helstu rökin fyrir því að tilgangslaust sé að semja við Palestínumenn en bæði Fatah og Hamas, sem lengi hafa deilt hart, eiga ráðherra í stjórn Palestínu. Amnesty og Hamas Mannréttindasamtökin Amnesty Int- ernational birtu í fyrra skýrslur þar sem Ísraelar voru sagðir hafa beitt óeðlilegri hörku til að stöðva flug- skeytaárásir Hamas. Þeir hefðu drýgt stríðglæpi. En nýlega birti Amnesty skýrslu um framferði Hamas-liða í sama stríði og sakaði þá líka um stríðs- glæpi. Hamas hefði m.a. kennt Ísraelum um manntjón sem varð í flóttamannabúðum þegar flugskeyti Hamas- manna lenti á þeim. 13 manns dóu. Einnig staðfesti Am- nesty frásagnir Ísraela af því að pal- estínskir vígamenn hefðu geymt sprengjur og flugskeyti í híbýlum óbreyttra borgara á Gaza og skólum sem Sameinuðu þjóðirnar reka. Og þeir hefðu skotið flugskeytum frá stöðum örskammt frá húsum þar sem óbreyttir borgarar, sem misst hefðu heimili sín, leituðu skjóls. Hverjir eru heimildarmenn vest- rænna fjölmiðla? Þeir eru sumir hlutdrægir, svo að notað sé milt orð. Norski læknirinn Mads Gilbert er maóisti og ákafur talsmaður Palest- ínumanna. Hann sýndi mikið hug- rekki með því að stunda læknisstörf á Shiva-sjúkrahúsinu í Gazaborg í miðjum átökunum og hlaut verð- skuldað lof fyrir það. En er hann marktækur heimildarmaður? Margir efast um það og benda á að hann hafi aldrei gagnrýnt Hamas þótt samtökin séu orðlögð fyrir trúarof- stæki og leyfi enga andstöðu. Gazabúi sem grunaður er um að að- stoða Ísrael er drepinn án réttar- halda, það mun meira að segja hafa gerst á Shiva-sjúkrahúsinu sem sum- ir heimildarmenn segja að sé aðal- bækistöð Hamas. Daginn eftir árásina á Tvíbura- turnana í New York 2001 spurði Dagbladet í Noregi Gilbert álits. Hann svaraði að árásin hefði ekki komið á óvart, Bandaríkjamenn hefðu valdið svo miklum þjáningum í heiminum. Líta yrði á mannfallið í New York í því ljósi. „Ef Banda- ríkjamenn hafa rétt til að sprengja og drepa óbreytta borgara í Írak hafa hinir undirokuðu líka rétt á að ráðast á Bandaríkin með þeim vopn- um sem þeir geta búið til.“ – Styður þú hryðjuverkaárásina á Bandaríkin? spurði blaðamaðurinn. „Hryðjuverk eru slæmt vopn en svarið er já með það samhengi í huga sem ég nefndi,“ svaraði lækn- irinn. Þess ber þó að geta að nokkr- um árum seinna sagðist hann iðrast þess að hafa svarað með þessum hætti. Hann væri algerlega á móti hryðjuverkum. ...og blanda blóðinu í páskabrauð“ Í ÁRÓÐURSSTRÍÐINU VIÐ PALESTÍNUMENN STANDA ÍSRAELAR OFT HÖLLUM FÆTI OG HEIMILDARMENN UM ÁRÁSIRNAR Á GAZA Í FYRRA ERU OFTAST ÚR RÖÐUM HAMAS EÐA STUÐNINGSMANNA ÞEIRRA. ORÐ MÚHAMEÐS Anna Frank. Réttdræp? Palestínumaður í Gazaborg heldur á lofti mynd af Marwan Barghuti, einum af leiðtogum Fatah, á útifundi í vikunni. Barg- huti er meðal um 6000 Palestínumanna sem hafa verið handteknir fyrir meinta þátttöku í hryðjuverkum gegn Ísraelum. AFP HEIMURINN BRASIL RIO DE JANEIRO í Reg efur þurft tugi to æ rinaf dauðum fiski á Lag ogGdrepist af súrefnissko hafa bæði yfirð viðíbúar á sv ÚKRAÍNA KÆNUGA nu ogt um 300 fallhlífahermennríkjame veldin hafa fram tilí Þjóðverðinum. Vesturað stoða við hernaðaraðstoð en bjóða þessóskum ráðamanna í Úkraínu umuðumneitað að v esk stjórnvöld segja að komaum sviðum auk þjálfunar. Rússnoð árgvíslí stað öðr n hluta landsins þar sem aðskilnaðaýta undir óstöðugleika í austurnnaba muni nnar hafa með bar hafa falli í átökunum og hunjórnarhermenn. Þúsundir manna da þurft að flýja. KIN UANASH órnmálamanasbandarí astgjasem hyg s nu áemeftir forseta ampshire en þarjönæsta ári beinist nú m r á næsta ári.averða fyrstu raunveru tt ríkið ogNokkrir repúblikanar von er á H egt að verðiillary Clinto forsetaefni ð bera á gagnrýni randi ríkisstjóri aður l gefa kost á að haga m niðurstöðu skoðanir s hann að C men náðDeild al-Qaeda í J yansitt vald stórum flugvelli,R di ssunnanverðu an nu enl bo Myfingin rgga Qaedaút. Mukleyp m abíuflóa.af ir sigagt undig lh ði ogQaedaal- í landinu semhryðjuvetíma til að sinna tfestu í Jemen

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.