Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Qupperneq 42
H
inn 10. apríl síðastliðinn stóð fyrir-
tækið Bestseller, sem rekur versl-
anirnar Vero Moda, Selected, Jack
& Jones, Name it og Vila, fyrir al-
þjóðlegum góðgerðardegi. Viðburðurinn heitir,
Give a day eða Gefðu dag og gekk út á það að
allir peningar sem viðskiptavinir búðanna
versluðu fyrir voru gefnir til góðagerðarmála.
Á Íslandi söfnuðust rúmar 12 milljónir króna
þar sem 50% runnu til krabbameinsfélagsins
og 50% til alþjóðlegu samtakanna Unicef, Gain
og Barnaheilla. Sigrún Lillie Magnúsdóttir er
forstöðumaður ráðgjafarþjónustu krabbameins-
félagsins en hún mun taka
við þeim 6,2 milljónum sem
söfnuðust til krabbameins-
félagsins. „Þetta hefur gífur-
lega mikla þýðingu og mun
hjálpa okkur að efla þjón-
ustuna og færa hana yfir á
næsta stig. Markmið Ráð-
gjafarþjónustunnar er að að-
stoða fólk við að ná jafnvægi
í lífinu eftir þær breyttu aðstæður sem grein-
ing krabbameins veldur. Það er bæði hægt
koma, senda tölvupóst og hringja. Þetta er
draumur sem er að rætast,“ útskýrir Sigrún
en krabbameinsfélagið hefur sinnt símaráðgjöf
frá árinu 1995.
Númerið er gjaldfrjálst, 800-4040, og get-
ur fólk hringt í númerið hvenær sem er sól-
arhringsins og skilið eftir skilaboð eða sent
tölvupóst á netfangið radgjof@krabb.is.
„Við höfum verið að sinna þessu samhliða
öðrum verkefnum og þar af leiðandi ekki haft
tækifæri á því að sinna símaráðgjöfinni eins og
við vildum. Það sem við vorum með á margra
ára plani getum við gert ráð fyrir að geti orðið
á miklu styttri tíma vegna styrksins.“
Sigrún útskýrir mikilvægi þjónustunnar
sem snýr að því að geta verið til staðar fyrir
fólk þegar spurningar kvikna og hægt sé að
leita eftir faglegum upplýsingum og fá að-
stoð.
„Við höfum verið við símann í tvo klukku-
tíma á dag en nú langar okkur að auka þjón-
ustuna með því að hafa opið lengur. Það geta
allir hringt. Þeir sem eru að greinast, að-
standendur, fagfólk, kennarar, nemar og fleiri.
Þegar krabbamein kemur upp snertir það
svo marga og þá er gott að geta spjallað.
Það er svo mikilvægt.“
ALÞJÓLEGUR GÓÐGERÐARDAGUR
Draumur sem er að rætast
Sigrún Lillie
Magnúsdóttir
Í NÆSTU VIKU MUN VERSLUNARKEÐJAN BESTSELLER AFHENDA KRABBAMEINSFÉLAGI ÍSLANDS 6,2 MILLJÓNIR SEM SÖFNUÐUST Á
ALÞJÓÐLEGUM GÓÐGERÐARDEGI KEÐJUNNAR HINN 10. APRÍL SÍÐASTLIÐINN. SIGRÚN LILLIE MAGNÚSDÓTTIR, FORSTÖÐUMAÐ-
UR RÁÐGJAFARÞJÓNUSTU KRABBAMEINSFÉLAGSINS, SEGIR STYRKINN EIGA EFTIR AÐ HAFA UMTALSVERÐ ÁHRIF Á ÞJÓNUSTUNA.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015
Tíska
Lindex
5.995 kr.
Léttur og laglegur
sumarkjóll.
BÓHEM ÁHRIF
Tískan á Coachella
Tónlistarkonan Rihanna var í
skemmtilegu bleiku dressi. Söngkonan Fergie var flott í stígvélum
frá Giuseppe Zanotti.
Alexa Chung birti þessa fallegu
mynd af sér frá Choachella.
Zara
9.995 kr.
Fölbleikur og fallegur
sumarkjóll.
Zara
14.995 kr.
Glæsilegir sumar-
skór úr Zöru.
Vila
6.990 kr.
Hippaleg, hekluð
yfirpeysa.
Vero Moda
7.990 kr.
Kögurvesti í hippalegum
stíl er nauðsynlegt í sumar.
Topshop
3.290 kr.
Flottir draumfang-
ara eyrnalokkar.
Next
8.880 kr.
Kimono setur flott-
an svip á hversdags-
klæðnaðinn.
Fyrirsætan Alessandra Ambrosio
var glæsileg í „tie-dye“ síðkjól.
Fyrirsætan Kendall
Jenner er alltaf töff.
Speglasólgleraugu verða
greinilega vinsæl í sumar.
LISTA- OG TÓNLISTARHÁTÍÐIN COACHELLA ER NÚ Í FULLUM GANGI Í
IDAHO-RÍKI Í BANDARÍKJUNUM. HELSTU STÓRSTJÖRNUR TÓNLISTAR-
BRANSANS BOÐA YFIRLEITT KOMU SÍNA OG HAFA ÞÆR VERIÐ DUG-
LEGAR VIÐ AÐ BIRTA MYNDIR AF SÉR Á INSTAGRAM. ÞÁ ER ÁKVEÐIN
BÓHEMTÍSKA RÍKJANDI Á TÓNLISTARHÁTÍÐUM SEM SLÍKUM.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is