Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Page 46

Morgunblaðið - Sunnudagur - 19.04.2015, Page 46
Þ rátt fyrir að nokkrir íslenskir leik- ara hafi fengið stór hlutverk ytra, í sjónvarpi og bíómyndum, eru þeir fáir sem hafa lent í verkefni á borð við það sem Heiðu Rún Sigurðardóttur, eða Heidu Reed eins og hún kallast úti, hefur hlotnast. Það er nefnilega ekki það sama að fá stór hlutverk ytra í flottu verkefni og að það gangi svo ofan í áhorfendur og nái hæstu hæðum í vinsældum. Oft veldur áhorf vonbrigðum, kvikmyndir fá ekki aðsókn og sjónvarpsþættir eru lagðir nið- ur en Heiða Rún er í virkilega góðum málum með sitt hlutskipti – hún nýtur þess núna að nær 8 milljónir Breta horfa á hvern þátt sem hún leikur í af Poldark á BBC 1 á sunnudags- kvöldum. Heiða Rún fer þar með eitt af aðal- hlutverkunum en þátturinn hefur fengið frá- bærar viðtökur, bæði hjá áhorfendum og gagnrýnendum og á einni þekktustu gagnrýn- endavefsíðu heims; IMDB, fá þættirnir tæp- lega 9 af 10 í einkunn. Poldark gæti orðið flaggskip BBC næstu árin, en nú þegar hefur Heiða Rún skrifað undir samning til nokkurra ára um áfram- haldandi leik í þáttunum. „Ég má ekki nefna nákvæmlega til hve langs tíma sá samningur er en get sagt að það eru nokkur ár. Og auðvitað stendur það og fellur með að þættirnir gangi áfram vel,“ segir Heiða Rún en ef svo heldur fram sem hefur verið gæti Heiða Rún verið á skjánum áfram á stærstu sjónvarpsstöð Bretlands á besta áhorfstíma vikunnar næstu árin. Áhorfstölur þykja sækja tíðindum og Pold- ark er orðin sú vinsælasta sem BBC 1 hefur gert í áratug en þættirnir eru væntanlegir til sýninga á RÚV. Það er þýðingarmikið skref fyrir leikara sem ætlar sér stóru hluti í al- þjóðlegu umhverfi leiklistarinnar að landa hlutverki á borð við það sem Heiða Rún fékk. Það eru engar ofsögur í því að kalla þetta skref því nafni sem það heitir; að raunveru- lega „meika það“. Heiða Rún segir að vissulega hafi hún orðið vör við aukna athygli á götum úti eftir að þættirnir byrjuðu. Í lestinni segir fólk við hana að hún líti allt öðruvísi út í venjulegum fötum enda skiljanlegt þar sem Poldark er sannkölluð búningahátíð í anda hátísku 18. aldar. „Oftar er nú samt bara horft og ekkert sagt. Það getur verið óþægilegt og maður get- ur orðið svolítið óvær við þannig aðstæður. En það er auðvitað frábært að finna hvað það eru margir að horfa.“ Persónan átti ekki að vera „kaldlynd tík“ Heiða lék í íslensku þáttunum Hrauninu sem RÚV sýndi í fyrra en hefur annars alfarið starfað erlendis frá því að hún útskrifaðist sem leikari frá Drama Centre London, Central St. Martins fyrir fimm árum, skólanum sem Colin Firth og Pierce Brosnan lærðu meðal annars í. Til að komast í þann skóla þarf að fara í gegn- um tvö þúsund manna síu og vera einn af þrælheppnum 30 umsækjendum sem komast að. Og má þá ekki gleyma að í ofanálag tekur skólinn helmingi fleiri stráka inn en stelpur svo líkurnar eru enn minni. Hvað þættina varðar segir Heiða Rún mik- ils virði að finna að Bretar séu ánægðir. „Sag- an skiptir þá máli og þeir hafa sterkar skoð- anir á því hvernig sagan er fram sett,“ segir Heiða Rún. Bretar hafa sínar miklu meiningar af tvenns konar ástæðum. Þættirnir eru byggðir á afar vinsælum skáldsögum sem breski rit- höfundurinn Winston Graham skrifaði. Sú fyrsta kom út um miðja síðustu öld en alls urðu bækur hans, um ástir og örlög fólks í Cornwall á 18. öld, 12 talsins. En ekki síður er það að áður hefur sjón- varpsþáttaröð, byggð á bókunum, verið fram- leidd og sýnd við fádæma vinsældir á BBC fyrir nákvæmlega 40 árum; á árunum 1975- 1977. Þarna voru því kröfur og væntingar til staðar og gleðin því mikil hjá aðstandendum Poldark að sjá að áhorfendur urðu ekki fyrir vonbrigðum. Í stuttu máli fjalla þættirnir um Ross Pold- ark, breskan liðsforingja, sem í lok 18. aldar kemur heim eftir að hafa barist í bandaríska frelsisstríðinu. Poldark kemst að því að unn- usta hans, Elizabeth, sem Heiða Rún leikur, hafði talið hann af og trúlofast frænda hans. Eins og skilja má flækjast málin en Poldark sjálfur er leikinn af Aidan Turner. „Það var sérstaklega krítískt fyrir mig að bíða eftir viðbrögðum áhorfenda því allir hafa sterkar skoðanir á Elizabeth. Hún er sú sem brást Poldark og í bókinni eru ekki margir sympatískir fletir á henni. Við ákváðum að taka persónu hennar öðrum tökum en gert er í bókinni þar sem henni er ekki gefið mikið meira en að vera einfaldlega „kaldlynd tík“. Okkur fannst það eiginlega út í hött þegar handritið var í þróun að konan sem Cornwell hafði þó lagt svo mikla ást á væri svo einföld og við gáfum henni því talsvert meiri dýpt. En hvort sem áhorfendur munu áfram halda að kenna henni um allt sem miður fer eða finna til samúðar með henni þá er ég ánægð og finnst ég hafa skilað mínu ef ég næ að kalla fram sterkar tilfinningar hjá áhorf- endum.“ Heiða Rún bætir við að í þáttunum hafi þau viljað „mennska“ Elizabeth. „Er það orð á ís- lensku, að mennska einhvern?“ spyr Heiða Rún blaðamann, og segist hafa töluverðar áhyggjur af því að sletta mikið í viðtalinu því íslenskan hennar sé töluvert ryðguð. Hún hef- ur búið erlendis frá því hún var 18 ára, nærri áratug. Upphaflega flutti Heiða Rún til Indlands þar sem hún ætlaði að starfa sem fyrirsæta fyrir Eskimo Models í 3 mánuði. Sá tími varð að 1 og ½ ári. Heiða Rún lék í auglýsingum og tónlistarmyndböndum og myndir og vegg- myndir mátti sjá um allt Indland á þeim tíma en hún birtist á blaðsíðum Cosmopolitan, Marie Claire, Elle og Verve Magazine. Heiða Rún ferðaðist víða á þessum tíma, sérstaklega í Asíu. „Það var helsti kosturinn við starfið. Ég ætlaði mér hins vegar aldrei að vera í þessu til langframa og hætti tvítug þeg- ar ég fór til London til að fara í prufur fyrir leiklistarskólann, það var alltaf ætlunin að verða leikkona.“ Gagnast það þér í dag sem leikkona að eiga fyrirsætuferil að baki? „Það hefur bæði gagnast mér og unnið á móti. Ég er með þykkan skráp og er vön að taka gagnrýni þótt að áður hafi sú gagnrýni auðvitað fyrst og fremst beinst að útliti mínu. Ég áttaði mig fljótt þó á því að eitt af því sem ég lærði sem fyrirsæta; að þegja bara, gera það sem fólk segir manni að gera og hafa ekki skoðanir á því – gagnaðist mér eng- an veginn í leiklistinni. Það tók mig smátíma að átta mig á því að sem leikkona er það af Ekki hjálpað að vera íslensk HEIÐA RÚN SIGURÐARDÓTTIR, EÐA HEIDA REED, EINS OG HIN RÍSANDI STJARNA KALLAST Í BRESKUM KVIKMYNDAHEIMI, HEFUR NÁÐ EINUM BESTA ÁRANGRI Í BRETLANDI SEM ÍSLENSKUR LEIKARI HEFUR NÁÐ. NÆR 8 MILLJÓNIR MANNA HORFA Á HANA Á SUNNUDAGSKVÖLDUM. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Viðtal 46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19.4. 2015

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.