Reykjalundur - 01.06.1962, Síða 21

Reykjalundur - 01.06.1962, Síða 21
Með gervihandlegg vid framkvcema hin fláknustu störf. að klæða sig og að setja á sig skó. Hann þarf að læra að komast úr hjólastól inn í bíl og að taka stólinn á eftir sér inn í bílinn, til þess að hann geti komizt um utan húss einn og án hjálpar frá öðrum. Hann þarfnast síns eigin bíls með þeim sérútbúnaði, sem honum hæfir. Og að lokum þarfnast hann starfs. Það má teljast mjög ólíklegt, að hann geti unnið störf á sjó framar, svo að hann stend- ur frammi fyrir þeirri óþægilegu staðreynd að þurfa fertugur að hefja framandi störf, sem hann skortir þekkingu og æfingu til að gegna. Oft er þetta örðugasti hjallinn, en ekki of örðugur, ef hann sýnir vilja til að komast yfir hann, og hlýtur til þess réttan skilning og aðstoð þeirra, sem um þessi mál fjalla. Persónulegur vilji og skapgerð. Þetta dæmi, sem lýst hefur verið hér að ofan, er ekki fyrst og fremst einkennandi fyrir endurþjálfunarstarfsemi, því að sjald- an eða aldrei er hægt að tilfæra einkennandi dæmi, þegar um er að ræða mannlegar ver- ur og atvik, sem snerta líf þeirra og tilfinn- ingar. Engin persóna er í öllu annarri lík. Slysið eða sjúkdómurinn, sem veldur skerð- ingu á líkamsgetunni, getur verið snöggtum meira og afdrifaríkara en nefnt er í dæminu hér að ofan, og það getur verið miklu léttara eðlis og valdið minni skerðingu á starfs- og sjálfsbjargargetu. En hin endanlega örorka verður ekki alltaf í beinu hlutfalli við tak- mörkun líkamsgetunnar. Persónulegur vilji Revkjalundur 19

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.