Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Qupperneq 8
Systkinin Andy og Lana Wachowski,
sem stóðu á bak við hina geysivinsælu
Matrix-trílógíu, eru heilarnir á bak
við nýja alþjóðlega spennuþáttaröð,
Sense8, sem fór í sýningar á Netflix í
gær en ásamt þeim skrifar J Michael
Straczynski, handritshöfundur Bab-
ylon 5, handrit þáttanna.
Fjallað er um þættina af mikilli eft-
irvæntingu í fjölmiðlum ytra, ekki síst
þar sem þetta er fyrsta sjónvarps-
verkefni Wachowski-systkinanna.
Stórstjörnur leika í Sense8, svo
sem Daryl Hannah, Joseph Mawle úr
Games of Thrones og Freema
Agyeman úr Doctor Who.
Þá er leikkonan Tuppence Middle-
ton, sem Íslendingar þekkja meðal
annars úr kvikmyndunum Imitation
Game sem tilnefnd var til Ósk-
arsverðlaunanna í ár, Chatroom og
sjónvarpsþáttunum Bones, í mjög
forvitnilegu hlutverki í þáttunum.
Middleton leikur nefnilega Íslending
í tilvistarkreppu á skjánum og verður
forvitnilegt að sjá í hvaða ljósi hand-
ritshöfundar hafa hugsað sér að sýna
Íslending í vandræðum með sjálfan
sig.
Íslenska konan sem Middleton
leikur heitir nánar tiltekið Riley í
þáttunum og starfar sem plötusnúður
hérlendis uns hún flytur skyndilega
til London í þeim tilgangi að flýja ein-
hvers konar vandræðafortíð sína hér
heima.
Í þáttunm 12 er fylgst með átta
einstaklingum sem hittast í London
og koma úr ólíkum áttum en tengjast
órjúfanlegum böndum.
Til að leika plötusnúð þurfti
Middleton að sjálfsögðu að læra að
þeyta skífum og hefur gert það í næt-
urklúbbum ytra fyrir framan „al-
vöru“ áheyrendaskara að næturlagi
og þykir hafa sýnt ágætis takta í því
hlutverki. Þess má geta að tímaritið
Times skrifaði um þættina í gær og
sagði að netflixnotendur yrðu hrein-
lega að fylgjast með.
Stórstjörnur leika í nýju þáttaröðinni
Sense8, svo sem Daryl Hannah.
Leikur Íslending í vandræðum
Tuppence Middleton þekkja áhorfendur meðal annars úr Imitation Game,
Chatroom og Bones. Hún leikur Íslending í nýrri spennuþáttaröð Netflix.
AFP
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2015
Fyrir fáeinum dögum ók ég um Grímsnesiðmeð drasl á kerru sem ætlað var til förg-unar. Eitthvað hafði óhönduglega tekist til
við fráganginn þannig að heljarmikill plastpoki
fauk af kerrunni einhvers staðar í grennd við
gjaldheimtuskúrinn í Kerinu. Ekki uppgötvaði ég
þetta þó fyrr en á leiðarenda. Konu minni var ekki
skemmt og næst þegar ekið var um þessar slóðir
var rýnt mjög eftir plastpokanum sem var auð-
kennanlegur. Og viti menn. Þarna var hann, bíll-
inn stoppaður, náð í pokann og honum í kjölfarið
komið í förgun. Málið hafði fengið farsælar lyktir.
Þessi litla saga varð mér að umhugsunarefni
um þá miklu hugarfarsbyltingu sem orðið hefur í
tengslum við umgengni okkar um landið. Vissu-
lega er enn að sjá rusl með vegum, ekki síst plast-
poka og riflrildi úr plasti. En mín tilfinning er að
þessu rusli hafi ekki verið hent af ásetningi heldur
sé þar fremur gáleysi um að kenna.
Sú var tíðin að hin almenna regla var að pulsu-
bréfinu var hent út um bílgluggann og ýmsar aðr-
ar umbúðir fóru þá leið að ekki sé minnst á ösku-
bakkana sem purkunarlaust voru losaðir í lyngið
með veginum. Þetta gerir varla nokkur maður í
dag. Og hvað reykingarnar áhrærir þá var sú tíðin
að reykingafólk var látið komast upp með að reyk-
menga loftið á vinnustöðum og á fundum. Og alla
leiðina Reykjavík Akureyri var reykt án afláts í
hastri rútunni sem daglangt hossaðist á rykmett-
uðum malarveginum og hirti þá enginn um að
spyrja hvort einhverjir bílveikir vildu gera at-
hugasemd. Í flugvélum var sígarettupakkinn opn-
aður skömmu eftir flugtak. Gott að fá sér smók
með kaffi eða bjór. Alls staðar var rétturinn um-
hverfis-spellvirkjans.
Þetta var í þá daga.
Síðan er mikið vatn runnið til sjávar. Vitundar-
vakning hefur orðið um margt sem er okkur skað-
legt í umhverfinu og þá ekki síður hvað umhverf-
inu sjálfu er skaðlegt. Sjálfur vil ég helst að fylgt
sé þeirri grundvallarhugsun að allt eigi að vera
einstaklingnum leyfilegt sem ekki skaðar aðra.
En viðhorfin til þess hvað telst skaðlegt taka
breytingum og nú er almennt litið svo á að sóða-
skapur í umhverfinu sé skaðlegt bæði manneskj-
unni og náttúrunni.
Þarna hafa orðið ótvíræðar breytingar til góðs
sem vert er að gefa gaum að og fagna. Konan mín
er að vísu þannig gerð að hún hefði aldrei gúterað
plastpoka á flugi af hennar völdum en nú er hún
ekki á báti með fáum um þetta viðhorf heldur
samfélaginu öllu.
Í þessari viðhorfsbreytingu liggja framfarir
sem við þurfum að stuðla enn frekar að. Við gæt-
um byrjað smátt. Stöðvað bílinn endrum og eins
til að tína upp drasl sem tekið hefur flugið úr
mannabyggð.
Framfarir
* Sú var tíðin að hin al-menna regla var aðpulsubréfinu var hent út um
bílgluggann og ýmsar aðrar
umbúðir fóru þá leið að ekki
sé minnst á öskubakkana sem
purkunarlaust voru losaðir í
lyngið með veginum.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Útgáfuform Bögglapóststofunnar
eftir Braga Ólafsson, sem kom út
fyrir síðustu jól og var aðeins að-
gengileg 300 vinum og viðskipta-
vinum fjárfestingarfyrirtækisins
Gamma, hefur sætt þónokkurri
gagnrýni. Um útgáfu nóvellunnar
hefur bókmenntafræðingurinn
Hjalti Snær Ægisson meðal ann-
ars skrifað að hún varpi „ljósi á
þá viðleitni auðstéttarinnar að
aðgreina sig frá fjöldanum, ekki
bara efnislega heldur líka menn-
ingarlega“, Tónlistarmaðurinn
Gunnar Lárus
Hjálmarsson,
betur þekktur
sem Dr. Gunni,
skrifar svo á
Twitter: „Til sölu:
Mynd eftir Gylfa Æ, Kántrý 2 og
3, símaskráin með Gillz (auk lím-
miða) og Bögglapóststofan eftir
Braga. Fyrstur kemur fyrstur
fær.“
Raunar var fyrst vakin athygli
og skrifað um útgáfuna á bóka-
blogginu Druslubókum og doð-
röntum en ein þeirra druslu-
bókadama, rithöfundurinn og
þýðandinn Þórdís Gísladóttir,
skrifaði um allt önnur mál á
Twitter í vikunni, og bauðst með-
al annars til að fræða fólk um eig-
ið sjálf: „Segðu mér hverjir skrifa
athugasemdir hjá þér á facebook
og ég skal segja þér hver þú ert,“
skrifaði Þórdís og bætti svo við:
„Og segðu mér svo adressuna
þína og ég skal
segja þér hvar þú
átt heima.“
Ágúst Ólafur
Ágústsson, lög-
fræðingur, hag-
fræðingur og
fyrrverandi þing-
maður Samfylkingarinnar, birti
mynd af páskaeggi á Facebook
síðastliðinn sunnudag og dáðist
að staðfestu dóttur sinnar, sem
hafði ekki enn borðað það.
„Kristrún, 10 ára, hlýtur að telj-
ast vera nokkuð staðföst í ljósi
þess að 1. júní er á morgun. #?er-
húndóttirforeldrasinna?“
AF NETINU
Vettvangur