Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Blaðsíða 41
7.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 E ftir að hafa farið nánast óhreyfð í gegnum fyrstu 33 ár æv- innar breyttist hugarfarið og undirrituð áttaði sig á því að hún gæti ekki gert kyrrsetunni svona hátt undir höfði. Hugsandi fólk trítar kyrrsetu ekki eins og einhverja drottningu og alls ekki ef þetta fólk stefnir á að verða 100 ára. Mögulega hafði þessi hugarfarsbreyting eitthvað með það að gera að undirrituð var á þessum tímapunkti búin að fæða tvö börn með öllum þeim átökum sem þeirri skemmtireisu fylgir. Og fannst í kjölfarið hlutverk sitt á jörðinni vera mun merkilegra en áður. Þið vitið hvernig þessar mæður eru. Brautirnar í heila konunnar endurforritast nefnilega við það að koma mannslífi í gegnum fæð- ingarveginn. Vagínan tekur völdin og lífið verður ekki samt. Ef karl hefði einhvern tímann fætt barn væri sko búið að hæpa þessa skemmtiferð upp og veita verðlaun við hátíðlegar athafnir víða um heim. Það fyrsta sem undirritaðri datt í hug þegar hún var búin að jafna sig eftir skemmtireisuna var að skrá sig á feitabollunámskeið í líkamsræktarstöð (eins og konur gera). Vegna fæðingarorlofs hafði undirrituð nægan tíma til að lesa sér til um mataræði, mat- búa og skera niður grænmeti. Enda var drengurinn óvenju með- færilegur og mikið ljós eins og stóri bróðir hans. En svo kláraðist feitabollunámskeiðið og það fór allt í sama far- ið aftur þangað til vinkona undirritaðar, sem lítur út eins og arab- ískur veðhlaupahestur (ég hef sagt ykkur frá henni) dró pony- hestinn (undirritaða) út að hlaupa. Arabíski veðhlaupahesturinn var með háleit markmið og var stefnan sett á hálft maraþon og fyrir það var æft næsta hálfa árið eða svo. Undirrituð skilur ekki ennþá hvers vegna hún nennti að hafa þennan lata pony-hest í eftirdagi og þjálfa hann þannig upp að hann kæmist klakklaust í mark þarna í ágúst. Svona pony-hestar geta verið dálítið ánægðir með sig og með því að komast í mark fór metnaðurinn nánast yfir hættumörk. Þetta gerði það að verkum að hann hætti ekki fyrr en hann var búinn að fá tíma hjá besta kraftlyftingaþjálfara landsins. Planið var að þrauka í mánuð og sjá svo til. Það sem gleymdist alveg að taka með í þetta reikningsdæmi er að það að lyfta lóðum er skemmtilegt, gefandi og núllstillandi. Að rækta karlinn í sér, massa sig upp, er mjög valdeflandi fyrir konur. Og eins og sést á myndinni verða þær ekki eins og rúss- neskir kúluvarparar á því heldur sterkar. Flestum konum veitir ekkert af því. Það að finna styrk sinn aukast er gott fyrir sjálfs- traustið. Það eykur líka sjálfstraustið að geta haldið á börnunum sínum á milli herbergja að næturlagi án þess að bugast, geta breytt heima hjá sér án þess að láta karl hjálpa sér og geta farið sjálf í Sorpu með fulla kerru af drasli (takk pabbi samt fyrir hjálp- ina). Það að geta gert allt sem karlar geta gert með líkamlegu afli sínu er gott fyrir sjálfstraustið. Það besta við þetta er samt að mennirnir í kringum mig eru löngu hættir að spyrja mig hvað ég tek í bekk (sem er samt ekkert rosalegt). Það er eitt skref í átt að jafnrétti. Pony-hesturinn kann svo ógurlega vel við sig í lyftingaskónum og með úlnliðahlífar að þegar hann var beðinn um að pósa í MAN í þessum búnaði ásamt lyftingavinkonum sínum sagði hann auðvit- að já. Ég legg ekki meira á ykkur! martamaria@mbl.is Pony-hestur pósar Maríanna Garðarsdóttir, Ása Ólafsdóttir, Birna Bragadóttir, Rannveig Eir Einarsdóttir, Svanhildur Hólm Valsdóttir, Hulda Elsa Björgvinsdóttir og pony-hesturinn. - Þín brú til betri heilsu Taktu í taumana og finndu þitt jafnvægi Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • Sími 560 1010 Hvað hentar þér? Hafðu samband og fáðu fría ráðgjöf – Eru kílóin að hlaðast á? – Er svefninn í ólagi? – Ertu með verki? – Líður þér illa andlega? – Ertu ekki að hreyfa þig reglulega? – ....eða er hreinlega allt í rugli? www.heilsuborg.is LAUGAVEGI 5 - SÍMI 551 3383 Hjarta úr hvítagulli 25 punkta demantur 99.000,- Gullhálsmen Handsmíðað 14K, 2 iscon 26.000,- Demantssnúra 30 punkta demantur, 14K 157.000,- Demantssnúra 9 punkta demantur, 14K 57.000,- Gullhringur Handsmíðaður 14K, 2 iscon 45.700,- Morgungjafir í miklu úrvali
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.