Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Page 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Page 13
„Við viljum hafa vaðið fyrir neðan okkur. Sinubrunar, til dæmis í Skorradal og á Mýrum, hreyfðu við okkur svo við ákváðum að hafa hér til staðar lágmarksbúnað þannig að vonandi væri hægt að halda eldi í skefjum uns slökkvilið kæmi á vettvang,“ segir Steinar Steinarsson, formaður Félags sum- arhúsaeigenda í landi Mun- aðarness í Borgarfirði. Á því svæði hefur verið komið fyrir svo- nefndum klöppum, sem eru þarfa- þing til þess að slökkva elda í gróðri. Þetta eru einskonar spaðar á löngu skafti sem slegið er á brennandi gróðurinn sem þannig er kæfður. Púströr geta kveikt í Sumarhúsasvæðið í Munaðarnesi er allstórt og á því eru alls 89 sumarhús, það er beggja vegna Hringvegarins um Borgarfjörðinn. Raunar má segja að Munaðarnes- svæðið sé tvískipt; annars vegar orlofsbyggð BSRB og svo almenn- ir bústaðir í eigu fólksins sem Steinar er í forsvari fyrir. Sjónir fólks hafa í vaxandi mæli beinst að þeirri hættu sem skapast getur ef kviknar í gróðurlendi eða skógum. Sé jörð þurr getur eldur borist undraskjótt yfir víðfeðm svæði og að sumarhúsunum í Munaðarnesi, sem öll eru úr timbri. „Í landi eins og Munaðarnesi, þar sem er mikið kjarr og mó- lendi, er eldhættan mikil þegar jörð er þurr. Hættan er kannski helst sú að eldur frá útigrillum eða útikamínum komist í gróður, þó að áhættuþættirnir séu auðvit- að fleiri, eins og til dæmis akstur fjórhjóla utan vega þar sem heitt púströr getur kveikt í sinunni. En við urðum að gera eitthvað í mál- unum og keyptum þessar klöppur, sem eru í knippum á fjórum stöð- um á svæðinu,“ segir Steinar. Húsin metin á 1,5 milljarða króna Brunabótamat sumarhúsanna í Munaðarneslandi er um 1,5 millj- arðar króna. Sú tala segir Steinar að sýni vel hvað sé í húfi. Örygg- ismálin hafi því verið tekin fyrir heildstætt og margt gert. Nú sé 30 kílómetra hámarkshraði á veg- um um hverfin, hliðin inn í hverfin læst á veturna til þess að fyrir- byggja innbrot og búið að koma upp eftirlitsmyndavél á svæðinu. „Ég tel okkur í miklu betri mál- um en áður og vitund fyrir öryggismálum hér er orðin býsna sterk,“ segir Steinar. Viðbragðsáætlun tiltæk „Forvarnamálin og hættumat þurfa að koma sterkar inn,“ segir K. Hulda Guðmundsdóttir, skógar- bóndi á Fitjum í Skorradal. Fyrir tilstilli Skorrdæla hefur verið unn- in viðbragðsáætlun vegna gróður- og skógarelda sem er tiltæk hjá almannavarnadeild Ríkislögreglu- stjóra. Hulda segir þó ljóst að þótt orð á blaði séu ágæt sé margt ógert. Ekki liggi til dæmis fyrir hvort slökkvibílum sé fært inn á slóða í sumarhúsahverfum, þar sem víða þurfi einnig að koma upp brunahönum og öðrum slíkum búnaði. Strangt til tekið sé það skylda sveitarfélaganna að sjá til þess að slík mál séu í lagi en fulltrúar þeirra hafi þó ekki sýnt þessu mikinn áhuga. „Ef einhverjar raunverulegar umbætur eiga að koma til lendir kostnaður sennilega á landeig- endum,“ segir Hulda, sem með bróður sínum er að koma upp vatnsúðakerfi sem hægt verður að setja af stað komi eldur upp. Slíkt gæti reynst vel, en framkvæmdir séu þó kostnaðarsamar og fyrir vikið sé hægagangur á öllu. BORGARFJÖRÐUR Sumarhúsafólkið með eigið slökkvilið HÆTTA Á SINUELDUM ER VANDAMÁL Í SUMARHÚSABYGGÐUM. Í MUNAÐARNESI HEFUR FÓLK BRUGÐIST VIÐ VANDANUM OG ER VIÐ ÖLLU BÚIÐ. Steinar Steinarsson með klöppunar góðu sem hefur verið komið víða fyrir í Munaðarneshverfinu, en þær þykja vera þarfaþing og skapa ákveðið öryggi. Sinueldar geta valið miklu tjóni og jafnvel verið illviðráðanlegir, eins og mörg dæmi frá síðustu árum sanna. Morgunblaðið/Sigurður Bogi 7.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13 Starfsfólk veitingastaðarins Friðriks V tók upp á því í vetur að spreyta sig í myndlist og hélt sýningu á staðnum. Verkin seldust öll, á samtals 125 þús- und kr., fyrirtækið lagði annað eins í púkk og á dögunum voru peningarnir færðir Styrktarsjóði gigtveikra barna að gjöf. Myndirnar eru teknar við afhend- inguna. Á vinstri myndinni eru, frá vinstri: Fríða Kristín Magnúsdóttir, varaformaður sjóðsins, Karen Ösp Friðriksdóttir – dóttir Friðriks og Arnrúnar, eigenda Friðriks V – og lengst til hægri er Sunna Brá Stef- ánsdóttir, stjórnarformaður sjóðsins. Litlu stelpurnar á myndinni eru dætur Sunnu Brár; Snædís Erla Sig- urgeirsdóttir og Karen Mjöll Sig- urgeirsdóttir, sem er 7 ára. Hún greindist með liðagigt rúmlega 2 ára gömul. Sjóðurinn var stofnaður vorið 2014 og hugsaður fyrir gigtveik börn og fjölskyldur þeirra. Hægt er að sækja um styrki t.d. fyrir ferðalög, tóm- stundastarf, hjálpartæki og annað sem nýtist gigtarbörnum. Vonast er til að fyrst verði úthlutað úr sjóðnum á næsta ári. REYKJAVÍK Fríða Kristín Magnúsdóttir, Karen Ösp og Sunna Brá Stefánsdóttir. 250 þúsund til gigtveikra Systurnar Snædís Erla og Karen Mjöll Sigurgeirsdætur. 72% bæjarbúa á Akureyri segjast myndu fara oftar utan ef boðið yrði upp á tíðari flugsamgöngur frá Akureyrarflugvelli. Þetta kemur fram í nýlegri net- könnun sem Háskólabrú Keilis gerði. 700 svöruðu. Út vil ek oftar Einum listamanni af Austurlandi hefur síðustu ár verið boðið til tveggja vikna dvalar að hausti í Vesterålen í Nor- egi. Norlandfylki býður og er allur kostnaður greiddur við ferð og upphald. Austurbrú hefur auglýst eftir umsóknum. Vilta vinna að list í Noregi? Ferðatöskur Sími: 528 8800 drangey.is Smáralind Stofnsett 1934 Töskur Hanskar Seðlaveski Ferðatöskur Tölvutöskur Belti Skart og skartgripaskrín Góðar vörur Sanngjarnt verð Persónuleg þjónusta Kíktu inn á drangey.is Tilvalin útskriftar- gjöf Ítarlegar upplýsingar á drangey.is/ferdatoskur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.