Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Qupperneq 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Qupperneq 24
Dalakofi Strútur Þórsmörk Mýrdalsjökull Tindjalla- jökull Emstrur Álftavatn og Hvanngil Hrafntinnusker Sveinstindur Skælingur Þórsmörk - Fimmvörðuháls Þórsmörk er gjarnan líkt við vin í eyðimörkinni en svæðið er með fallegri stöðum landsins og áfangastaður tveggja vinsælla gönguleiða.Annars vegar Laugavegarins og hins vegar Fimmvörðuhálsins en flestir hefja göngu sína um Fimmvörðuhálsinn í Skógum og ganga inn í Þórsmörk og Laugaveginn fara flestir frá Landmannalaugum til Þórsmerkur. Þangað streymir því fjöldi göngumanna og eru bæði Ferðafélag Íslands og Útivist með reisulega skála á svæðinu. „Skálinn okkar í Básum var opnaður í apríl en það er enn nokkur snjór í fjöllum og eins hlíðum á svæðinu og upp Goðalandið að Fimmvörðuhálsinum,“ segir Skúli Skúlason hjá Útivist en eitthvað er um að tjaldferðalangar séu mættir og er það vísbending um að sumarið sé komið í Þórsmörk. Páll Guðmundsson hjá Ferðafélagi Íslands tekur undir með Skúla. „Það eru komnir fjórir skálaverðir í skálann okkar í Langadal og gönguleiðir á svæðinu í kring eru í góðu standi. Það er helst að snjór sé í fjöllunum í kring og norðurhlíðum þar sem sólin nær ekki að bræða snjóinn jafn hratt.“ Fimmvörðuhálsinn er vinsæl gönguleið og segja bæði Páll og Skúli leiðina vera erfiða yfirferðar sem stendur. „Skáli Útivistar, Fimmvörðuhálsskáli, er tilbúinn fyrir sumarið þó hann sé enn á kafi í snjó. Enn er mjög snjóþungt á leiðinni og hún ekki fær öðrum en mjög vönum göngumönnum,“ segir Skúli. Skáli Ferðafélagsins, Baldvinsskáli, er einnig opinn göngumönnum en Páll tekur undir með Skúla og segir aðstæður geta orðið mjög erfiðar á leiðinni næstu daga. „Bæði er snjóþungt og eins verður mikið krap þegar snjóinn fer að leysa og þá getur verið erfitt að ösla krapið upp í hné. Leiðin ætti að öllu jöfnu að vera fær svona upp úr miðjum mánuði en í síðasta lagi í lok júní,“ segir Páll. Eyjafjalla- jökull Fimm- vörðuháls Landmannalaugar Friðland að Fjallabaki og Landmannalaugar Innan Friðlands að Fjallabaki er að finna einstaka náttúru sem nýtur gífurlegra vinsælda meðal útivistarfólks. Landmannalaugar eru þekktasti áfangastaður svæðisins en hann sækja þúsundir manns á hverju ári. Ferðafélag Íslands er með góða aðstöðu í Landmannalaugum en félagið reisti fyrst sæluhús í Landmannalaugum árið 1951. Núverandi hús er þó að stofninum til frá 1969. Heit uppspretta er rétt hjá skála ferðafélagsins og þar hafa margir hvílt lúin bein eftir göngur og ferðalög. Stórbrotnar gönguleiðir eru allt í kringum Landmannalaugar og er staðurinn oftast upphafspunktur ferðarinnar um Laugaveginn, sem liggur niður í Þórsmörk. Páll segir enn mikinn snjó vera á svæðinu og að sögn Bjarna Jóns Finnssonar, yfirverktaka hjáVegagerðinni, eru allt að þrjár vikur í að hægt verði að opna leið inn að Landmannalaugum. „Alla jafna getum við opnað veginn snemma í júní en vegna veðurs í vor má alveg gera ráð fyrir þriggja vikna seinkun.Verði veruleg breyting á veðri er mögulegt að leiðin opnist fyrr en eins og staðan er í dag er þetta eins og uppi á jökli.“ Útivist á og rekur fimm skála í Friðalndi að Fjallabaki og segir Skúli Skúlason, framkvæmdastjóri Útivistar, að félagið stefni ekki að opnun skálanna fyrr en Vegagerðin hafi opnað vegi á svæðinu. „Það er enn gífurlegur snjór á svæðinu. Í raun meiri snjór en við höfum séð á þessum árstíma.Yfirleitt höfum við verið að opna þessa skála í kringum 25. júní en erum núna undir það búin að því geti seinkað eitthvað í ár,“ segir Skúli. Landmannalaugar Nýleg mynd frá Básum Ástand skálans á Fimmvörðuhálsi Kókosolíu má nota í ótalmargt. Til dæmis er hægt að nota hana til að bursta tennur. Hún er náttúrulega bakteríudrepandi og því góð í þetta og til að hvítta tennurnar um leið er hægt að blanda smá matarsóda út í áður en burstað er. Líka er kókosolía góð til að bera á allan líkam- ann og ennfremur má nota hana sem augnfarðahreinsi. Kókosolía fyrir tennur og húð 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2015 Heilsa og hreyfing FJALLASKÁLAR OG GÖNGUR Vetur enn í kortunum SUMARIÐ ER FORMLEGA HAFIÐ EN VETUR LÆTUR ÞÓ EKKI UNDAN Á HÁLENDI LANDSINS. ÞEIR SEM HYGGJA Á GÖNGUFERÐIR UM VINSÆLAR LEIÐIR Á HÁLENDINU ÞURFA AÐ BÍÐA EITTHVAÐ LENGUR ENDA FÆRÐIN HVORKI GÓÐ FYRIR GÖNGUMENN NÉ NÁTTÚRUNA. Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.