Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Side 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Side 30
EGG Eitt egg er um 90 kaloríur og inniheldur yfir 12 vítamín og steinefni. Egg er sannarlega fullt hús matar og er ríkt af góðu próteini sem er nauðsynlegt á meðgöngu. Heilsuhraustar konur með eðlilegan blóðþrýsting geta borðað eitt eða tvö egg á dag. GRÍSKT JÓGÚRT Það sem grískt jógúrt hefur fram yfir aðrar tegundir af jógúrti er að það inniheldur tvöfalt magn af próteini. Almennt inniheldur jógúrt ágætis magn af kalki, sem er nauðsynlegt á meðgöngu til að styrkja bein barnsins. Ef líkaminn fær ekki nóg kalk fer allur forðinn til barnsins og dregur úr kalki í beinum móðurinnar. Kalkið er því mikilvægt bæði fyrir móður og barn og undirbýr bein- in einnig vel fyrir fæðinguna. DÖKKIR GRÆNBLÖÐUNGAR Spínat, grænkál og aðrir grænblöðungar inni- halda ýmis vítamín og næringarefni á borð við A-, C- og K-vítamín en einnig fólínsýru sem er mjög mikilvægt að taka fyrir og á með- göngu. Fólínsýra tilheyrir B-vítamín-fjölskyld- unni. Það hjálpar til við vöxt barnsins og einn- ig myndun blóðfrumna og frumuskiptingu. 10 frábærar fæðutegundir á meðgöngu ÞAÐ SKIPTIR MIKLU MÁLI AÐ BORÐA NÆRINGARRÍKAN OG HOLLAN MAT FYRIR VAXANDI ERFINGJA INNANBORÐS EN GETUR STUNDUM VERIÐ SNÚIÐ. Á AÐ BORÐA NÓG AF ÞESSU EÐA HINU EÐA HVORU TVEGGJA EÐA JAFNVEL EKKI? EFLAUST ER ALLT BEST Í HÓFI EN HÉR KOMA NOKKRAR TILLÖGUR AÐ GÓÐUM FÆÐUTEGUNDUM SEM HENTA VEL FYRIR BARNSHAFANDI KONUR. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is SÆTAR KARTÖFLUR Appelsínuguli liturinn í sætum kartöflum er vegna karótíns í þeim sem breytist í A-vítamín þegar kart- öflurnar eru komnar í kroppinn. Við þurfum á A- vítamíni að halda og fáum það úr dýraríkinu og jurtaríkinu. Óæskilegt er að neyta of mikils A- vítamíns en skortur á því getur verið hættulegur. Sætar kartöflur eru einnig C-vítamínríkar og inni- halda fólat og trefjar. Getty Images/iStockphoto LAX Lax er stútfullur af ómega 3-fitusýrum sem eru góðar fyrir vaxandi unga í móðurkviði og get- ur einnig haft jákvæð áhrif á skapið. Auk þess inniheldur lax mikið af próteini. Þetta er feitur fiskur og fitan í honum er afskaplega góð fyrir kroppinn. BAUNIR Linsubaunir, svartar baunir, pintóbaunir, kjúklingabaunir … Úr nógu er að velja. Baunir innihalda trefj- ar og prótein og eru trefjar ekki síður mikilvægar barnshafandi konum en pró- tein. Á meðgöngu hægist á meltingunni, sem getur aukið líkurnar á hægðatregðu. Trefjar geta komið í veg fyrir eða létt á slíkum vandamálum. Ýmsar baunir á borð við linsubaunir eru auk þess afar járn- ríkar, sem kemur sér vel fyrir margar enda járnleysi algengt á meðgöngu. VALHNETUR Valhnetur eru ein helsta uppspretta ómega 3-fitusýra í plönturíkinu. Auk þess hafa þær bólgueyðandi áhrif og innihalda andoxunar- efni. Handfylli af valhnetum er tilvalið snarl milli mála eða út á salatið. MAGURT KJÖT Á þessari síðu er mikið talað um að prótein sé gott fyrir barnshafandi konur. Það er rétt og er kjúklingur þar ekki undanskilinn. Einstaklega próteinríkt kjöt auk þess sem það er fitusnautt. Rautt kjöt á borð við nautakjöt er einn- ig gott á meðgöngu enda járnríkt. Var- ast ber þó að borða það lítið eldað eða hrátt þar sem hætta er á listeríu, sem getur m.a. valdið blóðsýkingu. POPP Já, þú last rétt. Poppkorn er kornmeti. Heil- korn eru mjög mikilvæg á meðgöngu þar sem þau innihalda E-vítamín, trefjar og önn- ur efnasambönd sem vernda frumur. En það er fleira sem inniheldur heil korn eins og hafragrautur, bygg og einnig kínóa. LITSKRÚÐUGIR ÁVEXTIR OG GRÆNMETI Það er gott fyrir allt og alla að neyta fjöl- breytts grænmetis og ávaxta, hvort sem um er að ræða meðgöngu eða ekki. En það er sérlega gott fyrir barnshafandi konur að neyta litskrúðugra ávaxta og grænmetis. Grænt, rautt, appelsínugult, gult, fjólublátt; því fjölbreyttari litir því betra þar sem hver og ein tegund hefur sína eiginleika og mismunandi flóru af vítamínum og steinefnum. Undir lok meðgöngunnar getur barnið bragðað það sem móðirin lætur ofan í sig og því er til- valið að borða sem fjölbreyttast til að auka líkurnar á því að barnið kannist við fæðið þegar að því kemur að það borði sjálft. Matur og drykkir Vissir þú … *… að kókoshnetan er stærsta fræ í heiminum?Hins vegar er hægt að tala um kókoshnetu semávöxt, hnetu og fræ. Kókoshnetan sem fæst í búð-um erlendis er í raun innsti kjarninn. Kókoshnetanhefur þrjú lög og er ysta lagið yfirleitt grænleitt álitinn. Miðjulagið er trefjaríkt hýði sem umvefurinnsta lagið sem líkist trébút. Trébúturinn eða loðna, brúna kúlan heldur síðan utan um hvíta gómsæta innihaldið, sem allir ættu að þekkja.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.