Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Qupperneq 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Qupperneq 40
Sif Baldursdóttir fatahönnuður er smart og segir svört háhæluð ökklastígvél vera veikleika sinn. Hvað heillar þig við tísku? Sem fatahönnuður hefur sú staðreynd alltaf heillað mig að öll þurfum við að klæðast einhverju til að hylja nekt okkar, við getum tjáð öðru fólki svo margt með klæðaburði okkar. Þau föt sem við ákveðum að klæðast fylgja okkur í gegnum lífið og oft tengjum við þau við minningarnar sem við myndum þegar við klæðumst þeim. Mér hefur alltaf fundist falleg til- hugsun að búa til föt sem fylgja fólki á svona náinn hátt. Hvaða tískutímarit og/eða blogg lestu? Þar sem ég vinn í þessum heimi reyni ég meðvitað að skoða ekki mikið af tískutímaritum og slíku, heldur leita frekar að innblæstri frá umhverfi mínu og fólkinu í kringum mig. Auðvitað glugga ég samt einstaka sinnum í ein- hver blöð og þá helst I-D Magazine, Gentlewoman og Ítalska Vogue, sem standa alltaf fyrir sínu. Hvað er nauðsynlegt í snyrtitöskuna? Mér finnst hrein og heilbrigð húð skipta mestu máli og þá er auðvitað mikilvægt að vera duglegur að hreinsa hana og gefa raka. Ég er með mjög ljósa húð og það hefur oft reynst mér erfitt að finna hyljara í lit sem hentar, en í MAC eða Make Up Store hef ég alltaf fundið eitthvað við hæfi. Annars hef ég alltaf verið frekar mikill snyrtivörupervert og í gegnum tíðina fundið mínar uppáhalds- snyrtivörur sem ég held mig við svo árum skipt- ir. Til dæmis hef ég notað Lancome Hypnose-maskarann síðan ég byrjaði að mála mig og sömuleiðis Ruby Woo-varalitinn frá MAC í mörg ár. Manstu eftir einhverjum tískuslysum sem þú tókst þátt í? Mér dettur ekkert sérstakt í hug nema kannski á unglingsárunum þegar ég var frekar að eltast við það sem öðrum fannst flott en að hlusta á eigið innsæi. Hvað kaupir þú alltaf þótt þú eigir nóg af því? Svört háhæluð ökklastígvél eru minn veikleiki – ég á alltaf nóg til af þeim! Einnig á ég það til að kaupa mér fleiri svartar kápur en þörf er kannski á. Möttu varalitirnir frá MAC eru líka annar veik- leiki, en ég á örugglega svona 10 stykki sem ég nota reglulega. Áttu þér einhvern uppáhaldsfatahönnuð? Ann Demeulemeester hefur í gegnum árin verið minn uppáhalds- fatahönnuður, en hún hefur alltaf talað til mín þar sem ég klæðist nánast eingöngu svörtu. Svo eru mörg skandinavísk merki sem ég er hrifin af, til dæmis ACNE og Barbara I Gongini. Einnig finnst mér gaman að fylgjast með íslenskum fatahönnuðum, en það hefur orðið mikil vakning í fatahönnun hérlendis undanfarið. Skemmtilegast þykir mér að fylgjast með íslensku merkjunum í Kiosk á Laugavegi 65, en ég er meðeigandi að þeirri búð og sel þar fatamerki mitt, Kyrja. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Ég hef alltaf verið skotin í Lykke Li og hennar fatastíl! Það væri algjör draumur að fá að klæða hana í framtíðinni. Ég elska hvernig hún vinnur með svarta litinn og minimal- isma. Ætlar þú að fá þér eitthvað fallegt fyrir sumarið? Ég er nú ekki þekkt fyrir að vera sú sumarlegasta! En annars hef ég ekki klæðst buxum í mörg ár og nú langar mig loksins að finna mér einhverjar fínar buxur í léttu efni fyrir sumarið. En ég er eiginlega aðallega spennt fyrir haustinu, þá ætla ég að næla mér í kápu frá íslenska merkinu MAGNEU. Áttu þér eitthvert gott stef, ráð eða mottó, þegar kemur að fatakaupum? Fylgja ávallt eigin innsæi og vanda valið þegar kemur að efnum, náttúrulegt er alltaf betra. Mér leiðist fátt meira en akríl- blöndur og pólíester sem hnökrar og verður að engu með tím- anum. Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á verðmiðann, hvaða flík eða fylgihlut myndirðu kaupa? Mig hefur alltaf dreymt um klassískan „biker“-leðurjakka frá ACNE, en mér finnst það vera algjör lífstíðareign. TENGJUM FÖT VIÐ MINNINGARNAR Mikil vakning í fatahönnun hérlendis SIF BALDURSDÓTTIR FATAHÖNNUÐUR HANNAR UNDIR MERKINU KYRJA. HÚN FYLGIR ÁVALLT EIGIN INNSÆI Í FATA- KAUPUM OG VANDAR VALIÐ ÞEGAR KEMUR AÐ EFNUM OG SEGIR NÁTTÚRULEGT ALLTAF BETRA. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Sif hefur notað Ruby Woo- varalitinn frá MAC í mörg ár. Hönnun Ann Demeule- meester er í eftirlæti hjá Sif. Mynd úr sumarlínu Kyrju 2015. Sif hefur lengi dreymt um klassískan „biker“- leðurjakka frá ACNE studios. Morgunblaðið/Kristinn Tíska *Auglýsing úr herferð tískuhúss-ins Saint Laurent hefur veriðbönnuð í Bretlandi (á vegumASA) vegna þess að fyrirsætanþykir of grönn og óheilbrigð íútliti. Telja þeir auglýsinguna, sem birtist í tímaritinu Elle, óábyrga. Undanfarið hafa of grannar fyrirsætur í auglýsingum verið undir smásjá og þykja þær hafa neikvæð áhrif á líkamsvirðingu kvenna. Bann á auglýsingaherferð Saint Laurent
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.