Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Side 46
Áður þekktist það að unglingar reyndu að
fá sér eldri kunningja og vini til að fara í
Ríkið fyrir sig á föstudögum og kaupa
áfengi. Sumir biðu jafnvel fyrir utan Ríkið
og báðu ókunnuga að skreppa inn í búð-
ina gegn gjaldi. Hópar á Facebook svo
sem Vinbudin hafa verið í skoðun hjá
lögreglu þar sem fólk bæði óskar eftir
víni eða auglýsir til sölu. Um 4.000
meðlimir eru í hópnum, flestallir undir
aldri en þó eru dæmi um að fólk í
partíum sem er orðið uppiskroppa
með vínbirgðir auglýsi eftir heimsend-
ingu á áfengi.
Kaupa vín á
Facebook
UNGT FÓLK AUGLÝSIR EFTIR ÁFENGI
Í LOKUÐUM HÓPUM.
Úttekt
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.6. 2015
Þ
að má ljóst vera eftir síðustu viku að hópeflið á
sér stað á Facebook. Þar er reynslusögum af
kynferðislegri misnotkun deilt í lokuðum 20.000
manna hópi, þar er undirskriftum safnað fyrir ým-
is samfélagsmál, þar tekur fólk sig saman og
skiptist á bollastellum og jafnvel stökum bitum í púsluspil.
En um leið og það löglega fór á Facebook fór það ólöglega
þangað líka.
Þótt samfélagsmiðlarnir séu nokkrir til er enginn annar
sem nýtur viðlíka vinsælda hérlendis og Facebook þar sem
boðið er upp á lokaða hópa.
En sumir hópar eru leynilegri en aðrir. Sumir eru lokaðir
svo ekki er hægt að lesa þær umræður sem fara þar fram
nema sækja um inngöngu, aðrir eru það sem kallast „leyni-
legir“ og er ekki einu sinni hægt að
fletta þeim upp. Í þá hópa geta núver-
andi meðlimir einungis boðið og eina
leiðin til að fá inngöngu er að fá ein-
hvern sem fyrir er í hópnum til að
bjóða þér í hann.
Á Facebook er hægt að kaupa
áfengi, eiturlyf, ólöglegt bílfar með
ókunnugum og skiptast á ólöglegum
varningi. Lögregan eyðir því meiri
tíma en áður í að leysa brot í tölv-
unni sem áður voru ekki sjáanleg
nema úti á götum.
AFP
ÓLÖGLEG STARFSEMI VEÐUR UPPI Á VINSÆLASTA
SAMFÉLAGSMIÐLI ÍSLANDS; FACEBOOK. VOPN ERU
AUGLÝST ÞAR TIL SÖLU, UNGT FÓLK KAUPIR ÞAR
ÁFENGI, EITURLYF GANGA KAUPUM OG SÖLUM OG
BÍLSTJÓRAR SEM HAFA EKKI TIL ÞESS LEYFI KEYRA
FÓLK BÆJARHLUTA Á MILLI GEGN GREIÐSLU.
Á aðeins einni viku, 22.-28. maí,
báðu um 440 manns, meirihlutinn
ungt fólk, um far bæjarhluta á milli
á höfuðborgarsvæðinu og lands-
byggðinni á facebookhóp sem kall-
ast Skutlarar.
Auk þessara á fimmta hundrað
auglýsinga eftir fari eru ótaldar
auglýsingar frá skutlurum sem
bjóða fram þjónustu sína að fyrra
bragði en verðið er lægra en
gengur og gerist með leigubílaakst-
ur.
Sé þessi vika dæmigerð eru um
30.000 beiðnir um skutl á ári á
aðeins þessari síðu en fleiri síður í
þessum dúr eru til og má þar
nefna hópinn Drivera. Yfirleitt eru
það ókunnugir sem þjónusta við-
skiptavini og Þórir Ingvarsson
rannsóknarlögreglumaður hjá Lög-
reglunni á Höfuðborgarsvæðinu
segir fólk engan veginn gera sér
grein fyrir því að það er að leggja
sig í mikla hættu að þiggja far
með ókunnugu fólki sem enginn
veit skapaðan hlut um enda þum-
alputtaregla að þiggja ekki far
með einhverjum og einhverjum.
Þess utan er samkvæmt lög-
um refsivert að stunda leigu-
akstur án tiltekinna leyfa. Bæði
er það brot á umferðarlögum
en getur svo líka talist til svartrar
atvinnustarfsemi.
Greitt fyrir bílfar með ókunnugum
Á FACEBOOKHÓPUM SVO SEM SKUTLURUM OG DRIVERUM ER ÓSKAÐ EFTIR AKSTRI OG
AKSTUR AUGLÝSTUR SEM HINIR OG ÞESSIR SJÁ UM AÐ SINNA. FÓLK ER YFIRLEITT AÐ
KAUPA SÉR FAR MEÐ ÓKUNNUGUM BÍLSTJÓRUM SEM ERU EKKI ATVINNUBÍLSTJÓRAR.
Lögleysa á
Facebook