Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Side 47
Ótal facebookhópar snúast um að
selja og kaupa dót en svo eru til
sérhæfðari hópar fyrir fólk sem á
eitthvert dót til skiptanna og býð-
ur það fram í stað pen-
ings. Í einum slíkum
hópi, Dót fyrir dóp, er
að finna rúmlega 500
meðlimi og á hverjum
degi detta inn auglýsingar
þar sem fólk vill skipta á
ótrúlegustu hlutum og fá
í staðinn læknadóp, hass,
amfetamín, kókaín eða
eins og sumir segja; þeir
vilja bara hvaða fíkniefni sem
er.
Með vinsælli varningi til að
bjóða fram eru dýrar úlpur frá til
dæmis 66°N og öðrum dýrari
merkjum, þá eru fartölvur gjarnan
til skiptanna og búnaður tengdur
þeim, dýr úr, sjónvörp og alls kyns
raftæki og jafnvel heilu bifreiðirnar.
Aðrir hafa ódýrari hluti að
bjóða, svo sem íþróttapeysur,
tölvuleiki og heyrnartól, og svo
eru það þeir sem bjóða fíkniefnin
og segja að sig vanti hitt og þetta
– einn í hópnum bauð til dæmis
fram dóp í skiptum fyrir að fá
einhvers staðar leigt húsnæði.
Skipta á alls kyns
dóti fyrir dóp
Í LOKUÐUM HÓPI Á FACEBOOK
SKIPTAST UM 500 MANNS Á ALLS KYNS
DÓTI FYRIR DÓP. Á HVERJUM DEGI
DETTA INN BEIÐNIR UM SLÍK SKIPTI – Á
MINNI OG STÆRRI HLUTUM.
„Við megum ekki gleyma því að stundum
er talað um tölvuglæpi og ógn af þeim
en í raun eru þetta allt sömu glæpirnir
sem birtast okkur með nýjum leiðum,“
segir Þórir Ingvarsson rannsóknarlög-
reglumaður um lokaða facebookhópa þar
sem verslað er með eiturlyf. Hins vegar
segir hann að það geti verið að með til-
komu Facebook sé framboð á eiturlyfjum
sýnilegra fleirum og að einhverju leyti
gæti aðgangur ungs fólks verið með öðr-
um hætti.
„Líkt og með löglegan varning sem fer
í sölu á netinu er óhjákvæmilegt að sá
ólöglegi geri það líka. Það er töluvert
mikið um þetta og við fáum margar
ábendingar um slíka hópa. Stundum geng-
ur vel að upplýsa málin en stundum
gengur það erfiðlegar. Rannsóknir brota
eru almennt í eðli sínu flókið ferli, tíma-
frekar og mikil vinna, og á það bæði við
um glæpi á netinu og annars staðar.“
Auglýsingar þar sem eiturlyf eru boðin
til sölu eða fólk óskar eftir að fá að
kaupa þau eru daglegt brauð á Facebook
þar sem margar auglýsingar detta inn á
hverjum degi. Jafnvel eru dæmi um að
eiturlyfjasalar auglýsi „góða tekjumögu-
leika“ fyrir þá sem vilji auðgast á því að
selja fyrir þá.
Ótal eitur-
lyfjahópar
SALA FÍKNIEFNA Á FACEBOOK ER NÝ
BIRTING GÖTUSÖLU. MISVEL GENGUR
AÐ UPPLÝSA FÍKNIEFNASÖLU Á
SAMSKIPTAMIÐLINUM.
7.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 47