Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2015, Page 55
7.6. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 55
endur vildu ekki sjá við hliðina á auglýsingum
í miðlunum. Hún þekkti þessa breytingu vel,
frá því að geta valið úr tilboðum um að vinna
jafnvel í einhverjar vikur að ljósmyndafrásögn-
um í hinum og þessum löndum, yfir í veruleika
21. aldarinnar þar sem miðlarnir höfðu ekki
lengur áhuga á að ráða ljósmyndara í slík
langtímaverkefni og verk hennar rata einkum
til fólks í bókum og sýningum.
„Hún var að skrásetja veruleika sem skiptir
máli,“ segir Ragnar. „Í dag vilja fjölmiðlar
frekar fjalla um fólk sem er frægt fyrir ekkert
sem skiptir máli. Nú er Mary Ellen farin og
skilur eftir sig ómetanlega fjársjóði í myndum.“
Ragnar bætir við að sem betur fer séu enn
um allan heim góðir ljósmyndarar sem skrá-
setji veruleikann af ástríðu. „En Mary Ellen
er þar á toppnum. Í mínum huga er hún einn
af fimm flottustu ljósmyndurum allra tíma,
með til að mynda Cartier-Bresson og W. Eu-
gene Smith,“ segir hann.
Hreyfði við okkur
Mary Ellen Mark var einstaklega sterk kona
sem gat ekki hugsað sér það sem annað fólk
kallaði frí eða orlof; hún vann ötullega og af
ástríðu að verkefnum sínum, alla daga, Hún
sótti sér af og til hvíld í verslunarleiðangra,
eins og frægt hefur orðið, enda sérstakur góð-
kunningi hönnuða og handverksfólks víða um
lönd. Hér á Íslandi kynntust margir starfs-
menn verslana henni vel á undanförnum árum
og hafa hugsað til hennar undanfarna daga,
rétt eins og fólk sem kynntist henni hér við
kennslu eða í ljósmyndaverkefnum. Síðustu
misserin gekk hún ekki heil til skógar, glímdi
við alvarlegan blóð- og mergsjúkdóm, en neit-
aði að láta veikindin stöðva sig. Hún vann af
kappi að því að ljúka við væntanlega bók sína,
Tiny: Streetwise Revisited sem kemur út í
september. Í henni hitta lesendur aftur fyrir
persónurnar úr Streetwise-verkefninu frá 1983,
sem voru þá götubörn í Seattle. Nú eru sum
þeirra látin en Mary Ellen og Martin hafa
reglulega ljósmyndað, rætt við og kvikmyndað
þau sem lifa og þá einkum beint linsum að
„Tiny“, sem var 13 ára þegar Mary Ellen hitti
hana fyrst og myndaði hana fyrir LIFE-
tímaritið en er nú tíu barna móðir í Seattle.
Þegar ég dvaldi hjá Mary Ellen og Martin í
New York í mars voru meistaraleg svarthvít
prentin í bókina tilbúin og glæsileg hönnunin
frágengin og gladdist Mary Ellen mikið yfir
því. Hún nær því miður ekki að sjá þetta
metnaðarfulla lokaverk sitt koma út á bók.
Melissa Harris, aðalritstjóri Aperture-
tímaritsins og bókaútgáfunnar, vann að
nokkrum bóka Mary Ellen og lýsir henni
sem óviðjafnanlegu „náttúruafli“.
„Sem ljósmyndari var hún afar tilfinninga-
ríkur sögumaður sem tengdist viðfangsefnum
sínum á náinn hátt og auðnaðist að miðla
einhverju um þau sem hreyfði við okkur,“
segir hún. Óviðjafnanleg verk Mary Ellen
lifa en heimurinn er litlausari án hennar.
Lillie með tuskudúkkuna á Pike Street í Seattle árið 1983. Ein myndanna úr Streetwise-verkefninu þar sem Mark og Martin Bell skrásettu líf götubarna. Í væntanlegri bók eru nýjar myndir af fólkinu.
Alexander Viðar Pálsson með móður sinni,
Steinunni Sigurðardóttur. Ljósmynd í bókinni
Undrabörn sem Þjóðminjasafnið gaf út.
Sigrún Sól Eyjólfsdóttir heimsótti ásamt ömmu
sinni, Bergþóru Einarsdóttur, Mary Ellen vinkonu
sína þegar sú síðastnefnda kenndi á Íslandi í fyrra.
Þær kynntust við gerð bókarinnar Undrabörn.
Morgunblaðið/Einar Falur
Mary Ellen Mark var dáður kennari sem
hafði einstakt lag á að hjálpa ljósmynd-
urum að skerpa sína sýn. Síðustu árin
kenndi hún á alþjóðlegu tveggja vikna nám-
skeiði í Reykjavík, ásamt eiginmanni sínum,
Martin Bell, Einari Fal Ingólfssyni ljós-
myndara og konu hans, Ingibjörgu Jó-
hannsdóttur, fyrrverandi skólastjóra Mynd-
listarskólans í Reykjavík. Þá kenndi Mark
reglulega námskeið í Oaxaca í Mexíkó og í
vinnustofu sinni í New York. Ásdís Ásgeirs-
dóttir ljósmyndari sótti síðustu námskeiðin
sem Mark kenndi á öllum þessum stöðum.
„Ég hafði lengi ætlað mér að sækja nám-
skeið hjá Mary Ellen, enda minn uppáhalds
ljósmyndari,“ segir Ásdís. „Þetta var gríð-
arlega skemmtileg reynsla og hvetjandi,
enda Mary Ellen einstök í sinni röð. Þegar
ég var búin að fara á námskeiðið í New
York í fyrra var ég komin á bragðið. Ég
fékk svo að vinna sem aðstoðarmaður á Ís-
landsnámskeiðinu og fór svo til Oaxaca í
febrúar á þessu ári. Það var stórkostlegt.
Mary Ellen var frábær í að hrósa og gagn-
rýna og fann alltaf eitthvað gott hjá öllum.
Hún hafði sanna ástríðu fyrir ljósmyndun
sem smitaði út frá sér,“ segir hún.
„Það eru forréttindi að hafa fengið að
kynnast henni persónulega, hún var svo
mikill karakter og frábær listamaður. Hún
lagði mikla áherslu á innihald mynda, svo
og auðvitað myndbyggingu. Hún vildi að
hver ljósmynd gæti staðið ein og sér sem
sjálfstætt listaverk og ég hafði þetta allt í
huga þegar ég myndaði á námskeiðum hjá
henni. Ég geymi með mér allar skemmti-
legu minningarnar frá þessum nám-
skeiðum,“ segir Ásdís. „Í Oaxaca sagði
Mary Ellen að hver sem er gæti tekið góða
ljósmynd, jafnvel lítil börn. En það væri
næstum ógerlegt að taka stórkostlega ljós-
mynd. Hún hafði svo sannarlega tekið
margar stórkostlegar myndir sjálf. Um
daginn þegar ég var á Kúbu að mynda
hafði ég þessi orð í huga og ráðin sem hún
hafði veitt mér. Næsta ljósmynd gæti alltaf
orðið þessi stórkostlega.“
„Frábær listamaður“
Mary Ellen Mark, Martin Bell og Einar Falur
við yfirferð á námskeiði þeirra í Reykjavík.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ásdís Ásgeirsdóttir með Mark á síðasta
námskeiðinu sem hún kenndi í Oaxaca.
Ljósmynd/Terje Bringedal
Á UNDANFÖRNUM ÁRUM HAFA
MARGIR ÍSLENDINGAR NOTIÐ
ÞESS AÐ LÆRA AF OG VINNA
MEÐ MARY ELLEN MARK.