Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2007, Blaðsíða 29

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2007, Blaðsíða 29
Eitt af því sem vakti athygli að Kirkjubóli var að engir legsteinar fundust eða merkingar. Enginn mundi eftir að hafa heyrt um legsteina í garðinum nokkurn tímann. Þetta gæti verið í anda skipunar Jóns Sigurðssonar Skálholtsbiskups frá 1345, þar sem hann staðfestir ýmislegt úr bréfum eldri biskupa. Þar segir m.a. efnislega að ekki megi setja málaða krossa í jörðu eða steina á leiði nokkurs manns svo þeir verði ekki fótum troðnir. Þetta var ítrekað af seinni biskupum.47 Engu að síður er til allnokkuð af gömlum legsteinum frá ýmsum stöðum.48 Í seinni fornleifarannsóknum hafa ekki fundist legsteinar.49 Frá því grafið var að Kirkjubóli hafa verið birtar nokkrar rannsóknir á kirkjugörðum sem veita betri tækifæri til samanburðar en árið 1985. Það verður þó að segja með þær eins og flest annað í fornleifafræði Íslands að heildarsafnið er það lítið að erfitt er að fella garðinn að Kirkjubóli inn í formgerðarfræði. Þá er líklegt að aðstæður og staðbundnar venjur hafi jafnan ráðið miklu um hvernig hlutir voru gerðir, ekki síst á afskekktum stöðum. Sem dæmi má taka að grafirnar að Kirkjubóli voru grunnar, eins og reyndar að Neðra Ási, en ekki er getið um slíkt að Þórarins stöðum.50 Slíkt mun hafa verið algengt á miðöldum.51 Af 37 gröfum að Kirkjubóli var hægt að sjá öruggar kistuleifar í 21 en engar í fimm tilvikum. Svipað mynstur má sjá t.d. að Neðra Ási en í helmingi tilfella voru kistur að Þórarinsstöðum. Sú kirkja er sögð hafa lagst af um svipað leyti og stofnað var til kirkju á Kirkjubóli. Þá voru dæmi um að torfi og grjóti væri hlaðið að kistum á Kirkjubóli og svipað má sjá að Neðra Ási. Kirkjugarðsveggurinn var úr torfi og grjóti, greinilega oft endur- byggður, upp undir einn metri á hæð þar sem mest var. Sáluhlið var á norðurvegg miðjum sem snýr heim að bæjarhúsum, eins og líklegast er að þau hafi staðið. Jarðabókin (1710) tiltekur að jörðinni sé hætt við skriðum og snjóflóðum auk sjávarflóða þegar fjörðinn leggi.52 Það síðastnefnda hefur þó fremur ógnað engjum við árósinn en garðinum. Garðurinn var um 900 m2 og því sem næst ferhyrndur, að því frátöldu að hann var með þeim hornum sem mannvirki úr torfi vilja gjarnan vera, náttúrulega ávölum. Austurveggur var nokkuð beinn en aðrar hliðar bogadregnar. Veggir höfðu eyðst nokkuð, bæði vegna hruns og ágangs vinnuvéla. Meðal annars mátti sjá hjólför vinnuvéla þvert yfir garðinn frá sáluhliði, rétt fyrir enda kirkjunnar og að vegg hinum megin. Svo virtist sem veggirnir væru ólíkir. Þannig virtist austurveggur best varðveittur með nokkuð bröttum brúnum en suðurveggur verst farinn og illa hruninn. Þar var einnig nokkuð mikið af grjóti sem stóð út úr 28 ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.